blaðið - 07.01.2006, Qupperneq 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 2006 blaftió
Ekkja eins námaverkamannsins sem lést í námuslysinu í Virginíu.
Námuslysið í Virginíu:
Dóu með reisn
Ariel Sharon:
Berst fyrir lífi sínu
Palestínskir mótmælendur brenna mynd af Ariel Sharon í bænum Bilin viö Vesturbakk-
ann f gær.
Bréf eins námuverkamannsins sem
lét lífið í námaslysinu í Virgíníu
fyrr í vikunni hefur vakið mikla
athygli. Maðurinn, sem hét Martin
Toler Jr„ sat og skrifaði skilaboð til
fjölskyldu sinnar með „óskýrum
stöfum“meðan lífið fjaraði út vegna
súrefnisskorts. 1 bréfinu bað Martin
fyrir kveðju til ástvina sinn en orð-
rétt stóð í bréfinu: „Þetta var ekki
slæmt. Ég fór bara að sofa. Ég elska
ykkur”.
Frændi mannsins, Randy Tolver,
tjáði sig um bréfið í gær. Hann sagði
það skoðun sína að með bréfinu hafi
Marin viljað róa ættingja sína og
sýna fram á að hann hafi ekki kval-
ist í dauðastríði sínu.
„Ég held að Guð hafi veitt honum
frið undir lokin”, sagði Randy
ennfremur.
Berstfyrirlífisínu
Bréfið var opinberað sama dag og
Randal McCloy, sá eini sem lifði
dvölina i námunni af, gekkst undir
meðferð þar sem þess var freistað að
vekja hann af dái sem hann liggur
í. Læknar óttast að hann hafi hlotið
miklar heilaskemmdir af því að sitja
í 42 klukkustundir í menguninni og
súrefnisskortinum í Sago námunni.
Læknum tókst í gær að stoppa
heilablæðingu hjá Ariel Sharon í
neyðaraðgerð sem framkvæmd var
af læknum í Israel. Ástand Sharons
er ennþá talið mjög alvarlegt, en þrír
dagar eru nú frá þvi að hann fékk
mikla heilablæðingu.
„Við aðgerðina náðum við að
stöðva alla blæðingu” sagði Mor-Yo-
sef, yfirmaður spítalans þar sem
Sharon dvelur nú eftir að fimm tíma
langri neyðaraðgerð lauk. Hann
sagði ennfremur að mynd af heila
forsætisráðherrans sýndi „miklar
framfarir” miðað við fyrri myndir.
Ariel Sharon, sem er 77 ára gamall,
er ennþá haldið sofandi en ástand
hans var í gærkvöldi sagt alvarlegt
en stöðugt. Læknar hafa sagt að
heilablóðfallið sem Sharon fékk
hafi valdið nokkrum skemmdum í
heila hans. Ennfremur hafa læknar
haldið því fram að ástand Sharons
sé það alvarlegt að hann sé að hluta
til lamaður og einnig að blæðingin
muni hafa áhrif á það hvernig hann
muni tala í framtíðinni.
Löngum ferli lokið
Það þykir alveg ljóst að þó að Sharon
lifi hin alvarlegu veikindi af er
pólitískum ferli hans lokið. Sharon
varð leiðtogi Likud-bandalags-
ins eftir að Benjamin Netanyahu
beið ósigur í kosningum árið 1999.
Hann vann síðan afgerandi sigur
í kosningum árið 2001 og varð þá
forsætisráðherra.
Það er Ehud Olmert sem taka
mun við sem forsætisráðherra ísra-
els til bráðabirgða. Hann hefur lengi
verið einn nánasti samstarfsmaður
Sharons og jafnvel er gert ráð fyrir
að hann verði kosinn eftirmaður
hans. Um hann hefur verið sagt að
hann njóti virðingar en ekki vin-
sælda. Ástæðan er meðal annars
rakin til þess að hann skortir þá per-
sónutöfra sem Sharon hafði.
Flokkur Sharons, Kadima, hefur
ekki tapað fylgi þrátt fyrir veikindi
Sharons. Það þýðir að flokkurinn
gæti unnið væntanlegar þingkosn-
ingar í landinu þrátt fyrir að Sharon
fari ekki fyrir flokknum. Sam-
kvæmt ný gerðri skoðanakönnum
fengi flokkurinn um 40 sæti á ísra-
elska þinginu, en þar eru 120 þing-
sæti. Þrátt fyrir vinsældir Sharon
meðal ísraelsmanna er hann langt
í frá vinsæll meðal Palestínumanna,
sem margir hverjir flykktustu út á
götur í gær til að fagna veikindum
Sharons. ■
Nokkrir góðir á Laugaveginurn
01
árg. 02 ek. 78.000
árg. 04 ek. 22.000
árg. 04 ek. 23.000
árg. 04 ek. 20.000
ider Comfort 2,4 sjálfsk.
000 kr.
einsk
arg. 05 ek. 12.000
verðnB
árg. 02 ek. 63.000
verð nRTÍAUU
arg. 04 ek. 32.000
árg. 02 ek. 73.000
verðsl
Opið manudaga til föstudaga 10-18 • Laugardaga 12-16
Laugavegi 174 sími 590 5000 Kletlhálsi11 sími 590 5040 www.hilathing.is
www.bilathing.is
HEKLA bilathing@hekla.is
BÍLAÞING HEKLU
Niínicr eill i noliuhnn bíliiin