blaðið - 07.12.2005, Side 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2005 blaöiö
Flugvél hrapar á íbúðablokk
Að minnsta kosti 119 fórustþegarflugvél lenti á íbúðablokk í Teheran ígær. Allir um borð
fórust aukfólks ájörðu niðri. Tœknileg vandamál eru talin hafa ollið slysinu. Flugöryggis-
málum er mjög ábótavant í íran.
Að minnsta kosti 119 fórust þegar C-
130 herflugvél flaug á tíu hæða íbúða-
blokk ( Teheran, höfuðborg írans, í
gær. Borgarstjóri Teheran sagði að
allir um borð, alls 94, hefðu farist
og útvarpsstöð í borginni greindi
frá því að 25 manns á jörðu niðri
hefðu látið lífið. Lögregla óttaðist
Opnunartími í
desember
1.-22. desember 10-20
23. desember 10-22
24. desember 10-12
Nýbýlavegi 12
200 Kópavogi
Sími 554 4433
INNHEIMTUSTOFNUN SVEITARFÉLAGA
Lágmúla 9 -108 Reykjavík - Kt. 530372 0229 - www.medlag.is
Banki 0111 - 26 - 504700 - Sími 590 7100 - Fax 590 7101
DeLay fyrir rett
Ákærum fyrir samsœri vísað frá en kæran fyrir peninga-
þvætti stendur. Áfall fyrir DeLay sem hafði vonast til að
geta endurheimt stöðu sína
þingi.
Dómari í Texas hefur úrskurðað að
Tom DeLay, þingmanni Repúblik-
ana, beri að koma fyrir rétt vegna
ákæru fyrir peningaþvætti en vís-
aði frá ákæru á hendur honum fyrir
samsæri. Úrskurðurinn er visst áfall
fyrir þingmanninn sem hafði vonast
til þess að dómarinn myndi ógilda
allar ákærur á hendur honum til
þess að hann gæti endurheimt stöðu
sína sem leiðtogi meirihluta Repú-
blikana á Bandaríkjaþingi þegar
þing kemur saman á ný í janúar.
DeLay sem er náinn bandamaður
George Bush, forseta, neyddist til
að segja af sér þeirri stöðu eftir að
hann var formlega ákærður fyrir að
hafa brotið lög um fjármögnun kosn-
ingabaráttu í september.
sem leiðtogi Repúblikana á
Cheney sýnir stuðning við DeLay
Þrátt fyrir að verjendur DeLay hafi
farið fram á að réttarhöldum verði
hraðað hefur Pat Priest, dómari,
sagt að engar yfirheyrslur fari fram
fyrr en að loknu 15 daga áfrýjunar-
tímabili og hann býst ekki við að
ákveða dagsetningu réttarhaldanna
fyrir árslok.
Ákvörðun dómara um að ógilda
ákærurnar var tilkynnt fáeinum
klukkustundum áður en Dick
Cheney, varaforseti, átti að halda
ræðu á fjáröflunarsamkomu fyrir
DeLay í Houston en það þykir vera
afdráttarlaus stuðningsyfirlýsing
við DeLay sem staðið hefur í ströngu
vegna málsins að undanförnu.
MEÐLAGSGREIÐENDUR!
að mun fleiri hefðu farist. Mikil
sprenging varð við slysið og eldur
braust út í húsinu. Slökkviliðsmenn
unnu að því að bjarga fólki sem var
innlyksa í byggingunni sem er í fjöl-
mennu íbúðahverfi í borginni. Flug-
. vélabrak lá á víð og dreif í nágrenni
byggingarinnar.
Ríkissjónvarpið í Iran sagði að
tæknilegir örðugleikar hefðu komið
upp í vélinni stuttu eftir að hún tók
á loft á Mehrabad-flugvellinum. Öll
sjúkrahús í borginni voru sett í við-
bragðsstöðu til að geta tekið á móti
slösuðu fólki.
Slæmt skyggni var í Teheran
sökum mengunar um það leyti sem
slysið átti sér stað en ekki er vitað
hvort það hafi átt þátt í slysinu. Vélin
var á leið frá Teheran til Bandar
Abbas í suðvesturhluta landsins. Á
meðal farþega á að hafa verið hópur
blaðamanna sem ætluðu að fjalla
um heræfingar sem áttu að fara
fram í borginni.
Flugöryggismál í óiestri
Talið er að flugher Irans hafi yfir að
ráða um 15 bandarískum herflutn-
Ibúar í Teheran fylgjast með björgunarstörfum viö íbúðablokkina sem herflugvél flaug
á í gær.
ingavélum af gerðinni C-130 sem af gerðinni Ilyushin-76 hrapaði í
keyptar voru fyrir byltinguna 1979 suðausturhluta landsins. Embættis-
og viðskiptabann Bandaríkjanna á menn hafa kennt skorti á vara-
landið. Þá þykir flugöryggismálum hlutum vegna viðskiptabannsins
vera ábótavant í landinu. Árið 2003 um fjölda flugslysa.
fórust 276 hermenn þegar flugvél
Tvœr konur sprengja sig í loft upp í lögregluskóla:
Tæplega þrjátíu
farast í Bagdad
Meðlagsgreiðendur, vinsamlega
gerið skil hið fyrsta og forðist
vexti og kostnað
Að minnsta kosti 27 manns fórust
og 32 slösuðust þegar tvær konur
sprengdu sig í loft upp í lögreglu-
skóla í Bagdad í gær. Bandarískir
hermenn flýttu sér á vettvang til-
ræðisins til að veita aðstoð en eng-
inn úr röðum þeirra féll eða særðist
í árásinni.
Lögregla segir að önnur sprengjan
hafi sprungið í matsal en hin á
meðan á nafnakalli stóð. Fulltrúi
lögreglu telur að konurnar hafi
verið nemendur í skólanum og því
hafi ekki verið leitað á þeim. Fimm
aðrar lögreglukonur voru á meðal
hinna föllnu.
Uppreisnarmenn í írak hafa lagt
megináherslu á árásir gegn íröskum
öryggissveitum. Árásin í gær var
sú mannskæðasta gegn íröskum
sveitum síðan 125 féllu í Hillah í lok
febrúar.
Donald H. Rumsfeld, varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna
Maður situr við rúm sonar síns sem slasaðist illa í sprengingu í lögregiuskóla í Bagdad
i gær.
viðurkenndi á mánudag að aðgerðir einkum beint sjónum sínum að
uppreisnarmanna í írak hefðu verið auknu mannfalli í stríðinu í stað
öflugri en ráð hefði verið fyrir gert þeirra framfara sem náðst hefðu.
en bætti við að fjölmiðlar hefðu
Fyrrverandi varaforseti
Suður Afríku ákœrður
á ný:
Zuma
ákærður
fyrir nauðgun
Jacob Zuma, fyrrverandi
varaforseti Suður Afríku, var
ákærður fyrir nauðgun í gær.
Stjórnmálaskýrendur telja að
með þessu hafi vonir hans um
að verða næsti forseti landsins
að engu orðið. Zuma var látinn
laus gegn tryggingu en gert er
ráð fyrir að málið verði tekið
fyrir þann 13. febrúar. Zuma
bíður einnig réttarhalda vegna
spillingarmála en fyrrverandi
fjármálaráðgjafi hans hefur
þegar verið sakfelldur fyrir
íjársvik. Hann segist vera
saklaus af báðum ákærum.
Mestu innanflokksátök
í rúman áratug
Þó að Zuma hafi notið vin-
sælda á meðal félaga Afríska
þjóðarráðsins telja stjórnmála-
skýrendur að ákærur gegn
honum um nauðgun muni
án efa þagga niður í þeim
sem hafa talið hann vera
fórnarlamb pólitísks samsæris.
Framkvæmdastjóri Afríska
þjóðarráðsins lýsti því yfir á
dögunum að flokkurinn liti
ásakanir á hendur Zuma um
nauðgun mjög alvarlegum
augum en ekkert yrði þó
aðhafst á meðan yfirvöld
rannsökuðu málið. Brottrekstur
hans úr embætti varaforseta
leiddi til einhverra alvarlegustu
átaka innan flokksins síðan
hann komst til valda árið 1994.
Thabo Mbeki, forseti Suður
Afríku, rak Zuma í júní eftir
að Schabir Shaik, fyrrverandi
íjármálaráðgjafi hans, var
sakfelldur fyrir spillingu og
fjársvik. Sem varaforseti var
Zuma talinn líklegur til að
taka við af Mbeki effir forseta-
kosningar árið 2009 en nú er
talið ólíklegt að af þvf verði.
ETA vill
tilslakanir
stjórnvalda
Aðskilnaðarsamtök baska
(ETA) munu ekki lýsa yfir
vopnahléi fyrr en spænsk og
frönsk yfirvöld gera tilslakanir
samkvæmt frétt dagblaðsins
E1 Correo. Spænska stjórnin
lýsti því yfir í vor að hún
myndi taka upp viðræður
við samtökin gegn því að
þau legðu niður vopn. ETA
vill aftur á móti að spænskar
og franskar öryggissveitir
láti af aðgerðum gegn bask-
neskum aðskilnaðarsinnum.
ETA tilkynnti í júní að sam-
tökin myndu láta af árásum
á stjórnmálamenn og hefur
ítrekað farið fram á viðræður
við stjórnvöld. Tilkynningin
gaf vangaveltum um að algert
vopnahíé kunni að vera á næsta
leiti byr undir báða vængi.
E1 Correo sem er gefið út í
Baskahéruðum sagði í gær að
ETA hafi sett sem skilyrði fyrir
varanlegu vopnahléi að réttur
þeirra til sjálfsstjórnar yrði
viðurkenndur. Samtökin sem
hafa barist fyrir sjálfstæðu ríki
baska í norðurhluta Spánar
og suðvesturhluta Frakklands
hafa haldið sprengjuárásum
áfram en ekki orðið neinum
að bana síðan í maí 2003.