blaðið - 07.01.2006, Page 21
blaðið LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 2006
VIÐTALI 21
og þá hætti hún að stara.
I dag stendur mér nákvæmlega
á sama um það hvað fólki finnst
um mig. Auðvitað getur verið
þreytandi að einhverju fólki skuli
finnast að ég eigi að vera eins og
18 ára fegurðardrottning það sem
ég á eftir ólifað. Svo ætlast margir
til að ég sé alltaf óaðfinnanlega
klædd. Eg er það bara ekki. Ég er
ekki sú týpa. Fólk verður þá að
verða fyrir vonbrigðum ef það sér
mig eins og ég er dags daglega."
Þú ert heldur ekki tágrönn eins og
krafist er affegurðardrottningum.
„Eg hef aldrei verið tágrönn. Þegar
ég fór í fegurðarsamkeppnir þurfti
ég að fara í stranga megrunarkúra.
Ég rek fyrirtæki sem sérhæfir sig
í heilsurækt og vil auðvitað vera
hraust en það er ekki samasem-
merki milli þess að vera þvengmjór
og þess að vera hraustur. Ég nenni
ekki að velta þvi fyrir mér hvort ég
sé of feit eða hvort ég eigi að ganga
í háhæluðum skóm fremur en
strigaskónum sem mér finnst best
að vera í. Ég nenni ekki að klæða
mig fyrir fólk sem glápir á mig og
ætlast til að ég sé fegurðardrottn-
ing. Ég gerði það kannski hérna
áður fyrr en hef ekki þörf fyrir það
í dag.“
Hvernig veistu hverjir eru vinir
þínir og hverjir eru bara að vingast
viðfegurðardrottningu?
„Eg lenti í raunum og komst
þannig að því hverjir voru sannir
vinir. Það er nokkuð sem er mjög
gott að vita.“
Var tímabil þegar þú vissir þetta
ekki?
„Ég hef sennilega treyst of
mörgum í gegnum tíðina og haldið
að þeir sem voru kunningjar væru
vinir. Ég held að ég hafi tilhneig-
ingu til að vera hrekklaus þegar
fólk er annars vegar.“
„Ég er ekki rétta manneskjan
til að ræða ástina. Ég hef nú ekki
verið það heppin í ástarmálum. Ég
er ekki að leita að manni. Þegar ég
hef verið að leita þá hef ég fundið
svo miklar vitleysur en vonandi hef
ég lært af þeim. Ef mér er ætlað að
kynnast einhverjum þá gerist það
þegar það á að gerast. Þess vegna
má það gerast eftir áratug. En það
er yndisleg tilfinning að vera ást-
fangin. Sú tilfinning hefur reyndar
aldrei varað lengi hjá mér. Það er
mitt stærsta vandamál í ástar-
málum hvað ég verð fljótt leið á
mönnunum. Sennilega af því að
þessi sambönd voru flest bara
smáskot.
Ég er búin að búa meira og
minna ein í rúm tíu ár og kann
ákaflega vel við það. Þá er ekkert
auðvelt að fara að búa með ein-
hverjum eða fyrir einhvern að búa
með mér því ég er með allt mitt í
föstum skorðum og þá verða mála-
miðlanir erfiðari.“
Jafnlynd og ákveðin
Nú eru fegurðarsamkeppnir mikill
þyrnir í augum femínista. Ert þú
femínisti?
„ Auðvitað styð ég réttindi kvenna.
Ég er sterk kona og stofnaði fyrir-
tæki fyrir konur. Mér leiðist orðið
femínisti og femínistar hafa komið
fram og sagt hluti sem mér þykja
beinlínis kjánalegir, eins og til
dæmis að ekki mætti senda Unni
Birnu skeyti þegar hún varð al-
heimsfegurðardrottning. Þá var
verið að eyða orku og tíma í fárán-
legan málflutning. Femínistar ættu
að einbeita sér að mikilvægari
málum.“
Voru það mistök hjá þér að fara í
fegurðarsamkeppni
„Nei, það voru ekki mistök. Ég
fékk að ferðast um allan heim og
19 ára hafði ég heimsótt tæplega 40
lönd. Það voru ekki mistök. Átján
árum síðar er fólk reyndar að ætl-
ast til að ég líti út eins og 18 ára feg-
urðardrottning. Það er ekkert sem
ég get gert við því.“
Hvaða viðhorf hefurðu varðandi
pólitík?
„Ég er ekki pólitísk. Einhvern
tíma var ég orðuð við Framsóknar-
flokkinn sem stafar af því að ég
á ættir að rekja til framsóknar-
manna. Ég er meira fyrir menn og
málefni en flokka og á mína uppá-
haldsstjórnmálamenn, sem eru allt
menn sem ég hef kynnst persónu-
lega og finnst mikið til koma. Jón
Baldvin er frábær og sömuleiðis
Guðni Ágústsson. Við Halldór
Ásgrímsson ferðuðumst saman
þegar ég var Miss World en þá
var hann sjávarútvegsráðherra.
Ég hef dálæti á öllum þessum
mönnum og sömuleiðis Össuri
Skarphéðinssyni.“
Hvernigskap hefurðu?
„Ég er jafnlynd en ákveðin og
missi ekki stjórn á skapi mínu. Ég
er geðgóð. Þegar ég horfði á Sjálf-
stætt fólk þar sem ég var í þætti hjá
Jóni Ársæli þá tók ég eftir því að ég
hló mjög mikið. Ég hafði ekki vitað
af því áður að ég væri hláturmild.
Ég held að ég hlæi meira í dag en
ég hef nokkurn tíma gert áður. Það
er af því að mér líður vel.
Ef ég ætti að finna orð til að lýsa
karakter mínum þá er eitt orð sem
hefur alltaf fylgt mér frá því ég
var lítil. Það er orðið „góð.“ Þegar
fólk hefur verið beðið um að lýsa
mér hefur það sagt að ég sé góð
manneskja. Ég er alveg sátt við þá
lýsingu.“
kolbrun@bladid.net
6t>%
Óendanleg ást
/ ævisögu þinni sem kom út fyrir
nokkrum árum lýstirðu baráttu
þinni við alkohólisma. Þú áttir
mjög slœmar stundir en heldurðu
að þær hafi þroskað þig?
„I dag lít ég svo á að það sé kostur
að hafa lent í því sem ég lenti í en
meðan ég var að ganga í gegnum
það var það sárt. Ég hef kynnst því
að lífið er ekki alltaf dans á rósum
en ég hef líka kynnst því hvað lífið
getur verið dásamlegt og núna er
ég að upplifa þessa óendanlegu ást
sem ég ber til dóttur minnar. Ég
hefði ekki það viðhorf til lifsins
sem ég hef í dag nema vegna þess
sem ég gekk í gegnum.“
Hvernig var dæmigerður dagur á
þessum erfiða tíma?
„Veistu, ég hef oft verið spurð að
þessu en mig langar ekki til að tala
um það. Það er svo mikil birta í lífi
mínu í dag að ég hef ekki lengur
þörf fyrir að tala um þennan tíma.
Maður á að læra af því liðna en
ekki velta sér upp úr því.“
Á hvað trúirðu?
„Ég trúi á æðri mátt. Það er einn
Guð en við köllum hann mismun-
andi nöfnum. Á erfiðleikatíma á
ævi minni missti ég vonina og um
leið glataði ég trúnni. Svo lærði ég
að finna fyrir þessum mætti aftur.
Ég minni mig á hann á hverjum
degi. Þegar ég eignaðist Isabellu
sagði ég við sjálfa mig: Þetta
sannar fyrir mér að Guð er til.
Ég leita mjög mikið í bænina
og reyni að tileinka mér auðmýkt.
Áður fyrr var ég að reyna að stjórna
lífinu og vildi ráða því í hvaða átt
það færi en ég fékk engu um það
ráðið. Þá ákvað ég að sleppa tak-
inu og láta líf mitt í hendur Guði
og sagði við hann: Gjörðu svo vel.
Gerðu það sem þú vilt við mig og
mitt líf. Ég sofna út frá þessu á
kvöldin og líður miklu betur en
áður.“
Trúirðu á ástina?
Opið alla virka daga 10 - 18, laugardaga 11-16
Nýjar vörur ný vefsíða
www.verona.is
Húsooomn FÁSTEINHIG I HÚSOAONAVAL. HÖFN S: 47« 2SS9
Bœjarlind 6 - 200 Kóp. S: 554-7800