blaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 25
blaðið MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005
FYRIR KONUR I 25
Konur gerí launakröfur i
samrœmi við markaðinn
BlaÖiÖ/Frikki
Launamunur kynjanna kem-
ur alltaf í umræðuna öðru-
hvoru.og nú síðast í kringum
kvennafrídaginn þar sem um 50 þús-
und konur komu saman í miðbæn-
um og minntust þess að 30 ár voru
liðin frá kvennafrídeginum. Flestir
sem rætt var við í kringum kvenna-
frídaginn voru á þeirri skoðun að
konur bæru ennþá skarðan hlut frá
borði þegar kæmi að launum.
Innan Verslunarmannafélags
Reykjavíkur er meirihlutinn konur
eða 60% á móti 40% karla. Að sögn
Kristínar Sigurðardóttur, forstöðu-
manns Samskipta- og þróunarsviðs
VR eru launaviðtöl nú að verða ár-
viss hjá fólki á vinnumarkaði og
þykja sjálfsagður hlutur í dag. Krist-
ín segist verða vör við að konur geri
lægri launakröfur en karlmenn
og hvetur konur til að kanna hver
launin á markaðnum eru áður en
þær fara í launaviðtal og gera kröf-
ur í samræmi við það. „Þá er einnig
mikilvægt að konur hugsi út fyrir
hefðbundna prósentuhækkun,“ seg-
ir Kristín og bætir við að hægt sé að
semja um ýmislegt annað en beinar
launahækkanir. „Karlmenn eru til
dæmis duglegri að biðja um fríðindi
en konur, þeir fá frekar greiddan
símakostnað, farsíma, tölvuteng-
ingu á heimilið, bifreiðastyrk og
fleira,“ segir Kristín.
Kristín segir að samkvæmt launa-
könnunum VR hafi launamunur
kynjanna verið óbreyttur sl 3 ár en
minnkaði jafnt og þétt árin þar á
undan. „Ég trúi því að launamun-
ur kynjanna fari minnkandi,“ seg-
ir Kristín. Hún segir að konur séu
duglegri að fara á námskeið um
launaviðtöl og sjálfsstyrkingu en
karlmenn og séu orðnar ákveðnari í
launaviðtölum. Kristín segir að þeg-
ar konur eru spurðar um óskalaun
nefna þær engu að síður lægri tölur
en karlmenn svo nemur þeim mun
sem er á raunlaunum kynjanna.
Konur óvanar að gera kröf-
ur sjálfum sér til handa
Anna Valdimarsdóttir sálfræðingur
segir að í margar kynslóðir hafi kon-
um verið innrætt að vera hógværar,
alúðlegar og hugsa meira um aðra en
sjálfar sig. „Áður þótti ekki kvenlegt
að hækka röddina og það þótti ekki
kvenlegt að gera kröfur - síst af öllu
sjálfum sér til handa,“ segir Anna.
Hún segir að konur sem gerðu slíkt
hafa verið stimplaðar frekjur og grib-
bur og þannig vildi engin kona vera.
„Á sama hátt er karlmaður sem gerði
kröfur var hins vegar álitinn ákveð-
inn og fylginn sér,“ segir Anna. Hún
segir það taka meira en eina kynslóð
að breyta þessum hugsunarhætti og
ekki síst þeim tilfinningum sem upp
koma hjá konum þegar þær hugsa til
þess að gera kröfur, eins og eðlilegar
launakröfur fyrir sjálfar sig.
„Við vitum það kannski margar
með höfðinu núorðið að við stönd-
um karlmönnum ekki að baki en
þegar kemur að því að gera kröfur
um sanngjörn laun koma erfiðar
Kristín Sigurðardóttir
Forstöðumaður Samskipta og þróunar-
sviðsVR
tilfinningar upp eins og óttinn við
að vera eigingjörn, ágjörn og tilætl-
unarsöm upp í hugum kvenna" segir
Anna.
Ráðleggingar fyrir launaviðtal
frá Önnu, í Anna og útlitið
„Það er auðvitað númer eitt að vera
undirbúin undir viðtalið og að vita
hvað maður vill,“ segir Anna. Hún
segir að konur ættu að vera öruggar
í framkomu, horfa í augu viðmæl-
andans og nota þétt handtak.
Anna segir að konur ættu að var-
ast að vera áberandi í klæðaburði í
launaviðtölunum og að förðun ætti
að vera lítt áberandi, þannig ættu
konur t.a.m. ekki að nota áberandi
varalit í launaviðtali. Þá segir Anna
að konur ættu að spegla yfirmann
sinn í klæðnaði, þ.e. að vera fínar ef
hann/hún er fínn.
hugrun.sigurjonsdottir@vbl.is
„Nýjustu fréttir herma að skrifstofu-
fólki sé hollara að borða hádegis-
nestið sitt á klósettinu heldur en
við skrifborðið sitt. Klósettin eru
víst betur þrifin en lyklaborðin á
tölvunum. Tölvusérfræðingur hjá
BBC tilkynnti þetta í þætti um dag-
inn, einmitt þegar ég sat við tölv-
una, hlustaði á útvarpið, renndi yfir
póstinn minn og gæddi mér á kaffi
og samloku. Rannsóknir sýna að
lyklaborðin eru morandi í skít og
bakteríum. Margir klístraðir fingur
hafa rennt sér yfir takkana, brauð-
mylsna og annað góðgæti hefur sull-
ast niður og sest að milli stafanna
í gegnum tíðina. Salerni eru þrifin
reglulega en aðeins er rétt strokið
yfir tölvuskjái. Drullan fær því að
setjast að í rólegheitum á lyklaborð-
inu. Breski sérfræðingurinn fann
út að lyklaborðin eru með skítug-
ustu stöðunum á skrifstofum og
klósettin með hreinustu stöðunum.
Gleðitíðindin fyrir viðkvæma eru að
búið er að framleiða lyklaborð sem
má setja í þvott. Sérfræðingurinn
sannreyndi þetta þegar hann hellti
tómatsósu, gosi, kaffi og ýmsum öðr-
um matvörum yfir lyklana. Lét það
standa og úldna þar til vinnufélagar
voru farnir að kvarta sárlega yfir
óþef. Þá setti hann nýja vatnshelda
lyklaborðið í vaskinn, sprautaði yfir
það alls kyns sótthreinsandi efnum
og vaskaði upp. Viti menn: Tölvan
virkaði sem fyrr. Hrein og fín og ekk-
ert lifandi á tökkunum nema fimir
fingur sem stjórnuðust af frjóu hug-
viti. Krafa nútíma skrifstofumanns-
ins er því héðan í frá að fá lyklaborð
sem má stinga í uppþvottavél.
Þar sem ég er nú farin að kynna
það nýjasta, langar mig að benda
aðdáendum Kvenspæjarastofunnar
frá Botswana á að höfundurinn A1
exander McCall Smith hefur sent
frá sér annan bókaflokk, sem er ólík-
ur Afríkusögunum, en ekki síður
skemmtilegur. Þetta er „The Sunday
Philosophy Club“. Sögusviðið er Ed
inborg nútímans og fjallað er um
Isabelu, efnaða, einstæða glæsikonu
sem er siðfræðingur að mennt.
Fyrsta bókin hefst á því að Isabela
fer á tónleika með Sinfóníuhljóm
sveit Reykjavíkur og verður vitni að
því að ungur maður fellur niður af
svölum og deyr fyrir framan hana.
Var þetta morð? Ýmis siðferðileg
álitamál koma upp og Isabela tekst
á við þau af mikilli snilld. „Sunnu
dagsheimspekiklúbburinn" svíkur
ekki aðdáendur rithöfundarins sem
skapaði Kvenspæjarastofuna.
Hvort rithöfundinum hefur orðið
meint af að vinna við bakteríuhlað
ið lyklaborð skal ósagt látið. Það
er ólíklegt, enda alkunna að af mis-
jöfnu þrífast börnin best.“
Kveðja
Sirrý
M
HÖFUM OPNAÐ NÝJA OG GLÆSILEGA
VERSLUN AÐ HLÍÐARSMÁRA 13 í KÓPAVOGI
ALLAR VHS MYNDIR Á KR. 1250.- (hvergi ódýrari)
ÓTRÚLEGT TILBOÐ Á TITRURUM KR. 500.-
MEÐAN BIRGÐIR ENDAST www.tantra.is
HLÍÐARSMÁRI 13 S. 587 6969 Opið virka daga 12-20
FÁKAFENI 11 S. 588 6969 Laugardaga 12-18
WWW.ENGLAKROPPAR.IS
STORHOFÐI 17 SIMI 5873750