blaðið - 07.12.2005, Side 6

blaðið - 07.12.2005, Side 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2005 blaöiö Ábyrgðarsjóður launa: Hesthúsaði tæpar 200 milljönir vegna DV og Fréttablaðsins Á sama tíma var útgáfuréttur Frétta- blaðsins seldur fyrir smámuni. Frumvarp liggur nú fyrir Alþingi um hækkun ábyrgðargjalds til þess að bjarga sjóðnum. Ábyrgðarsjóður launa stendur ekki undir útgjöldum og þarf að hækka ábyrgðargjald af launum um 150% eigi sjóðurinn að verða skuld- laus á næstu árum. Athygli vekur að stór hluti útgjalda sjóðsins er vegna gjaldþrota dagblaðanna Fréttablaðs- ins og DV, en blöðin eru sem kunn- ugt er í fullum rekstri, eftir að nýir eigendur keyptu útgáfuréttinn af þrotabúunum. 640 miljónir króna hafa verið greiddar úr Ábyrgðarsjóði launa það sem af er árinu, mest vegna gjald- þrots útgáfufélags DV. Það er stærsta gjaldþrot sem sjóðurinn hefur þurft að bera til þessa. Alls hefur sjóður- inn greitt 113 miljónir króna vegna DV, en þar af var um helmingurinn greiddur á þessu ári. Áður hafi gjaldþrot útgáfufé- lags Fréttablaðsins verið þyngst á Ábyrgðarsjóði launa. Vegna þess voru greiddar 60 miljónir. Fréttablaðið og DV eru, sem kunn- ugt er, nú í eigu 365 miðla, sem aftur er í eigu Dagsbrúnar (áður Og Fjarskipta). Gunnar Smári beggja vegna borðs Aðkoma Gunnar Smára Egilssonar, framkvæmdastjóra 365 miðla, vekur nokkra athygli í þessu samhengi. Gunnar Smári var ritstjóri Frétta- blaðsins við stofnun þess og síðar einnig rekstrarstjóri, en þegar hall- „Ég hlakka til að takast á við skemmtileg og krefjandi störfá þessu sviði. Ég gefNTV skólanum og kennurum hans toppeinkunn! Að námskeiði loknu á nemandi að geta séð um rekstur minni eða meðalstórra tölvuneta. Námið undirbýr nemendur fyrir próf sem gefur gráðuna: - MCP / Microsoft Certified Professional - Meðal efnis námskeiðsins er: Uppsetningar og uppfærslur í Windows XP, Sjálfvirkar uppsetningar Meðferð vélbúnaðar og rekla, Umsjón með notendum og notendahópum Umsjón með skráarkerfinu og kvótaúthlutun, Aðgangsstýringar í skráar- kerfinu og samnýting gagna , Uppsetning prentara og samnýting þeirra Afritatökur og endurheimt gagna, Stillingar XP við notkun í netkerfum Skipulaggning TCP/IP netkerfa og villuleit, DHCP og DNS í Win 2003 Active Directory í Win 2003 Nokkur sæti laus á kvöldnámskeið sem byrjar 9. janúar Mán. og mið. 18-22 og lau. 8:30-12:30 Byrjar 9. jan. og lýkur 18. feb. ■ UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING í SÍMA 544 4500 OG Á NTV.IS MCP MICRÖSÖn CtRTirifD RROFf SS1ö\‘Al VIÐURKF.NND ÞEKKING VEGUR ÞUNGT í FERILSKRÁNNI! Grétar Gíslason Mtcrosott CERTIFIED - Kerfisfræftingur NTV rVOÁFMlonJt aði undan fæti um mitt ár 2002 stöðvaði hann útgáfu þess, sem var sjálfsagt ekki til þess að bæta fjár- hagsstöðuna. I kjölfarið sigldi i gjald- þrot útgáfufélagsins þar sem kröfur námu ríflega hálfum milljarði króna, en á meðan safnaði Gunnar Smári hlutafé í nýtt útgáfufélag, þar sem síðar kom í ljós að hann var meðal eigenda. Það keypti útgáfurétt Fréttablaðsins á 10 milljónir króna eftir því sem Blaðið kemst næst. Því fylgdi dreifingarkerfi og aðrir inn- viðir, enda Gunnar Smári þaulkunn- ugur öllum rekstarþáttum blaðsins. Á hinn bóginn mátti Ábyrgðarsjóður launa bera ógreidd laun fram að því og fjöldi blaðbera sat eftir með sárt ennið. Rúmu ári síðar urðu rekstrarerf- iðleikar DV útgáfufélagi þess um megn og leystu Hömlur, dótturfélag Landsbankans, sem var stærsti lán- ardrottinn DV, eignir þrotabúsins til sín og seldu áfram til Fréttar, út- gáfufélags Fréttablaðsins. Óljóst er hversu mikið var goldið fyrir útgáfurétt DV og aðrar eignir, en Landsbankinn fékk líðlega 7% hlut í Frétt fyrir. Sem fyrr voru launa- skuldirnar skildar eftir, þannig að þær lentu á Ábyrgðarsjóði launa og eins voru margir blaðberar ósáttir við sinn hlut. Útgjöld Ábyrgðarsjóðs launa á þessu ári eru um 640 miljónir króna og eru horfur á að þau verði ívið minni en í fyrra, þegar sjóðurinn greiddi um 720 miljónir. Hlutverk Ábyrgðarsjóðs launa er að greiða launþegum laun, sem annars tapast við gjaldþrot launa- greiðanda. Tekjur sínar fær sjóður- inn af ábyrgðargjaldi af launum. Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp um hækkun þess þar sem sjóðurinn stendur ekki undir útgjöldum. Fyrir vikið hefur myndast skuld við rík- issjóð sem um áramót var ríflega hálfur miljarður króna. ■ Bylgjan FM9S.7 KissFM Létt Rásl Rás 2 Saga Talstöðin XFM X-ið Uppsöfnuö hlustun (meðaltal virkra daga) nóvember 2005. Útvarpshlustun: Talmálsstöövar vinna mikið á Gallup hefur birt niðurstöður úr útvarps- könnunfyrir nóvember múnuð. Þegar tölurnar eru bornar saman við síðustu könnun kemur í Ijós að talmúlsstöðvarnar vinna lítillega á. Amerísk jólatré netbudir.is Landsins mesta úrval af jólatrjám Bíldshöfóa 18, 110 Reykjavík, Sími 587 1777 Eflitið er á uppsafnaða hlustun (með- altal virkra daga), kemur i ljós að Rás 2 er með mesta hlustun allra útvarps- stöðvanna hér á landi. Hún mælist með 39,3% hlustun en Bylgjan fylgir á eftir með 37,3%. Rás 1 bætir sig mest allra, um 1,7% síðan í júní og er með 31,5%. Þessar þrjár stöðvar eru í nokkrum sérflokki, en næst á eftir kemur FM 95,7 með 16,8% hlustun. Nokkru minni hlustun er svo á hinar stöðvarnar, en Talstöðin mælist með 7,8%, þar á eftir kemur Létt, sem dalar mest allra og mælist með 7,7% en í júníkönnuninni var Létt með 11% hlustun. Á eftir Létt fylgir síðan rokk stöðin XFM með 7,1%. Útvarp saga bætir lítillega við sig frá síðustu könnunum og er með 5,7%, en X-ið, hin rokkstöðin hér á landi mælist með slétt 4%. Þar á eftir kemur svo Kiss FM en hlustun á þá stöð er um 3,9%. Munur á milli kynja Ef frá er talin FM 95,7 má sjá að tal- málsstöðvarnar hafa sótt í sig veðrið lítillega, á kostnað stöðva þar sem tónlistin ræður ríkjum. Nokkuð dregur úr útvarpshlustun urn helgar, og lækka allar stöðvarnar þegar litið er til uppsafnaðrar meðaltals- hlustunar á laugardögum og sunnu- dögum. Það er einnig nokkuð ljóst að kynin eru ekki að hlusta á sömu stöðvarnar. Sem dæmi má nefna að ef aðeins er litið til karla mælist XFM með 12.2%, en aðeins 1,6% á meðal kvenna. Hins vegar mælist Létt með 11,6% á meðal kvenna, en aðeins 3,9% á meðal karla. ■ Ekki missa af endurgreiðslu! Fjölskyldan Meö því aö skrá fjölskylduna fyrir áramót gætiröu tryggt þér og þínum endurgreiðslu þessa árs! Fjölskyldan hjá SPRON er sérstök þjónustuleið ætluð fjölskyldum af öllum stærðum og gerðum, jafnt sem einstaklingum. Fjölskylduþjónustan er án endurgjalds og stuðlar að fjárhagslegum ávinningi fjölskyldunnar sem heildar, bæði í formi endurgreiðslu og fríðinda. Þeir sem eru skráðir í fjölskylduþjónustu SPRON geta bætt kjör sín enn frekar. Skráning í síma 550 1200, hjá þjónustuveri í síma 550 1400, á www.spron.is eða í næsta útibúi SPRON. * 'snran " — ■fvrir allt Qf - fyrir allt sem þú ert

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.