blaðið - 09.11.2005, Síða 38

blaðið - 09.11.2005, Síða 38
38IFÓLK MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 blaðiö BÍLABORG Um helgina fór Smáborgarinn sem og margir aðrir borgarbúar að þrífa seltuna af bílnum sínum. Hann varð satt best að segja furðu lostinn á þvf sem blasti við honum. Tveir af þremur bílum í kringum hann voru skildir eftir í gangi meðan bíllinn var þveginn og á meðan eigend- urnir dunduðu sér við að spúla bílana menguðu þeir umhverfið. Smáborgarinn horfði hneykslaður á samborgara sína menga loftið og velti fyrir sér hvað þeir fengju út úr því að hafa bílana í gangi. Þeir hafa sennilega ekki einu sinni tekið eftir illu augnaráði frá Smáborgaranum og sennilega bara haldið að hann væri skapvondur. Smáborgarinn býr í miðbæ Reykjavík- ur en eignaðist ekki bíl fyrr en nýlega. Þá hafði hann gefist upp á því að vera bíllaus enda sífellt erfiðara að búa f Reykjavík án þess að eiga bíl. Smáborg- arinn hafði reynt allt til þess að forðast bílaeign en það var sífellt erfiðara því að borgin er hönnuð fyrir bifreiðareigendur. Smáborgarinn skorar á þá sem ekki trúa þessu að ganga frá miðbænum meðfram Hringbrautinni og ÍKringluna. Það erekki skemmtileg upplifun því þar eru n r engir göngustígar og umhverfið engan vegin hannað fyrir fótgangandi manneskjur. Þannig fann Smáborgarinn oft furðulost- ið fólk stara á sig þegar hann reyndi að ganga meðfram Hringbrautinni um leið og vatnið af götunni skvettist á Smá- borgarann þegar bílarnir óku framhjá. Götur Reykjavíkur verða sífellt stærri og Hringbrautin er til dæmis farin að taka á sig þvílíka ómynd að Smáborgarinn fær ónota tilfinningu þegar hann gengur þar framhjá. Smáborgarinn hefur ferðast og búið víða um heim en hvergi annars stað- ar hefur hann séð aðra eins vitleysu eins og hér þar sem vegir hafa tekið yfirhönd- ina. Smáborgaranum finnst Island óneit- anlega farið að svipa til Ameríku á marg- an hátt. Smáralindin er gott dæmi um þetta en að labba þaðan og út á næstu stopplstöð minnir óneitanlega á það sem maður sér í amerísku bíómyndunum þar sem ómögulegt er að fara ferða sinna nema í bifreið. Smáborgarinn hefur líka tekið eftir því þegar hann fer í vinnuna að allir bílarnir í kringum hann voru mannlausir fyrir utan bílstjórana. Smáborgaranum finnst það vera þversögn við tal margra um íslenska náttúrufegurð þegar þeir hinir sömu fara svo út í sjoppu á bflnum sínum sem er f nokkura mínútna fjarlægð. Smáborgar- inn er hræddur um að fallega náttúran verði nefnilega ekki svona stórkostleg innan skamms eftirað margir vinna hörð- um höndum við að eyðileggja hana með óþarfa glannaskap. HVAÐ FINNSTÞÉR? Egill Helgason, sjónvarpsmaður. Hvað finnst þér um ástandið í París? „Afstaða mín til málsins er tvíbent. Ég hef mikla samúð með fólkinu sem býr í þessum útborgum. Þær eru náttúrulega hræðilegar, líkt og svona hverfi í mörgum öðrum borgum. Ég hef hins vegar enga samúð með þeim sem fara um með barsmíðum og kveikja í bílum. Fólkið sem býr í þessum hverfum er alls maklegt, en mér finnst allt í lagi að kalla þá sem að standa fyrir þess- um óeirðum skríl. Við skulum bara gera greinarmun þar á milli. Frakkar hafa hrósað sér mikið fyrir það sem þeir kalla „intégration', eins og það sé eitthvað sér-franskt. Þeir sem hafa verið í Frakklandi vita að það hefur nú ekkert gengið sérstaklega vel og það ríkir mikil tortryggni á milli Frakka og þessa fólks sem er af Norður-afrískum uppruna. Maður finnur fyrir því á nánast hverjum einasta degi. Þetta er auðvitað alveg rosalegur fjöldi fólks sem hefur komið inn í landið á stuttum tíma. Það er engin kynþáttahyggja fólgin í því að segja að það hafi skapast mörg vandamál og að þetta hefði mátt gerast hægar, og með öðrum hætti.“ Steinhissa á aukinni kókaín-neyslu Rod Stewart segist ekki skilja hvers vegna svo margir taki kókaín í dag. „Það var öðruvísi þegar ég var ungur, því þá var það miklu ' n*' hreinna efni. Núna eru dílerar að blanda kókið með salti, þvottaefni eða bara hverju sem þeir kómast í. Áður fyrr var þetta líka mjög sjaldgæft efni, en í dag er hver sem er að taka kókaín“. Rod hefur auðvitað áhyggjur af útbreiðsl- unni eins og hvert annað foreldri hefur, en hann á sex börn og það sjöunda er á leiðinni. Samt segist hann ekki geta predikað, því hann hefur sjálfur notað eitur- lyf. „Það eina sem ég get gert,“ segir Rod, „er að fræða þau eins vel og ég get um skaðsemina. En það var reyndar fótbolti en ekki meðferð sem kom mér sjálfum á beinu brautina. Ég hugsaði með mér: „Ég get ekki djammað eins og brjálaður á laugardagskvöld, því ég er að spila fótbolta á sunnudagsmorguninn. Fótbolti hefur alltaf verið stór hluti af lífi mínu. Ég elska hann og því var þessi lífsstíll einfaldlega ekki fyrir mig”. Brasilískt vax gerði kynlífið betra Eva Longoria segir að við það að fara í brasilíska vaxmeðferð til að fjarlægja hár hafi kynlíf hennar orðið miklu betra. Leikkonan úr sjónvarpsþáttunum „Desperate Housewives" segir að vaxið hafi verið sársaukans virði. „Trúið mér, í fyrsta skipti sem ég fékk mér þessa vax- meðferð ætlaði ég að rjúka út og hætta við þegar sérfræðingurinn var hálfnaður. En hann skipaði mér að setjast aftur svo hann gæti klárað. En svo verður þetta auðveldara, því þeim mun oftar sem þú gerir þetta þeim mun færri hár þarf að fjarlægja. Allar kon- ur ættu að prufa brasilískt vax alla vega einu sinni. Og svo munu þær njóta svo góðs kynlífs eftir á að þær koma aftur og aftur“. Jennifer er ekki grenjuskjóða Jennifer Aniston er hundleið á að vera kölluð grenjuskjóða eftir skilnaðinn við Brad Pitt. I nýlegu viðtali við hana í Vanity Fair kemur fram að leikkonan hafi brotnað niður og grátið á meðan á viðtalinu stóð. En Jennifer slær frá sér og segir í Newsweek: „Ég var leið yfir Vanity Fair-greininni. Það var smástund sem ég varð eitthvað tilfinningarík og það gerðist vegna þess að ég hafði ekki sest niður til að gefa einhverjum viðtal síðan allt þetta vesen hófst. Þetta var í um sekúndu og svo var það búið.“ Jennifer, sem er 36 ára segir að öll blaðaum- fjöllunin og óstaðfest slúður hafi verið erfiður biti að kyngja, sérstaklega þær sem héldu því fram að hún vildi ekki stofna fjölskyldu. Fjögurra ára hjónabandi Brad og Jennifer var opinberlega lokið í síðasta mánuði, en þau skildu að borði ogsængí janúar. Björgvin G. Sigurðsson, alþingismaður: „Menntamálaráherra er einfaldlega á rangri braut. Aðferðin er röng. Vandinn snýr að bekkjarkerfinu og það er annaðhvort eða að leyfa þeim að halda sínum fjórum árum eða breyta þeim í áfangaskóla. Að skera af þeim eitt ár kann ekki góðri lukku að stýra og er eyðiliegging á stúdentsprófinu sem er merkilegt og gott próf.“ www.bjorgvin.is Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra: „Þegar vinstrisinnar, sem ekkert þekkja til innviða Sjálfstæðisflokks- ins, eru fengnir til að segja álit sitt á innri málefnum flokksins, tala þeir líklega af þekkingu og reynslu sinni af öðrum flokkum en Sjálfstæðis- flokknum. Ég veit ekki, hvernig Birgir Guðmundsson aflar sér vitn- eskju um málefni Sjálfstæðisflokks- ins. Hann hefur að minnsta kosti aldrei talað við mig en telur sér þó fært að lýsa einhverjum skoðunum, sem ég á að hafa á mönnum og mál- efnum. Hvaða háskólafræði ætli þetta séu?“ www.biorn.is Sigurbjörn Árni Arngrímsson: „Hins vegar virðist sem nefndin sé ansi Framsóknarlituð. Eftirþví sem ég kemst næst er Jón Óttar Ragnars- son mágur Björns Inga Hrafnsonar aðstoðarmanns forsætisráðherra sem stefnir (óopinberlega) á fyrsta sætið á lista Framsóknarflokksins í borgarstjórnarkosningunum í vor svo fremi sem þeim takist að fá Alfreð til að taka Landsvirkjun- ardúsuna. Valur N. Gunnlaugsson ku vera einn af bestu vinum Björns Inga. Halla Karen Kristjánsdóttir er að ég held dóttir fyrrverandi Fram- sóknarbæjarstóra í Kópavogi og núverandi varabæjarfulltrúi fyrir Framsókn í Mosfellsbæ og eftir því sem ég best veit er Anna Olafsdóttir dóttir fyrrverandi varaþingmanns Framsóknarflokksins. Við þurfum heldur varla mikið hugmyndarflug til að átta okkur á því hvar Sæunn Stefánsdóttir aðstoðarmaður heil- brigðisráðherra stendur í pólitík- inni. Hér hef ég talið upp fimm Framsóknarmenn af níu nefndar- mönnum hvern öðrum óhæfari til að takast á við vandamálið.“ www.vg.is eftir Jim Unger „Systir þín var að eignast enn einn ungann." 1-23 C Jim Ungcr/dlst. by Unltod Modia, 2001 HEYRST HEFUR. Nýja Harry Potter bókin, Harry Potter og Blendingsprins- inn, kemur út í íslenskri þýð- ingu næstkom- andi laugardag og ekki er að efa að hún mun mala gull fyrir bóka- forlagið Bjart. Mikið verður um dýrðir vegna útkomu bókarinn- ar en hátíðahöldin verða samt ekki eins mikil og bókaforlagið hefði óskað. Til stóð að taka á móti Goðafossi með flugelda- sýningu í Sundahöfn þegar skipið kæmi í höfn með full- fermi af bókinni. Flugbjörgun- arsveitin í Reykjavík var búin að skipuleggja sérstaka Harry Potter flugelda sem áttu að samanstanda af galdraljósi og galdragosi. Lögregluyfirvöld voru hins vegar ekki hrifin af hugmyndinni og töldu að þessi Ijósgaldrasýning stefndi farmi og áhöfn í hættu. Þau veittu því ekki leyfi fyrir ljósasýningu og höfðu með því mikla skemmt- un af hinum fjölmörgu Harry Potter aðdáendum þessa lands. ~SS? ^fe ; Kunnugir segja að stuðnings- menn Gísla Marteins í prófkjöriSjálf- stæðisflokks- ins hafi haft yfir að ráða afar fullkomnu tölvukerfi sem gerði úthringingar bæði ein- faldar og þægilegar. Þannig var hægt að flokka fólk í hópa og eft- ir úthringingu var viðkomandi síðan gefin einkunn í kerfinu eftir því hvort hann þótti líkleg- ur til að kjósa eða ekki. Þannig var hægt að hringja aftur í þá sem voru “heitir” kjósendur. Innanbúðarmaður segir að þetta magnaða tölvukerfi hljóti að hafa átt uppruna sinn hjá ein- hverju markaðsfyrirtæki. 'ö r ð u r hÁrnason er ósáttur við heilsíðuauglýs- ingar Stefáns Jóns Hafstein og fjallar um mál- ið á heimasíðu sinni. Fyrirsögnin er: “Þetta gerir maður nú eiginlega ekki, Stefán Jón.” Mörður gefur þar sterklega í skyn að Stefán Jón hafi verið að villa á sér heim- ildir með því að merkja aug- lýsingu sína Samfylkingunni. Mörður segir að skilaboðin verði að vera tær og skýr og vitn- ar í Hallgrím: Jesús vill að þín kenning klár Kröftugsé, hrein ogopinskár, Lík hvellum lúðurs hljómi. Og Mörður heldur áfram: Launsmjaðran öll og hræsnin hál hindrar Guðs dýrð, en villir sál straffast með ströngum dómi Pað er ekki hægt að segja annað en að prófkjörs- slagur Samfylk- ingarinnar fari “vel” af stað!

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.