blaðið - 13.02.2006, Síða 21
blaðið MÁNUDAGUR 13. FEBRÖAR 2006
XÞRÓTTIR I 21
Hver verður næsti knatt-
spyrnustjóri Englands?
Eftir að Sven-Göran Eriksson, lands-
liðsþjálfari Englands, lýsti því yfir
á dögunum að hann myndi láta af
störfum eftir heimsmeistaramótið
í sumar hafa enskir fjölmiðlar farið
mikinn í getgátum um arftaka
hans. Martin O’Neill, fyrrum stjóri
Celtic og Leicester, er af flestum veð-
bönkum talinn líklegastur en fast
á hæla hans fylgja Sam Allerdyce
og Alan Curbishley. Er það engin
tilviljun að allir þrír eru breskir en
mikill vilji er fyrir því meðal enskra
að ráða þjálfara frá Bretlandseyjum.
Hafa þeir allir lýst yfir áhuga á starf-
inu og óspart verið ritað og rætt um
þá í fjölmiðlum.
Pearce skiptir um skoðun
Stuart Pearce, knattspyrnustjóri
Manchester City, tjáði fjölmiðlum
í gær að hann væri opinn fyrir því
að ræða við enska knattspyrnu-
sambandið um að taka við þjálfun
landsliðsins ef það óskaði þess. Er
það algjör viðsnúningur frá þvi sem
hann hafði áður sagt en Pearce lét á
dögunum hafa eftir sér að það væri
„aumkunarvert“ og „neyðarlegt" að
verið væri að bendla hann við stöð-
una. „Það væri heimskulegt af mér
að útiloka nokkurt starf. Það væri
líka dónalegt að neita að ræða við
þá sem hefðu áhuga á að fá mig til
starfa,“ sagði Pearce.
Pearce hefur náð góðum árangri
á þeim stutta tíma sem hann hefur
verið við stjórnvölinn hjá Manc-
hester City og þá er það honum í hag
að hann átti sjálfur farsælan feril
sem leikmaður landsliðsins. Hann
hefur hins lýst því yfir að hann sé
ekki sá hæfasti sem komi til greina
í starfið. „Ég er raunsær maður og
staðreyndin er sú að það eru fullt af
mönnum sem eru mun hæfari en
ég,“ sagði Pearce.
Tungumálaörðugleikar
ekki fyrirstaða
Luiz Felipe Scolari, núverandi lands-
liðsþjálfari Portúgals, hefur lýst yfir
áhuga á að taka við þjálfun Englands
en hann varð heimsmeistari er hann
stjórnaði brasilíska liðinu árið 2002
og náði silfri með því portúgalska
á EM 2004. Hann hefur neitað því
að það að hann kunni ekki ensku
verði vandamál. „Ég veit að ef ég
fengi starfið þyrfti ég að læra ensk-
una betur,“ sagði Scolari en var ekki
í nokkrum vafa um að hann yrði
fljótur að ná tökum á málinu. Scol-
ari hefur ennfremur sagt að hann sé
opinn fyrir því að taka við þjálfun
Newcastle verði honum boðinn
góður samningur. „Eftir að samn-
ingur minn við Portúgal rennur út
mun ég íhuga öll tilboð,“ sagði Scol-
ari en ítrekaði að hann myndi ekk-
ert aðhafast fyrr en að því loknu.
Jol hefur trú á Hiddink
Martin Jol, knattspyrnustjóri Tot-
tenham, sagði við fjölmiðla í gær
að enska knattspyrnusambandið
þyrfti ekki að vera í nokkrum vafa
um hvern ætti að ráða; landi hans
Guus Hiddink væri besti kosturinn.
„Það þarf ekki annað en að skoða
ferilskránna hans. Það er ekki til
þjálfari sem hefur náð betri árangri,“
sagði Jol. „Hann hefur mikla reynslu
og hefur komið bæði Hollandi og
Suður-Kóreu í undanúrslit Heims-
meistaramótsins. Þá hefur hann
unnið Evrópukeppnina og er í alla
staði frábær þjálfari,“ sagði Jol.
Hiddink gæti hins vegar hafa
minnkað líkur sínar á að fá starfið
með því að lýsa því yfir að fyrsta
árið yrði hann aðeins í hlutastarfi
en hann er samningsbundinn PSV
Eindhoven til vorsins 2007. „Ég
mun ekki rjúfa samning minn við
PSV, en það er vel mögulegt að sinna
báðum störfunum saman fyrstu 12
mánuðina. Mér hefur tekist það vel
með ástralska landsliðið. Lundúnir
eru aðeins í klukkustundar fjarlægð
frá heimili mínu í Eindhoven svo að
fjarlægðin verður heldur ekki vanda-
mál,“ sagði Hiddink.
bjom@bladid.net
Peir þykja líklegastir
Martin O'Neill
Norður-írskur
Fyrrum stjóri Celtic.
Guus Hiddink
Hollenskur
Stjóri PSV Eindhoven og
Ástralíu
Sam Allerdyce
Enskur
Stjóri Boiton Wanderers.
Luiz Felipe Scolari
Brasílískur
Landsliðsþjálfari Portúgal
Alan Curbishley
Enskur
Stjóri Charlton.
Stuart Pearce
Enskur
Stjóri Manchester City
Vieira: „Henry er óviss"
Thierry Henry sýnir listir sínar í leik Arsenal gegn Bolton á Highbury um helgina.
Patrick Vieira, leikmaður Juventus,
segir góðvin sinn og fyrrum sam-
herja, Thierry Henry, vera í óvissu
um hvort hann framlengi samning
sinn við Arsenal. „Ég veit að hann
hefur ekki gert upp hug sin og ég hef
ekki hugmynd um hvað hann á eftir
að gera. Það getur vel verið að hann
fari, en hann gæti líka verið áfram,“
sagði Vieira. „EgþekkiThierrymjög
vel en það þýðir ekki að ég geti haft
áhrif á ákvörðun hans. Thierry er
mjög klár náungi,“ sagði Vieira enn
fremur. Vieira átti sjálfur farsælan
feril hjá Arsenal en hann gekk til
liðs við ítalska liðið fyrir þetta tíma-
bil og hefur staðið sig frábærlega.
Henry gekk til liðs við Ar-
senal frá Juventus árið 1999 og
hefur verið tekinn í guðatölu af
stuðningsmönnum liðsins. Með
þrennu sinni í 7-0 sigri liðsins á
Middlesbrough í janúarmánuði
bætti hann markamet liðsins en
hann hefur skorað yfir 150 mörk.
Samningur Henrys rennur út á
næsta ári en ef hann fellst ekki á að
framlengja dvöl sína hjá Arsenal er
líklegt að liðið muni selja hann eftir
þetta tímabil til að koma í veg fyrir
að hann fari á frjálsri sölu. Henry
hefur ítrekað verið bendlaður við
Barcelona en vitað er að spænska
stórliðið er afar áhugasamt um að
klófesta kappann.
Michelle Kwan var grátklökk þegar hún ræddi viö fjölmiðla í gær.
Kwan hættir þátttöku
Michelle Kwan, fimmfaldur heims-
meistari í listhlaupi á skautum,
hefur þurft að hætta þátttöku á vetr-
arólympíuleikunum í Tórínó vegna
nárameiðsla. „Að hætta keppni
er erfiðasta ákvörðun sem ég hef
nokkru sinni þurft að taka, en hún
er engu að síður rétt. Ég hef ekki
trú á að ég geti gert mitt besta og ég
virði leikana of mikið til að keppa
þannig,“ sagði Kwan á blaðamanna-
fundi í Tórínó í gær. Kwan sagði enn
fremur að hún myndi snúa heim í
stað þess að dvelja í Tórínó og eiga á
hættu að trufla samherja sína.
Hin 25 ára gamla Kwan var valin
í bandaríska liðið þrátt fyrir að
hafa verið fjarri góðu gamni vegna
meiðsla. Vonast var til að hún myndi
ná að jafna sig þegar keppni hæfist.
Kwan hefur áður unnið silfur- og
bronsverðlaun á Ólympíuleikunum
en aldrei hreppt stóra hnossið.
Jol skammar Mido
Martin Jol, stjóri Tottenham, hefur
aðvarað egypska landsliðsmanninn
Mido sem er í láni hjá Lundúnalið-
inu vegna framkomu sinnar í Afr-
íkukeppninni á dögunum. Mido
hellti sér þá yfir þjálfara egypska
landsliðsins þegar honum var skipt
út af í undanúrslitaleiknum gegn
Senegal. Jol sagðist hafa verið í síma-
sambandi við Mido á meðan á Afr-
íkukeppninni stóð og rætt við hann
fyrir umræddan leik. „Ég hafði sagt
honum að halda sig á mottunni en
það sem hann gerði var heimsku-
legt. Hann hefði átt að haga sér
betur,“ sagði Jol. Hann bætti þó við
að hann hefði ennþá fullan hug á að
halda Mido í herbúðum Tottenham.
„Mido elskar Spurs og aðdáendurnir
hafa tekið honum opnum örmum.
Ef hann heldur áfram að standa
sig vel munum við vafalaust kaupa
hann,“ sagði Jol.
Jewell fokreiður út í Camara
Stjóri Wigan, Paul Jewell, er allt
annað en sáttur með einn leik-
manna sinna, Henri Camara, sem
virðist hafa gufað upp eftir Afr-
íkukeppnina. Camara lék þar með
senegalska landsliðinu en eftir að
liðið hafði tapað leiknum um þriðja
sætið var ráðgert að hann myndi
snúa til Englands á föstudag og leika
með Wigan gegn Liverpool daginn
eftir. Camara hefur hins vegar ekk-
ert látið sjá sig og gerði fjarvera
hans það að verkum að Jewell hafði
engan sóknarmann til að tefla fram
og liðið tapaði 0-1.
„Hann átti bókað flug á föstudag
en ég veit ekkert af hverju hann
hefur ekki látið sjá sig. Ég er mjög
vonsvikinn með Henri,“ sagði Je-
well við fjölmiðla en vildi ekki ræða
málið frekar. „Ég skal hins vegar
glaður ræða um þá sem lögðu sig
Henri Camara í leik með Wigan á dögunum.
alla fram fyrir Wigan í leiknum en
það er nákvæmlega það sem strák-
arnir mínir gerðu," sagði Jewell og
var mjög sáttur með frammistöðu
sinna manna þrátt fyrir tapið.
Le Guen að taka við Rangers?
Orðrómur um að Paul Le Guen,
fyrrum þjálfari Lyon, verði næsti
knattspyrnustjóri Glasgow Rangers
er orðinn afar hávær eftir að aðstoð-
armaður Le Guen sást meðal áhorf-
enda í borgarslag Iiðsins við Celtic í
gær. Rangers tapaði leiknum 0-1 en
liðið hefur verið langt frá sínu besta
í vetur og er 21 stigi á eftir erkifjend-
unum Celtic sem tróna á toppnum.
Aðstoðarmaðurinn, Yves Colleu,
sást einnig á dögunum 1 félagsskap
háttsettra starfsmanna Rangers og
þá hafa eiginkonur þeirra Colleu og
Le Guen að auki sést í borginni.
Le Guen yrði mikill hvalreki á
fjörur Rangers en hann hefur verið
afar eftirsóttur undanfarið og meðal
annars hafnað tilboðum frá Benfica
og Lazio. LeGuen vann þrjá Frakk-
landsmeistaratitla með Lyon áður
en hann lét af störfum síðasta vor og
hefur síðan starfað í sjónvarpi.