blaðið

Ulloq

blaðið - 09.11.2005, Qupperneq 14

blaðið - 09.11.2005, Qupperneq 14
blaðiðK_____________________________ Útgáfufélag: Ár og dagur ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson. Ritstjóri: Karl Garðarsson. TRYGGJA ÞARF ÖLDRUÐUM ÁHYGGJULAUST ÆVIKVÖLD Fyrir nokkrum dögum heyrðist eftirfarandi gáta lögð fyrir stjórnmála- mann hér á landi. „Hvað er það sem allir vilja verða, en enginn vill vera“. Eitthvað varð fátt um svör þrátt fyrir að svarið sé stutt og einfalt - svarið er Gamall! Æskudýrkun almennings, ekki bara hér á landi, heldur líka víðast erlend- ist, hefur aukist jafnt og þétt undanfarin ár og áratugi. Hluta af þessari þróun er hægt að skýra með hlutum á borð við fegurðardýrkun þá sem kemur fram í fjölmiðlum nútímans. Hinsvegar hlýtur sú spurning að vakna um þessar mundir hvort upplýsingar um aðbúnað og aðstöðu aldraða hafi ekki eitthvað með málið að gera. Nýlega var gerð opinber stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar um þjón- ustu aldraðra. Þar komu fram tölur á borð við þær að aðeins í 57% tilvika búi aldraðir á hjúkrunarheimilum í einbýli, og að innan við 30% þeirra sem búa á hjúkrunarheimilum hafi sér baðherbergi. Sú staðreynd að þús- undir eldri borgara þurfi að eyða síðustu árum sínum búandi með a.m.k. einum ókunnugum í herbergi getur ekki verið boðleg. Einhvernvegin var það þannig mjög lengi hér á landi að rödd eldri borg- ara var ákaflega lítið áberandi í þjóðfélagsumræðunni. Sem betur fer hefur það breyst síðustu mánuði og misseri. Það er hinsvegar ljóst að fyr- ir þá sem standa í fararbroddi í hagsmunabaráttu þessa fjölmenna hóps er mikið verk óunnið. Stjórnvöld, og í raun íslendingar allir, hafa ekki séð sóma sinn í að byggja upp aðbúnað fyrir elstu borgara landsins sem sómi er að. Nefnt hefur verið að góð viðmiðun sé að ekki eigi að bjóða eldri borgurum upp á hluti sem við myndum ekki bjóða börnum okkar upp á. Sú nálgun á að hluta til rétt á sér, en hinsvegar er önnur sem er mun nærtækari. Stjórnmálamenn og almenningur á einfaldlega að gera ráð fyrir að ná háum aldri og muni með tíð og tíma þurfa að nota þá þjón- ustu sem byggð hefur verið upp. Fæstir eru tilbúnir til að búa með bráð- ókunnugri manneskju í herbergi og samnýta salerni með fjölda annarra í ellinni. Til að koma í veg fyrir það þarf að gera breytingu á aðbúnaðar- málum aldraðra, og sú breyting þarf að hefjast nú þegar. Island hlýtur að hafa efni á að bjóða elstu borgurum landsins upp á áhyggjulaust ævi- kvöld, við góðar aðstæður, sérstaklega um þessar mundir þegar þjóðin gengur í gegn um eitt mesta góðæristímabil í sögunni. Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar: Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur. Aðalsími: 510 3700. Símbréf á fréttadeild: 510.3701. Símbréfá auglýsingadeild: 510.3711. Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðstns. Dreifing: íslandspóstur. 510 3744 blaöiö- 14 I ÁLIT MIÐVÍKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 blaöiö VfÐ ÍSLENbirJGflR. LÁTtWI K0VUR M FilrPSEYjUVl VtVMa KvrwMflSroRFiV. O&KflRlA FrÍPÓIIAMJ? VÍMVAKAl?LM/lVVS- STÓ'PFiV E V >WFVM ADGERfl ALLT WíTT STfllF Hreyfing í borginni Við sjálfstæðismenn getum verið ánægðir með prófkjörið um liðna helgi, en þátttakan í því var með glæsilegasta móti. Auðvitað eru menn misánægðir með niðurstöð- urnar eins og gengur, sjálfsagt í sam- ræmi við gengi „síns manns“, en þó held ég að flestir geti fallist á það að listinn sem eftir stendur sé afar sig- urstranglegur. Breiddin á honum er mikil og ég er ekki í nokkrum vafa um að hann hefur sterka skírskotun til Reykvíkinga. Það er er líka sérstaklega ánægu- legt að fýlgjast með því hversu mjög konur sóttu í sig veðrið, því við sjálf- stæðismenn höfum stundum sætt ámæli fyrir að þeim gangi erfiðlega að komast til áhrifa. En við þurftum ekki að grípa til afarkosta eins og fléttulista eða kynjakvóta til þess að ná þessari niðurstöðu, heldur gáfum við lýðræðinu frið til þess að virka. Fyrir vikið er listinn skipaður okkar mesta hæfileikafólki og það vill svo til að það er jafnræði með kynjunum í þeim hópi. En konurnar á listanum voru ekki kjörnar af því að þær eru konur, heldur af því að þær áttu er- indi, hver og ein á sínum forsendum. Fjöldahreyfing Það eru í sjálfu sér engin ný tíðindi að Sjálfstæðisflokkurinn er langstærsti stjórnmálaflokkurinn á íslandi og það á við í Reykjavík líka. En ég er ekki viss um að allir geri sér grein fyr- ir því hvílík fjöldahreyfing hann er. Þrátt fyrir að andstæðingar flokksins láti stundum sem landsfundir hans séu hreinar hallelúja-samkomur vita þeir, sem fundina hafa sótt, að svo er hreint ekki. Þar er tekist á af hrein- skilni og einurð um rammpólitísk mál, grundvallarstefnu og málefni líðandi stundar. En eftir þá orrahríð ganga menn líka samstíga af fundi, því það er vitaskuld markmiðið með stjórnmálaflokkum að nýta samtaka- mátt fjöldans til þess að koma þeim hugsjónum, sem flokksmenn sam- einast um, í framkvæmd. Þetta endurspeglast ekki síður í prófkjörum eins og þeim, sem haldið var um helgina. Þar tók um einn átt- undi kosningabærra manna í Reykja- Kjartan Magnússon vík þátt í því að velja menn á fram- boðslista flokksins og mér er til efs að önnur eins þátttaka í forvali þekk- ist annars staðar. í slíkri kosningu er áherslan vitaskuld á mennina, en það er ekki eins og málefnin sitji hjá. Nær allir frambjóðendur í prófkjör- inu kynntu sín sérstöku áherslumál og viðhorf og auðvitað huguðu kjós- endur ekki síður að þeim en hversu huggulegir kandídatarnir voru. I aðdraganda prófkjörsins þurftu sjálfstæðismenn í Reykjavík, sem eru um fjórðungur kosningabærra manna í borginni, að skoða hug sinn og taka afstöðu til frambjóðendanna, en fyrst og fremst þurftu þeir að velta því fyrir sér hvernig þeir vildu að Reykjavík yrði og hvernig best mætti tryggja að sú framtíðarsýn kæmist í framkvæmd. Þegar ýtt er við svo stórum hópi með þeim hætti fer ekki hjá því að það smiti út frá sér, að því ógleymdu að í fjölmiðlum blöstu við auglýsingar og umfjöllun um mál- efni borgarinnar. Að hluta skilar slík vakning sér í auknu fylgi flokksins, en ég held að hún skili sér líka í betri umræðu um Reykjavíkurborg, burt- séð frá því hvort menn telja sig stuðn- ingsmenn Sjálfstæðisflokksins eða ekki. Sú umræða skilaði sér svo aftur til okkar frambjóðendanna og ég er ekki í nokkrum vafa að við erum fyr- ir vikið enn hæfari til þess að gegna trúnaðarstöfum fyrir borgarana. Baráttan framundan Öflugur listi og gott gengi í skoðana- könnunum er þó engan veginn allt sem þarf. Það er enn eftir að sigra í vor. Hinir stjórnmálaflokkarnir munu örugglega ekki láta sitt eftir liggja í hugmyndabaráttunni og munu líka tefla fram sínum öflug- ustu mönnum. Hins vegar er ástæða fyrir stuðningsmenn Sjálfstæðis- flokksins til þess að vera bjartsýnir. Helstu merkisberar R-listans heitins keppast nú við að skrifta á opinber- um vettvangi og játa á sig mistök, borgarstjórinn hefur þegar verið skor- aður á hólm af flokksbróður sínum og maður finnur það hvert sem farið er að Reykvíkingar vilja afgerandi breytingu í Ráðhúsinu. Við sjálfstæð- ismenn munum ekki láta okkar eftir liggja og ég veit að það mun hinn al- menni borgari ekki heldur gera. Höfundur er borgarfulltrúi. Klippt & skoríð Asínum tíma þótti Björn Bjarnason (www.bjorn.is) nánast skrýtinn stjórnmála- maður fyrir það að hann skrif- aði reglulega á vefinn. Svavar Gestsson gagnrýndi hann t.d. í ræðustóli á Al- þingi fyrir að vega úrlaunsátri á netinu, líkt og það færi eitthvað leynt! En nú er öldin önnur og það færist í vöxt að pennafærir menn á Alþingi láti um- -r '~* M heiminn njóta þess á net- inu. Þar er fremstur í flokki Össur Skarphéðinsson (oss- ur.hexia.net), semáþessum stað hefur verið réttnefndur ofurbloggari, því hann er sífellt að og skilur formið fullkomlega. Mörður Árnason (www.mordur.is) hefur farið afar vel af stað eins og við var að búast. Sjávar- útvegsráðherrann Einar K. Guðfinnsson (www. ekg.is) hefur síður en svo misst dampinn við upphefð sína í stjórnarráðinu, Ögmundur Jónasson (www.ogmundur.is) sér um vinstri vænginn og Björn Ingi Hrafnsson (www.bjorn- ingi.is) heldur uppi merki framsóknarmanna á þessum vettvangi. Síðan er rétt að minnast á Björgvin G. Sigurðsson (www.bjorgvin.is), sem oft skrifar hér fyrir ofan og er einnig dug- legur bloggari. „StaShæfíngarýmissa íslenzkra kaupsýslu- manna um, að þaB sé ekki hægtað setja starfs- ramma utan um viðskiptasamsteypurnar á tslandi eru einfaldlega rangar. Það erkominn tími til að bæði þingmenn og þjóðin öll átti klipptogskorid@vbl.is sig á því, aö krafan um að setja löggjöf, sem takmarkar umsvifstórra viðskiptasamsteypna er eðlileg krafa, semmundi skapa áþekkar starfsaðstæður hér og gilda í öðrum löndum. Hvenær ætla þingmennirnir að vakna?" Úa forystugrein Morgunblaosins 8.11.2005. Morgunblaðsmenn hætta ekki að brýna stjórnmálamenn til þess að koma böndum á hringamyndun í íslensku viðskiptalffi. En það er annað mál hvort þingheimurvakni. Annars staðar ( sama blaði var frá því greint að nýtt fjöl- miðlafrumvarp væri ekki væntanlegt í bráð. Styrmir þarf því að vera einn vel vakandienn umsinn.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.