blaðið - 07.12.2005, Qupperneq 12
12 I FERÐALÖG
MIÐVIKUDAGUR 7. DESEMBER 2005 blaAÍÖ
Jólaaiöf veiðimannsins!
Utanlandsdeild Ferðaþjónustu bænda
Sérhœfðar hópferðir
á œvintýralega staði
Undir dyggri leiðsögn fagmanna
Ferðaþjónusta bænda er rót-
gróið fyrirtæki í eigu ferðaþjón-
ustubænda sem flestir þekkja.
Ferðaþjónustan býður upp á
bændagistingar, sveitahótel,
sumarhús, heimagistingar og
afþreyingu af ýmsu tagi. Fyrir-
tækið er vel þekkt hér á landi
enda rekur það í dag um 150
ferðaþjónustubæi með gisti-
rými fyrir um 4.000 manns
sem dreifast um allt land. Færri
vita þó að þetta gamalkunna
fyrirtæki hóf fyrir örfáum
árum að bjóða upp á spennandi
ferðir til útlanda fyrir fólk á
öllum aldri. Utanlandsdeildin
var sett á laggirnar árið 2003
vegna þess að fyrirtækið taldi
sig „standa á traustum grunni
og var því ákveðið að auka
þjónustuna."
Fara út um alla Evrópu
Hugrún Hannesdóttir, sölustjóri
utanlandsdeildar Ferðaþjón-
ustu bænda, segir að fyrirtækið
bjóði upp á þrjár vörulínur. „Við
erum fyrst og fremst með Bænda-
ferðir Agnars Guðnasonar sem
hann hefur byggt upp frá 1966.
Hann sameinaðist okkur síðan
árið 2004 en þá var búið að reka
utanlandsdeildina í rúmlega eitt
ár. Bændaferðirnar eru okkar
stærsta vörulína og þær ferðir
hafa skapað sér sess hjá mörgum
íslendingum. Þær heita náttúru-
lega bændaferðir, en það hefur
margt breyst við þær, nema auð-
vitað nafnið. Til dæmis eru um
90% af okkar farþegum úr þétt-
býli,“ segir Hugrún og bætir við
að í bæklingi bændaferðanna séu
22 ferðir en ekki sé óalgengt að þau
séu að bæta við ferðum. Hugrún
segir að þetta séu fyrst og fremst
rútuferðir frá tilteknum áfanga-
stöðum þar sem að farastjóri er
innan handar sem heldur utan
um hópinn og er með honum frá
byrjun til enda. „Það er kannski
það sem skiptir mestu máli. Fólk
þarf mjög lítið að sjá um hlutina
sjálft nema að það vilji það. Fólk
getur fengið aðstoð við það sem
það vill.“
Hugrún segir að þessar bænda-
ferðir séu farnar um alla Evrópu
auk þess sem Agnar Guðnason
hafi verið með tvær ferðir til Kan-
ada árlega, aðra í Klettafjöllin
Veiðikortið 2006
Meðal áfangastaða utanlandsdeildar Ferðaþjónustu bænda eru hin mikilfenglegu Klettafjöll í Kanada.
Kortið gildir sem veiöileyfi
í 23 veiðivötn vítt og breitt
um landið. Veiðikortið er
fjölskylduvænt og stuölar
að notalegri útiveru.
Ný vötn eru:
- Þingvallavatn fyrir landi
þjóðgarös
- Ljósavatn
- Hraunsfjörður
Nánari upplýsingar um önnur
vötn eru á vef Veiöikortsins
www.veidikortid.is
Gefðu gleðilegt sumar í jólagjöf!
Sölustaöir: ESSO stöövarnar - veiðibúðir og víðar
Frí heimsending á netpöntunum - www.veidikortid.is
Cssoj
og hina á íslendingaslóðir. „Auk
þess erum við með mikið af sér-
hópum eins og kóra, kvennfélög
og félög eldri borgara sem fara í
þessar ferðir"
Fara sínar eigin leiðir
Auk þessara bændaferða er einnig
boðið upp á sérferðir en bæk-
lingur með þeim er væntanlegur
í janúar. „Það eru svona öðruvísi
ferðir. Við erum til dæmis að fara
með í ferð til Kína, Egyptalands
og Kaliforníu þar sem mikið er
innifalið. Þetta eru svona stórar
ferðir eins og við köllum það og
auðvitað undir leiðsögn. Allar
ferðir okkar eru undir leiðsögn,“
segir Hugrún. Hún tekur einnig
fram að Ferðaþjónusta bænda
bjóði einvörðungu upp á hóp-
ferðir á erlenda grundu, ekki
einstaklingsferðir. „Við reynum
að fara okkar eigin leiðir í þessu
(samvinnu við dönsk samtök
Ferð.is er í samvinnu við samtök sem
kalla sig Ticket2Travel en þau eru
regnhlífarsamtök yfir 50 danskra
ferðaskifstofa. Á ferð.is segir að það
samstarf geri það að verkum að við-
skiptavinurinn njóti ákveðinna for-
réttinda sem hann gerir vanalega
ekki. Það er til dæmis hægt að bóka
ferðir til 4.500 borga um allan heim
í gegum síðuna vegna þessa sam-
starfs. Mikið úrval er í boði af hót-
elum á sérlega lágu verði og tenglar
á bílaleigur hjá viðurkenndum fag-
aðilum sömuleiðis á góðu verði. A
heimasíðunni býðst möguleiki á
því að setja þína eigin draumaferð
saman eftir eigin höfði á þann hátt
sem hentar hverjum og einum best.
Búdapest er ein þeirra borga sem hægt er afi bóka sig til I gegnum ferö.is.
Þá kemur fram að fyrirtækið hreyki
sér af faglegri og persónulegri ráð-
gjöf og þegar viðskiptavinurinn
hefur lagt fram pöntun sína þá fara
viðeigandi ferðaskrifstofur yfir allar
bókanir til að athuga hvort að allt sé
ekki í lagi. Síðan er haft samband
við viðskiptavininn annað hvort sím-
leiðis eða með tölvupósti og honum
tilkynnt um ferðatilhögunina. Allar
frekari upplýsingar er að finna á
www.ferd.is.
og ekki troða öðrum um tær. Við
erum með opinbera stefnu um
það að við seljum ekki sólarlanda-
ferðir sem dæmi. Þannig að við
höldum okkur dálítið við þessar
ferðir og sköpum okkur þannig
sérstöðu á markaðnum.“
Þriðja vörulína þeirra er að
sögn Hugrúnar svokallaðar inn-
anhúss-hreyfiferðir undir dyggri
fararstjórn fagmanna. „Það eru
skíðaferðir, gönguskíðaferðir,
gönguferðir og hjólaferðir sem
dæmi. Við verðum til dæmis
með ferð í maraþonhlaup á Kína-
múrnum í vor,“ segir Hugrún að
lokum. Allar frekari upplýsingar
er hægt að nálgast á heimasíðu
Utanlandsdeildar Ferðþjónustu
bænda á www.baendaferdir.is.
Hœgt að bóka ferðir
til 4.500 borga
Á netinu er heimasíða starfrækt
undir heitinu ferð.is. Samkvæmt
heimasíðunni er um að ræða ferða-
skrifstofu sem staðsett er á veraldar
vefnum og býður upp á ferðir i
gegnum þann miðil. Á bak við
stendur hins vegar „venjuleg ferða-
skrifstofa, með mikla reynslu í að
selja og bjóða upp á ferðir um allan
heim.“ Fyrirtækið skipuleggur
einstaklingsferðir, hópferðir og sér-
ferðir um allan heim og er hægt að
bóka jafnt flugmiða, hótelgistingu,
bílaleigubíla og ferðatryggingar á
heimasíðu fyrirtækisins.