blaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 31

blaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 31
blaöið MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 ÍÞRÓTTIR I31 Körfuknattleikur: Bakgrunnur yngri landsliða Ólafur Rafnsson, formaður Körfuknattleikssambands íslands, birti merkilegan pistil á heimasíðu sambandsins ígœr þar sem hann víkur að árangri ungmennalandsliða íslands í körfuknattleik á liðnu sumri. Blaðiðfékk að birta pistilinn. Undirritaður hefur - bæði hér- lendis og erlendis - fengið ítrekað þá spurningu hvað við séum að gera hér á þessu litla landi sem geri þennan árangur mögulegan. Tel ég þar ýmislegt koma til, en umfram allt samspil ómissandi grunnþátta. Gott skipulag 1 fyrsta lagi vil ég nefna til gott skipu- lag unglingamála, hvort heldur er innan vébanda aðildarfélaga okkar eða sérsambandsins. Samstarf og óeigingirni hefur einkennt það starf, og eiga félögin mikinn heiður skil- inn við grasrótarstarfið undir afar erfiðum kringumstæðum. Innan sérsambandsins hefur árangurinn e.t.v. einkum falist í því að metnað- arfullir einstaklingar hafa valist til starfa í unglinganefnd sambandsins undir dyggri formennsku Björns M. Björgvinssonar fyrrverandi for- manns KKÍ. Metnaður þjálfara í öðru lagi skal á það bent að á undan- förnum árum hefur sprottið upp ný stétt afar áhugasamra og skynsamra unglingaþjálfara - einstaklinga sem hafa fundið metnað í þjálfun yngri landsliða, fremur en að hafa það sem “aukabúgrein” samhliða meist- araflokkum. Eg á vitaskuld afar erf- itt með að nafngreina einn öðrum fremur á þessum vettvangi, en ég tel fyllilega verðskuldað að draga fram aðdáun á ósérhlífni og áhuga þess- ara einstaklinga. 1 sameiningu hafa unglinganefnd og þjálfarar nú bryddað upp á þeirri nýbreytni að vera farin að reka á eft- ir stjórn KKÍ að fara að skipuleggja undirbúning yngri landsliða þeg- ar snemma að hausti. Er það afar ánægjuleg þróun og gaman að vera skammaður af slíkum áhuga - en geta ber þess að fyrir einungis 2-3 árum síðan þá hófst fyrsti undirbún- ingur slíkra verkefna jafnan í febrú- ar/mars ár hvert, og þótti ýmsum nóg um. Dugnaður leikmanna í þriðja lagi eru það leikmennirnir sjálfir. Dugnaður íslenskra ung- menna hvað þetta varðar er ótrúleg- ur, hvort heldur um er að ræða fórnir í sambandi við ferðalög eða æfinga- tíma, fjárhagslegar fórnir við vinnu- tap eða greiðslu ferðakostnaðar, eða fórn skemmtana með félögunum eða sumarleyfi með fjölskyldunni. Hefur undirritaður raunar af tak- markaðri faglegri þekkingu sinni á því sviði sett fram þá þjálfunarfræði- legu kenningu að þær fórnir sem leik- menn ungmennalandsliða Islands færa hafi skilað sér beint í formi ár- angurs. Aðilar sem hafi fórnað svo miklu og lagt svo mikið á sig til að komast á áfangastað fái aukakraft til að komast alla leið - aukakraft sem vinni upp nokkra sentimetra í meðalhæð og nokkra kolla í okkar heimsfræga höfðatölumeðaltali. Þrátt fyrir framangreinda kenn- ingu ætla ég ekki að mæla því bót að þetta fyrirkomulag sé viðvarandi til framtíðar - ég hygg raunar að þrátt fyrir kenningu um árangur þá megi eitthvað á milli vera. Það verð- ur ekki hægt að bjóða leikmönnum og foreldrum upp á slíkt til lengri framtíðar, og úrræðaleysi fjárvana sambands í raun sárgrætilegt. En það verður ekki af þessum leik- mönnum tekið að þeir hafa unnið hug og hjörtu Evrópu. Ólafur Rafnsson, Formaður KKÍ. Verð aðeins kr. 29.90 var kr. 39,900 FRI HEIMSEI um allt lan< ECC Skúlagötu 63 Sími 5111001 Opið 10-18 www.ecc.is . {ÍÉi • - — ■ með betrauofti út þessa viku HNG kaupbæti. t. . . , . .-U, t & iibw - -5

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.