blaðið - 07.01.2006, Page 14
14 I ÁLIT
LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 2006 blaðið
...........
Útgáfufélag: Ár og dagur ehf.
Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson.
Ritstjóri: Karl Garðarsson.
MENNT ER MATTUR, EF
RÉTT ER Á HALDIÐ.
Stefna, eða öllu heldur stefnuleysi, stjórnvalda varðandi háskólamenntun
er háskaleg í margvíslegum skilningi. Og í raun er skilningsleysi á mikil-
vægi menntunar með ólíkindum, eins og sorgleg framganga mennta-
málaráðherra síðastliðin tvö ár ber glöggt vitni.
Hugmyndir eða miklu heldur hugmyndaleysi stjórnvalda um upp-
byggingu háskóla og háskólamenntunar er snöggur blettur á ríkisstjórn-
inni. Það sem heyrst hefur af frumvarpi því sem menntamálaráðherran
boðar að lagt verði fram á komandi vorþingi um háskóla gefur til kynna
að lítilla úrbóta sé að vænta í þessum málaflokki.
Það ríkir algjört stefnuleysi í málefnum háskólanna hvort heldur litið
er til fjármögnunar þeirra, gæðaeftilits með háskólamenntun eða fram-
tíðarstefnumörkun á því sviði. Dettur einhverjum í hug í fullri alvöru að
300.000 manna þjóð standi undir rekstri tíu háskóla eða einhvers sem
stundum er kallað menntun á háskólastigi án frekari skilgreiningu á því
orði ? Svarið er auðvitað nei.
Þróun háskólamenntunar hér á landi nú um stundir er líkust farsa
leiknum undir formerkjum frjálshyggjunnar, frelsisins og samkeppn-
innar. Raunveruleg samkeppni hérlendra háskóla er að sjálfsögðu við
erlenda háskóla. Til að mæta henni er aðeins ein leið. Tryggja þarf að
Háskóli íslands verði ávallt á heimsmælikvarða.
Veruleikinn er hins vegar sá að stjórnvöld leggja nánast fæð á Háskóla
íslands. Framlög ríkisins til hans vekja athygli um alla Evrópu fyrir hve
snautlega lág þau eru. Auk þess er framlag til háskólamenntunar hér á
landi hið lægsta í Evrópu. Bara háskólinn í Króatíu býr við lægri framlög
en Háskóli íslands svo dæmi sé tekið.
ÞessistefnanúverandiogfyrrverandimenntamálaráðherraSjálfstæðis-
flokksins grefur undan íslensku samfélagi til lengri tíma litið. Hér er
menntunarstig eitt það lægsta í Evrópu, yfir 40% þátttakenda á vinnu-
markaði eru án lengri skólagöngu en grunnskólaprófs auk þess sem
þjóðin er sú yngsta í álfunni. Því ættu framlög okkar til háskólanna að
vera mun hærri en meðaltalið. Þarna hefur menntastefna ríkisstjórnar-
innar brugðist.
Stjórnvöld þurfa að byrja á því að viðurkenna, að það er einn háskóli í
landinu sem stendur undir því nafni, Háskóli fslands. Háskóli íslands
er rannsóknarháskóli sem uppfyllir þau skilyrði sem til slíkra skóla eru
gerð. Út frá þeirri staðreynd á að vinna nýja sýn fyrir íslenska háskóla
og framhaldmenntun almennt; sýn þar sem dekrið við ímyndaða sam-
keppni einkaháskóla við Háskóla fslands er látið lönd og leið. Samkeppni
við Háskóla Islands kemur að utan frá erlendum háskólum. Þetta dekur
kemur skýrt fram í því að einkaháskólarnir fá heimild til að innheimta
há skólagjöld af nemendum sínum ofan á framlögin frá ríkinu. Heimild,
sem ríkisháskólarnir hafa ekki, en fá hins vegar sömu framlög og einka-
reknu háskólarnir. Þessu hefur ráðherra menntamála heykst á að breyta
þrátt fyrir að boða það á meðal sinna helstu verka fyrir réttum tveimur
árum þegar hún tók brosandi við lyklunum að ráðuneyti menntamála
í landinu.
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar: Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur.
Aðalsími: 510 3700. Símbréf á fréttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510.3711.
Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is.
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: fslandspóstur.
Vinstri græn villa
innan Samfylkingar
Það er orðið býsna einkennilegt
ástand innan Samfylkingar þegar
Vinstri-grænir geta valsað þar inn
og skellt sér í prófkjör fyrir borgar-
stjórnarkosningarnar, eins og Björk
Vilhelmsdóttir gerði á dögunum.
Vissulega sagði hún sig úr Vinstri-
grænum en lýsti um leið yfir að
hún aðhylltist enn skoðanir síns
gamla flokks. Hvers konar flokkur
er Samfylkingin orðin þegar hún
tekur fagnandi á móti svekktum
töpurum annarra flokka? Nær væri
að taka með húrrahrópum við þeim
sem viðurkenna að hafa villst af
pólitískri leið en loks fundið hinn
rétta veg jafnaðarstefnunnar í faðmi
Samfylkingar. Ég varð nú ekki vör
við að Björk mætti sem jafnaðar-
maður til þessa prófkjörs. Hún er
vinstri-græn í hjarta sínu og verður
vitaskuld að eiga það við samvisku
sína. Mest minnir innkoma hennar
á nýkeyptan leikmann sem stendur
í KR-búningi í viðtali og segist enn
vera Valsari.
Furðulegir valkostir
Ég botna satt að segja ekkert í því
hvernig ég, sem hægri krati, á að
geta kosið vinstri-grænan liðsmann
í prófkjöri Samfylkingar. Auðvitað
mun ég ekki gera það en mér finnst
gróf móðgun að bjóða mér upp á
þann valkost. Veit Samfylkingin
ekki lengur fyrir hvað hún stendur?
Eða er það kannski bara þannig,
eins og mig hefur lengi grunað, að
kommarnir séu búnir að hreiðra
þarna um sig og taki nú fagnandi á
móti félögum sínum?
Ekki skil ég heldur hvaða sess svo-
kallaðir „óháðir" hafa skyndilega öðl-
ast innan Samfylkingar. Ekki verður
annað skilið en að mannval innan
Samfylkingar sé af svo skornum
skammti að nauðsynlegt sé að leita
ljósum logum utan flokksins að
hæfu fólki til að fylla framboðslist-
ann. Þannig dúkkaði skyndilega
upp Dagur nokkur Eggertsson sem
virtist hafa átt í mesta basli með að
staðsetja sig í pólitík þar til hann
Kolbrún Bergþórsdóttir
fékk skyndilega þá flugu í höfuðið
að verða borgarstjóri. Þá varð hann
skyndilega æstur Samfylkingar-
maður. Einhver mundi nú kalla
þetta dæmigerða hentistefnu.
Og hvað ætlar þetta fólk svo að gera
nái það kjöri? Það talar eins og það
þrái ekkert fremur en að endurlífga
Reykjavíkurlistann. Ekki verður séð
að það sé göfugt markmið sem verði
borgarbúum til gæfu. Reykjavíkur-
listinn var orðinn vonlaust valda-
batterí þar sem hver höndin var upp
á móti annarri. Ég veit ekki betur en
að borgarbúar hafi almennt glaðst
vegna falls listans, meira að segja
þeir sem í upphafi voru hörðustu
stuðningsmenn hans.
Þrír kostir
Nú situr Samfylkingin uppi með
þrjá einstaklinga sem sækjast eftir
forystusæti. Fyrir ekki ýkja löngu
voru þeir tveir. Þá auglýsti ég eftir
þriðja manninum. Stundum er sagt
að maður eigi ekki að óska sér því
ósk manns gæti ræst. Ég fékk þriðja
manninn en hann var öðruvísi en
ég vildi hafa hann. Ég veit ekki hvað
gerist þegar kemur að prófkjörsdegi.
Sennilega mun ég fórna höndum og
skríða undir sæng og vera þar allan
þann dag. Ég sé enga góða lausn í
þessu vali. Þegar Stefán Jón Hafstein
er orðinn besti kostur í stöðinni þá
er fokið í flest skjól. Það má þó segja
Stefáni til hróss að hann hefur skoð-
anir og kemur þeim fram á bein-
skeyttan hátt. Oft fer hann fram úr
sjálfum sér og hann á til gríðarlegan
hroka, en það má svo sem segja um
fleiri. Alla vega er einhver karaker
þarna á ferð. Þessi orð ber þó ekki
að taka sem stuðningsyfirlýsingu.
Ég er nefnilega alls ekki viss um að
ég eigi lengur nokkra samleið með
Samfylkingunni í borginni.
Höfundur er blaðamaður
Klippt & skorið
klipptogskorid@vbl.is
Pað hefur væntanlega ekki farið
framhjá neinum að sveitarstjórnar-
kosningar munu fara fram á árinu.
Stjórnmálaflokkarnir eru komnir ( kosninga-
ham og sama má segja um fjölmarga sveitar-
stjórnarmenn. Undirbúningur kosninganna er
hins vegar örlítið frábrugðinn því sem áður
var. Munurinn liggur í því að þungaviktamenn
í stjórnmálum eru farnir að flytja sig milli
flokka til að eiga frekari möguleika á góðri
útkomu ( kosningum. Stutt er síðan Björk
Vilhelmsdóttir yfirgaf VG og gekk til liðs við
Samfylkingna. Hún neytar þv( staðfastlega
að aukinn möguleiki um áframhaldandi setu
í borgarstjórn hafi eitthvað með flutning
hennar að gera - en varla hefur staða Samfylk-
ingar (borginni spillt fyrir. Klippari bendir til að
mynda á að enginn flótti er yfir (Framsóknar-
flokkinn fyrir kosningar.
Enn þaðeru ekkibaraein-
staklingar sem eru að
leita að bestu stöðunum
til framboðs, heldur eru stjórn-
málaflokkarnir í óðaönn að setja
saman lista sem þeir telja vænlegasta til ár-
angurs. Undanfarið hefur mikið verið rætt um
fyrirhugað framboð Eyþórs Arnalds í bæjar-
stjórnarkosningum ( Árborg. Tilraunir Eyþórs
til að komst inn í borgarstjórn Reykjavíkjur
skiluðu ekki miklum árangri, en greinilegt er
að fjölmargir sjálfstæðismenn í Árborg telja
hann eigi betri möguleika þar. Einhverjir hafa
bent á að með því geti Eyþór náð að stimpla
sig inn í flokkinn og treyst stöðu sína. Aðrir
hafa hins vegar bent á að slíkt sé frekar eins
og flótti - þegar honum hafi ekki verið treyst
fyrir sæti í borgarstjórn finni hann sér þá bara
minni stól, sem frekar passar.
En þrátt fyrir að menn og flokkar kapp-
kosti nú við að undirbúa framboð
stendur einn maður utan alls þessa.
Það er sjálfurÁrni Johnsen sem í vikunni vildi
ekkert gefa upp um pólitísk áform sín á næstu
árum. Hann hefur hins vegar aldrei útilokað að
hann munu aftur gefa kost á sér
í alþingiskosningum á ný. Hins
vegar gæti verið klókt af Árna að
koma sér vel fyrir ( þægilegum
bæjarstjórastól í svo sem fjögur
ár áður en hann reynir á ný við alþingisstólinn.
Minni íslenskra kjósenda nær ekki langt aftur,
en það er þó ekki svo slæmt að mál Árna sé
búið að yfirgefa langtímaminni þeirra. Klipp-
ari vill hins vegar benda honum á að íhuga
framboð f sveitarfélagi þar sem engin BYK0
verslun er.