blaðið - 07.01.2006, Blaðsíða 12
12 I ERLENDAR FRÉTTXR
LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 2006 blaAÍð
Við seljum bilana
www.bilamarkadurinn.is
' -SclamanlíeieUcniMM,
«6S-XáOumm
'■* c cc7 1 onn
Asía:
Miklir kuldar
Bretland:
Krefjast af-
sagnar Charles
Kennedy
Háværar raddir eru nú uppi um
að leiðtogi frjálsra demókrata í
bretlandi, Charles Kennedy, segi af
sér, eftir að hann gekkst við því að
eiga við alvarlegan áfengisvanda
að stríða. Kennedy hefur að und-
anförnu verið í áfengismeðferð og
tilkynnti að hann teldi að vandinn
,væri að mestu leystur” eins og hann
komst að orði. Félagi hans í frjálsa
demókrataflokknum, Chris Davies,
er þessu ekki sammála.
„Hann er eins og dauður maður á
ferð. Charles Kennedy þarf að horf-
ast í augu við að maður sem viður-
kennir að eiga við áfengisvanda að
stríða er ekki það sama og maður
sem tekist hefur á við vanda sinn”.
f könnun sem gerð var í bresku
dagblaði í gær kom í ljós að 16 af
23 flokksfélögum Kennedy vilja að
hann segi af sér embætti. ■
Að minnsta kosti 57 einstaklingar
hafa látið lífið í mestu snjókomu í
Japan í manna minnum. Snjórinn
er fjögurra metra þykkur þar sem
mestu hefur snjóað og hafa hús gefið
sig undan snjóþunganum. Einnig
hafa nokkrir látið lífið þegar þeir
hafa dottið fram af þökum húsa við
snjómokstur. Mikið öngþveiti hefur
myndast vegna snjókomunnar, sem
hefur meðal annars valdið miklum
truflunum á samgöngum, bæði
bílaumferð og umferð járnbrauta
sem stöðvast hafa á sporum sínum.
Miklar vetrarhörkur eru enn-
fremur í Kína, þar sem frost hefur
farið upp í rúmlega 40 gráður.
Hundruð þúsund Kínverja voru
fluttir í skjól frá kuldanum í Xinji-
ang í vesturhluta Kína í gær. Mikil
snjókoma fylgir kuldunum í hérað-
inu, sem og í nágrannahéruðum.
Þar hafa vegir lokast og flug aflagst.
Þetta eru taldar mestu vetrarhörkur
í Kína í rúma tvo áratugi. ■
Stjórnmál:
Blair ekki á leið út
úr stjórnmálum
Vill sjá umbótaáform verða að veruleika og að Gordon Brown taki við
Miklar vetrarhörkur eru nú í Asíu. Frost
komst upp í 43 gráður f sumum héruðum
Kfna í gær.
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands segist ekki vera á leið út úr
embætti. Hann vilji ekki kveðja
formannsstól Verkamannaflokks-
ins fyrr en umbótaáform sín verði
að veruleika. Þessu lýsti hann yfir
í viðtali við breska blaðið The Sun
sem birt var í gær. Það vekur ekki
síður athygli að í viðtalinu segir
Blair að sá einstaklingur sem hann
vilji helst sjá taka við af sér sem for-
maður flokksins sé Gordon Brown,
fjármálaráðherra. Þetta er lang
afdráttarlausasta stuðningsyfirlýs-
ingin sem Blair hefur veitt Brown.
Stjórnmálaskýrendur eru sammála
um að enginn geti skákað Brown í
baráttunni um það hver verður eftir-
maður Blair og því kom yfirlýsingin
ekki á óvart.
Blair sterkur
í maí síðastliðnum vann Verka-
mannaflokkur Tony Blair sinn
þriðja kosningasigur í röð. Það er
hins vegar á brattann að sækja fyrir
flokkinn, þvi nýr leiðtogi stjórn-
arandstöðunnar, David Cameron
þykir harður í horn að taka og hefur
þegar aflaðs sér mikils fylgis. Verka-
mannaflokkurinn hefur nokkrar
áhyggjur af brotthvarfi Blair því
nýjar kannanir sýna að með
Brown í leiðtogasætinu muni hann
tapa fyrir íhaldsflokknum með 5%
mun, en ef Blair er við stýrið hefur
flokkurinn ennþá meira fylgi.
Kosningar 2009
Blair hefur þegar gefið það út að
hann muni ekki sækjast eftir endur-
kjöri í embætti forsætisráðherra.
Hann þarf þó ekki að hafa áhyggjur
af því að verða atvinnulaus alveg
á næstunni því hann þarf ekki að
boða til kosninga fyrr en árið 2009
þó hann geti vissulega gert það fyrr
ef sú staða kemur upp. Miðað við
yfirlýsingu hans í gær minnka líkur
á því ennþá frekar. Blair var þegar
ennfremur búinn að gefa það út að
hann myndi ekki hlaupast úr emb-
ætti strax eftir kosningar og ljóst er
af orðum hans í gær að hann mun
standa við þau orð sín. ■
Með Tony Blair við stjórvölinn er staða
Verkamannaflokksins í Bretlandi sterk.
STANGAVE IDIM 3-^KT
m
Okkar árlega flugukastkennsla í TBR húsinu
Gnoðavogi 1 hefst 8.janúarklukkan 20:00.
Kennt verður 8., 15., 22. og 29. janúar.
Við leggjum til stangir. Skráning á staðnum gegn greiðslu
(ekki kort). Mætið tímanlega. Munið eftir inniskóm.
Verð krónur 8.000 en krónur 7.000 til félagsmanna gegn
framvísun gilds félagsskírteinis.
Upplýsingar veita Gísli í síma 894-2865
Svavar í síma 896-7085
KKR, SVFR og SVH
Indónesía:
Yfir tvö hundruð
Fjölmargir björgunarmenn héldu
í gær áfram leit að fórnarlömbum
mikilla aurskriða sem féllu í land-
inu fyrr í vikunni. Ennfremur voru
hjálpargögn send með þyrlum til
nokkurra þorpa sem lokuðust af í
skriðuföllunum. Yfirvöld í landinu
hafa gefið upp að um 120 hafi farist í
skriðunum en óttast er að sú tala sé
mun hærri. Alþjóðlegar fréttastofur
sögðu frá því í gær að tala látinna
væri þegar komin langt upp fyrir
það, eða í 240. Litlar vonir eru taldar
á að fleiri einstaklingar sem lentu I
flóðunum finnist á lífi.
Skógarhögg hafði áhrif
Yfirmaður Rauða krossins í land-
inu sagði í gær að þyrlur væru not-
aðar þar sem brýr hefðu skolast í
burtu í flóðunum og því væri erf-
itt að ná til margra þorpa sem illa
hefðu orðið úti. „Við höfum dreift
tjöldum og mat til fórnarlamba flóð-
anna. Herþyrlur eru ennfremur að
flytja þá sem eru slasaðir á spítala í
nágrenninu”.
Slíkar aurskriður eru vel þekkt
fyrirbæri í Indónesíu, sérstaklega
um þetta leiti árs þegar miklar rign-
ingar eru oft í landinu. Auk rigning-
arinnar má rekja ástæðu flóðanna til
Heimamenn í bænum Dogubayazit
íTyrklandi bera eitt fórnarlamb
fuglaflensunnar til grafar f gær.
Tyrkland:
Fórnarlömb
fuglaflensu bor-
in til grafar
Þriðja barnið úr sömu fjölskyldunni
lést í austurhluta Tyrídands í vik-
unni afvöldum fuglaflensu. Læknar
í landinu meðhöndla nú um 20 ein-
staklinga sem grunað er að séu
veikir, en flestir af þeim eru börn
og ungmenni. Læknar hafa enn-
fremur gefið út að sumir ungmenn-
anna sem nú eru veik hafi leikið sér
með afhöggvin höfuð af smituðum
kjúklingum. Talsmaður alþjóða heil-
brigðisstofnunarinnar WHO sagði í
gær að sérfræðingar hennar hefðu
nú verið sendir til Tyrklands til að
kanna hvort sjúkdómurinn sé far-
inn að berast manna á milli en að
þó bendi ekkert til slíks. Hins vegar
þurfi aðeins litla stökkbreytingu á
veirunni sem veldur flensunni til að
það gæti gerst.
Mikið af alifuglum
Síðasta fórnarlamb flensunnar var
hin ellefu ára gamla Hulya Kocyigit,
en tvö systkyni hennar, hinn fjór-
tán ára gamli Mehmet Ali og hin
fimmtán ára Fatma létust einnig
úr flensunni. Börnin bjuggu í af-
skekktu fjallahéraði rétt við landa-
mæri Armeníu og íran. Mikið er
af alifuglum á þessu svæði sem og
þeim svæðum í Austur-Asíu þar
sem veikin hefur komið upp.
Segja má að sjúkdómurinn hafi
verið að fikra sig nær Evrópu síð-
ustu vikur og mánuði. WHO reynir
nú að róa almenning þrátt fyrir að
stofnunin hafi sagt að „sjúkdómur-
inn væru nú við dyr Evrópu”. ■
látnir
bjorgunarmaöur gretur 1 gær upp IIK
eins fórnarlambs aurskriða í Indónesfu í
vikunni.
mikils skógarhöggs bænda í landinu,
sem verður til þess að náttúruleg
festa í jarðveginum minnkar.
I gær bárust fréttir af því að allt
björgunarstarf hefði tafist vegna
skorts á búnaði og vegna þess að
þúsundir forvitinna áhorfenda og
aðstandenda þeirra sem saknað
væri tefðu fyrir björgunarmönnum.
Áframhaldandi rigningum er spáð
á svæðinu og því er óttast að enn
fleiri aurskriður muni falla á næstu
dögum. ■