blaðið - 07.01.2006, Blaðsíða 28
28 I TILVERAN
LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 2006 blaöiö
HEIMAVÖRN SECURITAS - ÖRYGGISKERFI FYRIR HEIMILIÐ
trausvekjandi það (eðaþannig)!
Það á að vera krafa kjósenda að menn
sýni samstöðu í verki og standi þannig
sína vakt sem leiðtogar, án allra illinda
og átaka á bak við tjöldin. Það er gengur
ekki upp að fólk falist eftir hinu og þessu
sætinu og fari svo í fýlu þegar það missir
sætið í hendunar á flokkssystkini sínu!
Ólæti sem þessi kunna ekki góðri
lukku að stýra og eru eingöngu til
þess að eyðileggja fyrir flokkunum.
Það má svo sannarlega vekja fólk til
umhugsunar um þetta og vonandi
verður breyting á þessu í náinni fram-
tíð, bæjarbúum og öllum til heilla.
Vindar blása í prófkjörsmálum
Prófkjörsmál eru ofarlega á baugi um þessar mundir og vindar
farnir að blása allverulega í pólitíkinni, enda kosningar á næsta
leyti í flestum bæjarfélögunum.
Sjálf reyni ég að fylgjast vel með framvindu mála og ég læt
mig varða það sem fram fer á þessum vettvangi, enda búum
við í lýðræðisþjóðfélagi og embættismenn fá starfann fyrir
atbeina okkar almúgans. Maður hefur auðvitað sitt að segja
um einstaklingana sjálfa og ekki síður tilhögun prófkjöra
innan flokkanna. Varðandi hið síðarnefnda er sitthvað sem ég
fæ ekki skilið. Það er þetta með lista flokkanna og sókn valda-
þyrstra manna í ákveðin sæti en ekki önnur. Fyrir mér væri
mun eðlilegra að menn gæfu bara kost á sér í „forystusveit list-
ans” og létu það alfarið í hendur kjósenda að haga seglum eftir
vindi hvað uppröðun varðar. Þegar allir falast eftir ákveðnu
sæti myndast auðveldlega leiðinlegur keppnisandi milli manna
(manna sem spila fyrir sama liðið) og ásýnd flokksins verður
síðri útávið.
Að mínu viti ætti fólk að bjóða sig bara fram í eitt af sætunum
án þess að nefna eitthvað ákveðið og þar af leiðandi
gegn fólki í sínu liði. Það yrði meira traustvekjandi
fyrir þá sem kjósa og auðveldara væri að stemma
stigu við eitthvert reipitog milli flokksmanna.
Fólk þarf að standa sína pligt án
illinda bak við tjöldin
Þegar upp er staðið er prófkjör innan flokkanna
til þess gert að mynda forystusveitir sem hafa
það að hlutverki að leiða sinn flokk þegar til kosn-
inga kemur. Verið er að mynda lið sem berst fyrir
flokkinn og því er að mínu mati mikilvægt að
samheldni, trygglyndi og helst að vináttubönd
séu mynduð milli frambjóðenda ef vel á að vinna
verkin þegar á hólminn er komið. Það er ansi hvim-
leitt að mynda sveit manna, sem vonast er til að leiði
flokkinn til sigurs, ef frambjóðendur eru orðnir
eins og örgustu úlfar eftir prófkjörin sjálf. Virkilega
Ertu „útsölufrík"?
Utsölurnar standa sem hæst
þessa dagana og verslanirkapp-
kosta að bjóða vörur á betra
verði en áður. Margar þeirra einkenn-
ast af stórum borðum sem kúnnarnir
standa í kringum og róta eins og óðir
væru, enda vilja flestir finna bestu vör-
urnar á undan næsta manni. Fólk er
auðvitað misjafnt hvað þetta varðar,
en ákveðinn hópur fólks verslar ein-
göngu þegar útsölur standa yfir og
láta verslunarferðir liggja milli hluta
þess á milli. Aðrir kaupa einungis
nýjar vörur þegar þær koma í búð-
irnar og vilja síður arka í búðir þegar
múgæsingurinn er sem mestur og
tilboðin á hverju strái.
Þreyttu eftirfarandi próf og at-
hugaðu hvort þú sért þessi týpíska
útsölupersóna sem sækir í búðirnar
þegar verðið er sem lægst, eða hvort
þú kjósir inn við beinið að sniðganga
allt slíkt.
1 Heldurðu fast um budd-
una dagsdaglega?
a) Já, ég passa mig alltaf að eyða ekki
ofmiklu.
b) Nei, alls ekki. Ég lít svo á að pen-
ingar séu ekki allt og læt mig litlu
varða hversu miklu ég eyði í föt og
annað slíkt.
c) Ég held ekki fast um budduna, en
auðvitað heldur maður aðeins í sig
stöku sinnum. Ekki vill maður eyða
umefniffam.
2. Verslarðu mikið á útsölum
hér heima eða erlendis?
a) Nei, ég kýs að versla nýja vöru og
sniðgeng allt útsöludrasl.
b) Jújú, stundum, enda gott að gera
góð kaup þegar þess gefst kostur.
c) Já, ég versla eingöngu á útsölum.
Verðlag er orðið svo hátt og það er
hreinilega ekld hægt að bjóða manni
upp á vörur á fullu verði.
3. Finnst þér skemmtilegt að ganga
milli verslana þegar mannmergð er
mikil og verslunaræði fólks sem mest?
a) Já, eklci spurning. Það er mildu
skemmtilegra að versla við slíkar
aðstæður en þegar lítið er að gera.
b) Ég þoh ekld að versla þegar allt
er brjálað í kringum mig. Fer bara
þegarróJegter.
c) Auðvitað fer maður stundum í
búðir þegar nóg er af fólki, en ég kýs
aðsleppaþví.
4. Ertu mikið f búðunum
um þessar mundir?
ÚTSALA
10 - 50% AFSLÁTUJR
SÓFASETT,
BORÐSTOFUHÚSGÖGN,
SKÁPAR OFL OFL
OPIÐ Í DAG TIL KL. 16
iniyifioirIm!
HÚSGAGNAVERSLUN
REYKJAVÍKURVEGl 66 HAFNARFIRÐI SÍMI 565 4100
BlaÖið/SteinarHugi
a) Ég hef eiginlega ekkert farið, en
það fer að koma að því að ég skelli
mér.
b) Já, ég læt útsölurnar eldd fram
hjá mér fara og ég er þegar búin að
versla mikið í hinum og þessum
verslunum.
c) Nei, ég hef ekkert farið að versla
og það stendur ekki til að gera það.
5. Hvað af eftirtöldu á við um þig?
a) Þú elskar að koma heim með
fullar hendur poka og setja í fata-
skápinn allar nýju vörurnar sem þú
varst að fjárfesta í.
b) Þú kaupir helst föt og annað ein-
göngu þegar þú ferð erlendis.
c) Þú ert Ötið í því að fjárfesta í nýju
dóti, enda áttu allt sem þú þarft alla
jafna.
6. Eftistu mikið við ákveðin merki
þegar þú kaupir þér föt eða er
þér slétt sama um hönnuð og
framleiðanda þegar þú klæðist?
a) Mér er alveg sama hvaðan fötin
koma - get allt eins keypt þau
á mörkuðum ef því er að skipta.
Merkin segja ekkert um ágæti
fatanna.
b) Já, ég reyni að vera eingöngu í
dýrum og flottum merkjum, helst
frá hönnuðum sem eru hvað vinsæl-
astirþáogþegar.
c) Auðvitað er gaman að vera í
merkjafötum en ég set það ekld sér-
staklega fyrir mig þegar ég kaupi
mér flík.
7. Kaupirðu þér föt úr verslunum
sem fjöldaframleiða fatnað í öllum
stærðum og gerðum, eða kýstu
heldur að fá eitthvað sérstakt
sem kemur í litlu upplagi?
a) Maður á alltaf eitthvað fjöldafram-
leitt, en það er þó skemmtilegra að
vera í einhverju sem er sérstakt.
b) Ég kaupi mér aldrei fjöldafram-
leiddar vörur. Það er alveg hrikalegt
að mæta til veislu og annar hver
maður er í sama bol og þú!
c) Það er ekkert að því að kaupa föt
sem eru framleidd í stóru upplagi -
þau eru oftast ódýrari og engu síðri.
8. Leggurðu fyrir til þess að
eiga fyrir útsölunum?
a) Já, alltaf. Mér finnst ég verða
að eiga nóg af fjármunum þegar
að útsölum kemur, enda er kortið
straujað ósjaldan við slík tilefni.
b) Nei, það er nú það síðasta sem ég
myndi gera.
c) Ég legg ekkert sérstaldega fyrir,
en ef maður á pening aflögu þá er
eitthvað keypt allavega.
Reiknaðu út stigin:
1. a) 1 stig b)4 stig c)2 stig
2. a)4 stig b)2 stig c) 1 stig
3. a)1 stig b)4 stig c)2 stig
4. a) 2 stig b) 1 stig c)4 stig
5. a)1 stig b)2 stig c)4 stig
6. a) 1 stig b)4 stig c) 2 stig
7. a) 2 stig b) 4 stig c) 1 stig
8. a) 1 stig b) 4 stig c) 2 stig
0-9 stig:
Það má eiginlega segja að þú sért
útsölufrík, en þú fylgist vel með útsöl-
um borgarinnar og ert yfirleitt með á
hreinu hvenær þær hefjast. Auðvitað
er gott að passa upp á peninginn og
versla heldur á útsölum, en oft getur
þetta snúist upp í andhverfu sína og
fólk kaupir meira en ella. Stundum
má hreinilega láta allar fjárfestingar
liggja milli hluta og geyma frekar
peninginn - jafnvel þó svo að flotta
kápan í búðinni á horninu sé á helm-
ingsafslætti.
10-19 stig:
Þú hefur gaman af því að fara I búðir
en þú ferð engu offari þegar kemur
að verslun hvers konar. Eins og allir
hef urðu gaman af þvt að fá þér ný föt
eða annað sem þú hefur not fyrir, en
þú hleypur ekki upp til handa og fóta
þó svo að búðirnar séu að bjóða upp
á sin bestu tilboð.
20-32 stig:
Útsölur eru þér ekki að skapi. Efiaust
ertu eilltið merkjafrfk og lætur ekki
bjóða þér hvað sem er. Það er allt
saman gott og gilt, en þú verður bara
að passa þig að láta ekki hafa þig út I
hvað sem er. Ekki kaupa það dýrasta
eingöngu vegna þess að það hlýtur
að vera betra...