blaðið - 09.11.2005, Síða 23

blaðið - 09.11.2005, Síða 23
blaóiö MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 VIÐTALI 23 um á ári enda segir hún stemmning- una allt öðruvísi þar. „Ég fer þrisvar til fjórum sinnum á ári til útlanda að hlaupa og auðvitað tek ég eigin- manninn alltaf með. Mér finnst þetta svo gaman. Svo fór ég að sam- eina þetta, fór til útlanda að hlaupa og ferðaðist um leið. Maður er að sjá allt annað en ferðamaðurinn þegar maður er að hlaupa í gegnum þessi hverfi.“ Bryndís segir að eiginmaður- inn hafi samt ekki smitast af hlaupa- bakteríunni. „Hann fylgist með, tek- ur á móti mér í markinu og svoleiðis. Honum finnst þetta mjög gaman líka. Hann er bíðari,“ segir Bryndís hlægj- andi. Bryndís er til dæmis nýkomin heim frá Bandaríkjunum þar sem hún hljóp tvö maraþon, eins og ekk- ert væri. „Ég er nýkomin frá Minn- eapolis þar sem ég tók tvö hlaup. Ég tók Mount Rushmore hlaupið og svo tók ég maraþon í Sioux City viku seinna." Þar vakti Bryndís aldeilis athygli enda fannst heimamönn- um stórmerkilegt að Islendingur skyldi koma og hlaupa mara- þon þar. Það var því tekið viðtal við Bryndísi í Sio- ux City Journal þar sem kemur fram að Bryndís hafi ferðast hundruð mílna til að hlaupa. Ét of mikið Bryndís segist þó ekki hlaupa 42 kílómetra þegar hún fer sjálf út að skokka, hún geymir þær vegalengdir fyrir maraþonin. „Það tekur stundum á að hlaupa 42 metra, kannski þrjár helgar í röð. En þegar ég geri það þá hleyp ég ekkert á milli, ekki einu sinni út í bíl,“ seg- ir Bryndís með kímni í röddinni en bætir við að hún sé fljót að jafna sig aftur. „Fyrst eftir að ég byrjaði að hlaupa þá breyttist lífsstíllinn eitt- hvað. En núna finnst mér ég bara vera venjuleg. Ég er ekki á sérstöku mataræði en er með mjög lágt kó- lesteról þó ég borði allt sem er á borð- inu. Ég ét frekar of mikið heldur en of lítið. Síðan hleyp ég svo hægt að kaloríurnar ná mér alltaf,“ segir Bryndís hlægjandi. „Ég held að ef ég vildi taka þetta alvarlegar þá myndu þessi kíló fara sem mættu fara en á meðan ég er ekkert að gera í því þá hanga þau bara þarna. Ef maður tek- ur þetta svo alvarlega að maður get- ur varla lifað út af þessu þá er þetta ekki gaman.“ Hljóp í búningum Bryndís hefur helst einbeitt sér að maraþonum í Bandaríkjunum enda eru tæplega fjögurhundruð maraþon þar á ári, einungis á vest- urströndinni. „Ég fór í New York maraþonið árið 1996 og ég reyni að fara ekki í sömu hlaupin tvisvar. Ég held ég sé búin að hlaupa hátt í þrjá- tíu maraþon í Bandaríkjunum og ég er komin upp í 16 fylki. Ég er að spá í að ganga í Fimmtíu-fylkjaklúbbinn sem er sérstakur klúbbur þar sem þú hleypur í öllum ríkjunum,“ segir Bryndís en bætir því við að það sé alltaf skemmtilegast þegar eitthvað þema er í maraþoninu. „Tónlistar- maraþonin eru mjög skemmtileg. Þá eru hljómsveitir sem spila alla leið- ina, þær standa við hlið brautarinn- ar á pöllum. Það er alveg sérstaklega skemmtilegt. Ég hef farið á nokkur svoleiðis í Bandaríkjunum, þar var spiluð rokktónlist og sveitatónlist. Þetta er upplyfting segir Bryndís og hlýnar greinilega um hjartaræt- urnar við minninguna. „Svo hleyp- ur fólk í alls kyns búningum. Ég hljóp í búning í Reykjavík í átta ár, eina manneskjan í heilmaraþoni. Ég saumaði alltaf nýjan búning á ári, hann varð að vera léttur því það er ekki sama hvort þú ert að hlaupa þrjá kílómetra í búning eða 42 kílómetra. Ég var engill, hirð- fífl eða hestur.“ Bryndís vill þó ekki meina að hún hafi vakið athygli með skraut- hv erju I ••C.-JS.T 'r."‘ ' legumklæða- burði.„Mað- ur gleymist þegar mað- ur er einn í heilu kíló- Greinin um Bryndísi sem birtist í Sioux CityJournal maraþoni, einhvers staðar lengst út í bæ. Svo hætti ég að nota búninga, lét þeim sem eru í skemmtiskokkinu það eftir. En í mörg ár var reynt að koma upp svona karnivalsstemmn- ingu í hlaupunum hér, svona svipað og er úti en það hefur ekki tekist. Þetta er ekki nógu mikil hátíð hér heima.“ Ferhægar afstað Þegar Bryndís fer í maraþon þá fer hún alltaf í heilt maraþon enda seg- ir hún að hún sé alveg hætt að fara hálfmaraþon. Að sama skapi segist hún aldrei teygja á eftir maraþon- hlaup. „Ég hita heldur aldrei upp. Ég fer bara aðeins hægar af stað. Þetta er það langur tími sem maður er að hlaupa að ég fer sko ekki að hita upp í hálftíma áður.“ Bryndís segir að hennar hlaup geti jafnvel verið hvatning fyrir aðra sem vilja drífa sig af stað. „Ég held líka að það sé hvatning fyrir aðra að þeir þurfa ekki að vera í einhverju ofboðslega góðu formi til að geta mætt í hlaup fyrir sjálfan sig. Ég ætla samt ekki í fleiri maraþon i haust. Ég ætla bara að einbeita mér að skólanum og próf- unum í desember. Svo er ég að reyna Gjafabox fyrir flest milli himins og jarðar! -wmL Eingöngu sala til fyrirtækja. Opiðfrá kl. 08.00-16.00. Réttarhálsi 2-110 Rvk- Sími: 535-8500- Netfeng: info@llora.is GRÆNN MARKAÐUR Bryndís tekur sig vel út skokkandi í Mývatnshlaupinu í maí. að komast inn í maraþon í Orlando í janúar. Maðúr skráir sig í maraþon- in mörgum mánuðum áður. Ég hef þurft að gráta mig inn af því að það var búið að loka fyrir skráningu.“ Stefni á prestdóm Aðspurð að því af hverju hún valdi guðfræðina segir Bryndís að hún sé trúuð. „Ég er með lifandi trú og ég sæki kirkju. Mér finnst þetta skemmtilegt og ég stefni á að verða prestur, jafnvel doktor. Það tekur fimm ár í háskóla að verða prestur. Námið gengur mjög vel. Þetta er þannig efni að maður þyrfti að hafa betri tíma, til að spá betur í þetta. Það er hægt að kafa undir yfirborð- ið og pæla betur í hlutunum en það kemur á næstu árum, vona ég. Ég er í fullu námi og vinn ekkert með enda er þetta full vinna.“ Bryndís segist þó ekki alltaf hafa viljað læra guðfræði. „Það var ekki fyrr en ég kynntist trúnni sem ég ákvað að fara í guðfræðina. Maðurinn minn fór á námskeið og ég fór að kíkja á þetta með honum. Það endaði með því að við förum í kirkju hvern sunnudag.“ Skokkið breytti lífi mínu Þegar Bryndís er spurð að því hvað- an hún fái kraftinn í að vera svona dugleg segist hún alltaf hafa gert það sem hún hefur áhuga á. „Ég held ég hafi alltaf verið dugleg að gera það sem ég hef áhuga á. Ég hef alltaf haft áhugamál, var lengi vel í Lions klúbbi og það var mikið starf í kringum það. En svo kom að því að maður þurfti að velja þegar mað- ur fór að hafa meira að gera.“ Bryn- dís segir að margt hafi breyst síðan hún byrjaði að skokka. „Mér finnst skokkið hafa breytt lífi mínu. Mér finnst ég í betra formi og ég held að ósjálfrátt hugsi maður öðruvísi. Þó mér finnist það ekki vera þannig að það ráði yfir mér,“ segir Bryndís en viðurkennir þó að hún þurfi að kaupa nýja hlaupaskó fjórum sinn- um á ári. „Ég vona að ég eigi eftir að vera hlaupandi næstu þrjátíu árin. Þegar ég byrjaði þá hvarflaði aldr- ei að mér að ég ætti eftir að hlaupa maraþon. Nú leita ég þau uppi, þvi fleiri því betra. Þetta er náttúrlega viss tegund af bilun,“ segir Bryndís um leið og hún skokkar út í haust- dægrið enda nóg að gera hjá þessari myndarlegu konu. svanhvit@vbl.is Bm meira fyrir enn minna veldu Cítroen Berflingo Van Einstök tilboð á Berlingo van núna í nóvember. Meiri útbúnaður í bíl en áður. Meiri en hjá keppinautunum. Allt innifalið - ekkert vesen. Lægra leiguverð en áður. Hámarkaðu hagkvæmnina. Komdu í Brimborg. Fellanlegt farþegasæti meö boröi og geymslun/mi. Toppluga meö fellanlegri þverslá. .Fullt verö meö vsk. Tilboösverð meévsk Tilboðsverð án vsk Rekstrareiga meðvsk. Rekstrareiga ánvsk. van verðlisti:* Snta 372 1,4i (bensin) 75 hö. 2,0 Hdi (dísil) 90 hö. 300 ■ 1 1.419.000 kr. 1.589.000 kr. 200 1.319.000 kr. 1.489.000 kr. 100 „ll|| 1.059.000 kr. 1.196.000 kr. 0 25.485 kr. 28.548 kr. 20.469 kr. 22.930 kr. Pú færð meira fyrir minna í Berlingo: -Topplúga með fellanlegri þverslá -BurðargetaSOOkg -Prjúþúsund lítra galopnanlegt flutningsrými -Fellanlegtfarþegasæti með borði og geymslurými -Hitiisætum -Fjarstýrðsamlæsing •Fjarstýrð hljómtæki með geislaspilara -Rafknúninn spegill farþegamegin • Rafknúnar rúður 'Hásætisstaöa.gott útsýni •Breiðogþægilegsæti, góöhvíld •Hillafyrirofan bilstióra •Fjöldi geymsluhólfa •Hleösluhuröáhvorrihlið •180° opnun á tvöfaldri afturhurö •Léttvökvastýri með hraðaþyngingu. Sífellt fleiri Islendingarvelia Citroen. Sérstök hönnun, framúrskarandi tækni og mikil eftirspurn á endursölumarkaöi tryggja gæði og hagkvæmni Citroén. Skoðaðu súlumyndina hér til vinstri og þú sérð að fleiri og fleiri Islendingar velia Citroen. Komdu í Brimborg. Upplifðu franska hönnun. Skoðaðu Citroen - ekta franskan munað. imborgar er veruleiki. Bílaframleiðendur og nú oröið kröfur Brimborgar um lægsta verö sem velia Citroén. Kynntu þérgreiðslulgörin. Brimborgar. Komdu á öruggan stað. Veldu Citroén. Við staðgreiðum gamla bílinn veljir þú bíl frá Brimborg.*’ brimborg Öruggur staður til að vera á Brimliorg Reykjavik: Bíldshölða 6, sími 515 7000 Brimborg Aknreyri: Tryoqvabraut 5, símí 462 2700 | Brimborg Reykjanesbæ: Njarðarhraut 3. simi 422 7500 | www.citroen.is U CITROEN * Brimborg og Citroen áskijja sér rétt til að bneyta veröi og búnaði án fyrirvara og að auki er kaupverð háö gengi. Leiga er rekstrarleiga og er miðuö við mánaðariegar greiöslur 136 mánuði sem enj háöar gengi erlendra mynta og vöxtum þeirra. * Smur- og þjónustueftiiiit samkvæmt férli ftamlaðanda og Brimboraar er inniraliö I leigugreiðslu og allt aö 20.000 km. akstur á ári. ** Staögreitt 45 dögum efdr afhendingu nýja bílsins. Nánari upplýsingar veita söluráðgjafar Brimborgar.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.