blaðið - 07.01.2006, Blaðsíða 40
40 I MENNING
LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 2006 blaðiö
Öskubuska
frumsýnd á nœstunni
Fri æfingu
Æfingar standa nú yfir í íslensku óper-
unni á Öskubusku eftir Rossini, sem
er aðalverkefni óperunnar á vormiss-
erinu. Öskubuska hefur verið sýnd í
flestum helstu óperuhúsum heims,
en þetta er í fyrsta skipti sem hún
er sett upp hér á landi. Öskubuska
verður frumsýnd í íslensku óperunni
5. febrúar næstkomandi og verða alls
10 sýningar. Með hlutverk Öskubusku
fer Sesselja Kristjánsdóttir, en hún er
ein af okkar helstu mezzó-sópran
söngkonum. Hlutverk prinsins, Ram-
iro, syngur Garðar Thór Cortes, en
hann hefur vakið mikla athygli að
undanförnu og var geisladiskur hans
sá söluhæsti hérlendis fyrir jólin.
Einar Th. Guðmundsson syngur hlut-
verk Alidoro, en hann hefur verið að
gera það gott í Vínarborg undanfarin
misseri. Þetta er í fýrsta skipti sem
Skráðu bílinn á
www.bilamarkadurinn.is
SmuRiuvt+í 46 £ • TZámv+í
hann syngur á sviði Islensku óper-
unnar. Davíð Ólafsson syngur hlut-
verk stjúpföðurins, Don Magnifico,
en Davíð hefur haslað sér völl sem
óperusöngvari og skemmtikraftur
undanfarin ár. Hlín Pétursdóttir
syngurhlutverkstjúpsysturinnarClor-
indu, en Hlín hefur að mestu starfað
í Þýskalandi síðustu ár en er nú flutt
heim og syngur nú aftur í Óperunni
eftir nokkurra ára hlé. Anna Margrét
Óskarsdóttir er upprennandi sópran
söngkona sem fer með hlutverk stjúp-
systurinnar Tsibe. Síðast en ekki síst
er það hinn ástsæli söngvari Bergþór
Pálsson sem syngur hlutverk Dand-
inis sem er þjónn prinsins. Hljómsveit-
arstjóri er tónlistarstjóri Óperunnar
Kurt Kopecky. Kórinn í sýningunni
er skipaður 12 körlum og í hljóm-
sveitinni eru tæplega 40 hljóðfæra-
leikarar. Leikstjórinn, Paul Suter, er
svissneskur og er það eiginkona hans,
Season Chiu frá Hong Kong, sem sér
um hönnun sviðsmyndar og búninga
og Jóhann Bjarni Pálmarsson hannar
lýsingu.
Haukur Dór
Nýr söngstjóri
Magnús Ragnarsson söngstjóri
Söngsveitin Filharmonia hefur
æfingar að loknu jólaleyfi á mánu-
daginn. Þá mun nýr söngstjóri,
Magnús Ragnarsson, taka við stjórn
kórsins. Magnús hefur undanfarin
ár dvalið í Svíþjóð við nám og störf
og lauk á síðasta ári organista- og
stjórnandanámi frá Tónlistarskól-
anum í Gautaborg og Háskólanum
í Uppsölum.
Verkin sem tekin verða til æfinga
að þessu sinni eru Stabat mater eftir
Joseph Haydn og Vesperae solennes
de confessores eftir Wolfgang Ama-
deus Mozart og er fyrirhugað að
flytja þessi verk á tónleikum í apríl
næstkomandi ásamt einsöngvurum
og hljómsveit. Hvorugt þessara
verka hefur verið flutt í heild sinni
hér á landi, en þekktan kafla úr
verki Mozarts, Laudate Dominum,
flutti Söngsveitin á síðustu aðventu-
tónleikum sínum. Píanóleikari kórs-
ins er Guðríður St. Sigurðardóttir
og raddþjálfari er Bjarney Ingibjörg
Gunnarsdóttir.
Raddpróf verða haldin á fyrstu
æfingum misserisins og er áhuga-
sömu söngfólki bent á að hringja í
formann, Einar Karl Friðriksson í
síma 892-2613.
Bæjarlistamaður
útnefndur
Nú er vika í að tilkynnt verði
hver hlýtur nafnbótina Bæjar-
listamaður Seltjarnarnes fyrir
árið 2006. Útnefningin fer fram
við hátíðlega athöfn á Bókasafni
Seltjarnarness á Eiðistorgi.
Frá því að núverandi menningar-
nefnd tók við hafa eftirfarandi
listamenn verið útnefndir bæjarlista-
menn: Bubbi Morthens tónlistar-
maður 2003, Margrét Helga Jóhanns-
dóttir leikkona 2004 og Auður
Hafsteinsdóttir fiðluleikari 2005.
m KB BANKI
Munið »imUusu usmuAtlm KS-Sinu
i tilefní af útgélti bókarinnat úr dýragarBI eftir Hsufc
Dór verður haldín sýníng i málverkum lístamannsins
t>ér er boðsð I sárstaáe opnun I Norrsena husmu
laitfarBa|ina 7. janúar milli kl. 17-19.
Sýningin er opin laugardaginn 7 janúar frá 17-19
og sunnudagmn 8 janúar trá 13-19
Athugið að aðeitis er opið þessa emu helg>
Verið yeltomin.
L!
Listamenn
MMtrðmiwvTi * jjnllcrl
Elísabet sýnir á Kaffi Cultur
Elísabet Olka hefur opnað
málverkasýningu á Kaffi
Cultur í Alþjóðahúsinu,
Hverfisgötu 18. Mál-
verkin á sýningunni eru
tileinkuð Breka, syni
hennar og öllum öðrum
börnum. Breki fékk
slæma heilahimnu-
bólgu í Kaupmanna-
höfn í setpember
síðastliðnum og var
honum haldið sof-
andi í sjö daga. Á
meðan Elisabet sat yfir
honum málaði hún myndirnar sem
eru á sýningunni. Breki vaknaði
hins vegar á afmælisdaginn sinn, Myndeftir
22. september og hefur náð sér Elísabetu Olka
fullkomlega.
Eplið og eikin er samsýning feðginanna Erlu Sólveigar Óskarsdóttur
húsgagnahönnuðar og Óskars L. Ágústssonar húsgagnasmíðameistara
í Hönnunarsafni íslands, Garðatorgi 7, Garðabæ.
Sýningin er opin alla daga nema mánudaga kl. 14:00 - 18:00.
Sýningunni lýkur 20. janúar 2006