blaðið - 09.11.2005, Síða 16

blaðið - 09.11.2005, Síða 16
ié'i heSilí mi mmm MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 blaöiö Söluvœn heimili Dýrar breytingar hafa ekki mikil áhrif á söluverðmœti Það þarf ekki annað en að skipta um borðplötur, flísaleggja á milli skápa og skipta um höldur á skápum í eldri eldhúsinnréttingu til að gjörbreyta eldhúsinu. Það er að mörgu að huga þegar íbúð er sett í sölu. Það eru ekki einungis atriði eins og að velja fasteignasölu og nýtt heimili heldur þarf líka að gera íbúðina eins söluvæna og mögu- legt er. Það borgar sig þó ekki að fjárfesta í miklum breytingum enda skilar það sér sjaldnast í hærra söluverði. Þó er hægt að gera minniháttar breytingar sem kosta lítið en gætu orðið til þess að íbúðin selst hraðar eins og Páll Guðjónsson hjá fasteignasölunni Remax Stjörnunni tjáði Blaðinu. Páll segir að vitanlega fari það eft- ir íbúðinni hvaða brey tingar má gera fyrir sölu en þó séu nokkur almenn atriði sem má fara eftir. „Ibúðin er verðlögð miðað við ástandið sem hún er í á ákveðnum tímapunkti og þá er tekið tillit til alls. Til dæm- is ef flísarnar eru góðar, þó þær séu gamlar þá mælum við ekki með því að fólk skipti um flísar til þess eins að hækka verðgildi íbúðar. Við leggj- um þetta út þannig að í stað þess að fólk flísaleggi eða geri breytingar í samræmi við þeirra stíl, þá er betra að halda íbúðinni eins og hún er og nýir eigendur geta þá sett sinn stíl á íbúðina. Svona framkvæmdir skila sér ekkert endilega í meiri hagnaði því það er kostnaður fólginn í þess- um breytingum og íbúðin þarf ekk- ert endilega að hækka það mikið. Hins vegar gæti það skilað sér í hraðari sölu. Ef allt lítur rosalega vel út og er smekklega gert þá selst íbúð- in hratt og vel.“ Plastparket jafnast á við dúk Parket og flísar virðist vera mjög vin- sælt gólfefni í íbúðir og Páll tekur undir það að það líti betur út. „Það lítur ekki nógu vel út að vera bara með teppi eða dúk á gólfum. Það er eins með parket og plastparket, það er reginmunur þar á. Ef það er plast- parket á öllu þá er það frekar ódýr kostur og er í raun ekkert endilega betra en teppi eða dúkur. Ef það eru teppi í íbúð og eldri innréttingar þá gæti hún verið seinni að seljast," seg- ir Páll og bætir því við að það komi fyrir að fasteignasalar ráðleggi fólki að skipta út teppi eða máli íbúðina fyrir sölu. „Ef íbúðin er máluð í rosalega skærum eða dökkum lit- um þá ráðleggjum við fólki að mála veggina ljósa áður. Kaupendur sjá ekki möguleikana í íbúðinni ef þeir fælast strax í burtu vegna of sterks litar. Það þarf ekki annað en að skipta um borðplötur, flísaleggja á milli skápa og skipta um höldur á skápum í eldri eldhúsinnréttingu til að gjörbreyta eldhúsinu. En það er ekki allra að sjá þetta.“ Fyrsta tilfinningin gerir gæfumuninn Páll segir að þegar íbúðir séu í sölu þá skipti aðkoman gríðarlega miklu máli. „Það má ekkert drasl vera fyr- ir útidyrahurðinni og hún þarf að vera vel með farin. Ef hurðin þarfn- ast yfirhalningar þá þarf að gera það og eins þarf að skipta um brotnar rúður. Það er nauðsynlegt að það sem taki fyrst á móti væntanlegum kaupendum sé flott, eins og and- dyrið og slíkt. Fyrsta tilfinningin gerir gæfumuninn. Afar mikilvægt er að íbúðin taki vel á móti fólki og að það sé hreint. Maður hefur heyrt slík ráð eins og að hafa bökunarilm í íbúðinni en ég tek ekki mikið mark á því. Það er líka nauðsynlegt að hafa heilar perur í öllum stæðum, ef fólk vill kveikja ljós til að skoða betur. Það er afar mikilvægt að það virki allt sem á að virka og eins að setja höldur á skápa ef það vantar. Þessi smáatriði líta svo illa út.“ Uppröðun húsgagna skiptir miklu máli Samkvæmt Páli er mikilvægt að starfsmenn fasteignasölunnar sýni íbúðina sjálfir þar sem þeir geta þá fengið vísbendingar um hvað má betur fara í íbúðinni og jafnvel gert smávægilegar breytingar í samráði við eigendur. „Uppröðun húsgagna getur til dæmis skipt miklu máli. Stofa getur virkað töluvert minni ef í henni er mikið af húsgögnum. Svo skiptir máli hvernig eigandinn segir frá hlutunum og ef hann er að leyna einhverju þá kemur það mjög illa út. Fólk áttar sig á hlutum og finnst jafn- vel eigandinn draga úr þvi eða leyna því. Það hefur mjög slæm áhrif enda getur fólk leitað réttar síns ef eitthvað er að,“ segir Páll að lokum um leið og hann snýr sér aftur að vinnu sinnu þó hann viðurkenni að það sé heldur minna að gera þessa dagana en venjulega. „Þetta er árs- tímabundið. Mér finnst þetta vera þannig að fólk kaupir á haustin til að vera komið inn fyrir jól, á vorin til að vera komin inn fyrir sumarið og fyrir nýja skólaárið." svanhvit@vbl.is Páll Guðjónsson Huggulegir hlutir fyrir heimilið Nú styttist í jólin og margir vilja gera fallegt í kringum sig auk þess að vera sífellt með augun opin fyrir jólagjöfum. Blómaval opnaði nýlega glæsilega verslun að Skútuvogi sem er uppfull af fallegum blómum, jólaskrauti og glæsilegum munum fyrir heimilið. Blaðið skoðaði nokkra hluti sem myndu prýða hvert heimili og henta auk þess sem smekklegar jólagjafir. Stílhreinn og smekklegur ostabakki sem hentar í villt partí, fin boð eða rómantíska kvöldstund. 2.149 krónur. Dökkir og fallegir rammar sem eru einkar heimilislegir og vekja upp minningar um eldri og betri tíma. 2.190 og 2.490 krónur Glæsilegt salt, pipar, olíu og edik sett sem mun prýða eidhúsborðið. 2.399 krónur ASTONISH frábærar umhverfisvænar hreinlætisvörur, góðar fyrir jólahreingerninguna Tómstundahúsið, Nethyl 2, sími 5870600, www.tomstundahusid.is jFRJÁLSl j m \,. r'; rl blaóiö=

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.