blaðið - 07.12.2005, Síða 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2005 blaöiö
Kjaramál:
Ekki kjarabót fyrir alla
Eingreiðslan í desember gildir ekkifyrir alla. Lítið við þessu að gera segir forstöðumaður kjarasviðs VR.
Einstaklingar sem skipt hafa um
vinnu á árinu fá ekki fulla kjarabót í
formi eingreiðslu í desember líkt og
kveðið er á um í kjarasamningum.
Mikillar óánægju gætir meðal
þeirra sem eru í þessari stöðu enda
telja þeir að verið sé að refsa þeim
í formi skertra kjarabóta fyrir það
eitt að skipta um starf.
Lítið við þessu að gera
Samkvæmt endurskoðun kjara-
samninga sem samið var um í síð-
asta mánuði fá launþegar um 26 þús-
und króna eingreiðslu í desember
sem lið í kjarabót. Greiðsla þessi
miðast við að starfsmaður hafi
unnið fullar 45 vikur á árinu hjá
sama atvinnurekanda. Hafi starfs-
maður unnið skemur fær hann
aðeins brot af þessari greiðslu en
aldrei minna en 4.500 krónur. Það
er því ljóst að fólk sem hefur skipt
um starf á árinu fær aðeins hluta af
þessari kjaraleiðréttingu í sinn vasa.
Elías Magnússon, forstöðumaður
kjarasviðs Verslunarmannafélags
Reykjavíkur (VR), segir að nokkuð
hafi borið á því að fólk hafi kvartað
undan þessu og talið sig vera að
bera skertan hlut frá borði. Hann
segir lítið við þessu að gera þar sem
ómögulegt sé að búa til kröfu á
vinnuveitanda sem ekki er til staðar
þegar látið er af störfum. „Það
verða alltaf til erfið mál í kringum
svona hluti. Einhvers staðar verður
að skera á línuna og í þetta skiptið
var hún skorin þarna í samræmi við
desember og orlofsuppbót."
Menn koma misvel út
Ólafur Darri Andrason, hagfræð-
ingur Alþýðusambands Islands, er
sammála Elíasi og segir það hafa
verið nánast ómögulegt að halda
í óskipta eingreiðslu handa þeim
sem skiptu um starf á árinu. „Þegar
starfsmaður lætur af störfum á
vinnuveitandi að gera upp við starfs-
Vin mánaöarins er
Stone Cellars
Chardonnay eöa Merlot
TjaCakfjtturinn á aðventunni
LjújfengurjóCamatseðitf
‘Forréttir
Kjúklingalifra parfait með fíkjumauki og rauðvíns gljáa
og reyktur áll með hrærðum eggjum
íMiCCiréttur
Heimalöguð síld með ísköldu ákavíti
}IðaCréttir
Andabringa og foie gras fyllt ravioli með soðgljáa eða
svínalund fyllt með ávöxtum og hnetum
með sveppa ragú og portvínssósu
Œfesert
Crépes Suzette með rum og rúsínu ís
Aðeins 5300,- pr. mann
Borðapantanir í síma 514-6060
Fjalakötturinn - Hótel Reykjavík Centrum
Aðalstræti 16 Reykjavík
Barrtré
I8.0I9 sumarhús
ðventuljós og skreytingar
skur garður í Danmörku
salkgarðurvii Grettlsgötu
arhús draumanna
Jólablaðið er komið í verslanir
Áskrift í síma 586 8005 eða á www.rit.is
mann hvort sem það er ógreitt orlof
eða desemberuppbót. Það væri ill
framkvæmanlegt að reisa launa-
kröfu gagnvart aðila sem er búinn
að gera upp við tiltekinn starfs-
mann. Það var bara ekki talin vera
fær leið.“ Ólafur segir menn að sjálf-
sögðu koma misvel út úr þessu en
við samninga hafi fyrst og fremst
verið horft fram á veg. „Þó við séum
að horfa á verðbólgu sem hefur
orðið til fyrir aftan okkur þá erum
við að horfa fram fyrir okkur þegar
við gerum þetta samkomulag í nóv-
ember. Við hefðum auðvitað getað
hækkað laun frá næstu áramótum,
þess í stað var valin sú leið að búa
til eina eingreiðslu sem að tekur til
launabóta næsta árs og greiða hana
út fyrir jól.“
Þeir sem skiptu um störf á árinu fá ekki
fulla eingreiðslu.
BlaÖiÖ/lngó
Flugstöð Leifs Eiríkssonar:
Framkvæmdir vegna
stækkunar hafnar
Á næstu árum verður norðurbygg-
ing Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar
stækkuð um 16 þúsund fermetra.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdum
ljúki vorið 2007, en þá verður norð-
urbyggingin alls 38.500 fermetrar.
Einnig verða gerðar breytingar og
endurbætur á alls 13 þúsund fer-
metrum í norðurbyggingu. Með
stækkun flugstöðvarinnar er verið
að bregðast við spám um öra fjölgun
farþega um Keflavíkurflugvöll, en
áætlað er að farþegafjöldi árið 2015
verði 3,2 milljónir. Fjöldinn stefnir
í 1,8, milljónir í ár, en þegar hafist
var handa við byggingu flugstöðvar-
innar árið 1983 fóru aðeins 460 þús-
und manns um völlinn á hverju ári.
Rými fyrir verslun og þjónustu við
farþega stækkar mikið, og einnig
verður tekið í notkun nýtt og öflugt
farangursflokkunarkerfi.
10-12 nýjar verslanir
Að breytingum loknum verður öll
2. hæðin lögð undir verslun og þjón-
ustu við farþega, en rýmið ætlað
undir þá starfsemi mun tvöfaldast
og rúmlega það. Á bilinu 10 -12 nýjar
verslanir verða opnaðar, þær fyrstu
vorið 2006, og síðan munu fleiri
bætast við til vors 2007. Áætlað er
að fyrirhugaðar breytingar muni
kosta hátt í 5 milljarða króna að
meðtöldum tækjum og búnaði. Til
dæmis má nefna að nýja farangurs-
flokkunarkerfið kostar um hálfan
milljarð króna. Á næstunni verður
nauðsynlegt að gera nokkrar til-
færingar á starfsemi stöðvarinnar
vegna breytinganna. Unnið verður
markvisst að því í samstarfi við
ístak hf., að framkvæmdirnar valdi
sem allra minnstum óþægindum.
Gjafakörfur matgæðinqsins
>
ék
eilsuhúsið
Skólavörðustíg, Kringlunni & Smáratorgi
J
Kjaramál
Sjúkraliðar
semja
Samningar náðust i fyrrakvöld
milli Sjúkraliðafélags íslands
og Launanefndar sveitarfé-
laganna. Samningarnir eru á
svipuðum nótum og samið var
við ríki og Reykjavíkurborg
á dögunum. í síðustu viku
höfðu þeir sjúkraliðar sem
starfa fyrir utan höfuðborg-
arsvæðið boðað til verkfalls
ef ekki næðist samkomulag
við Launanefnd. Kynning á
samningnum hefst fljótlega og
gert er ráð fyrir því að atkvæða-
greiðslum verði lokið fyrir
16. desember næstkomandi.