blaðið - 22.02.2006, Qupperneq 18
22 I ÍÞRÓTTIR
MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2006 blaðiö
ALLIR AFANGASTAÐIR I EVROPU
FLUG 19.900
+ Bókaðu á www.icelandair.is
KR. Ferðntimabil 20. apríl-30. júní (síðasta heimkoma).
ÍCELANDAIR
www.icelandair.is
Bjarni Guðjóns samdi við ÍA
íþróttabandalag Akraness gekk í
gær frá samningi við Bjarna Guð-
jónsson, knattspyrnumann. Samn-
ingur Bjarna og ÍA er til fjögurra
ára en Bjarni verður 27 ára síðar í
þessum mánuði.
Bjarni hefur allt frá árinu 1996
verið í atvinnumennsku í knatt-
spyrnu en hann fór fyrst til enska úr-
valsdeildarliðsins Newcastle United.
Þaðan lá leiðin til Genk í Belgíu og
frá 2000 til 2003 lék hann með Stoke
City. Frá árinu 2003 hefur hann
leikið með þremur liðum, Bochum
í Þýskalandi og ensku liðunum Co-
ventry og núna síðast Plymouth sem
leikur í 1. deildinni. Bjarni fékk sig
lausan frá Plymouth í byrjun febrú-
armánaðar og síðan þá hafa verið
miklar vangaveltur um með hvaða
liði hann léki næst. Fljótlega komst
svo sá orðrómur á kreik að Bjarni
væri á leiðinni heim til Islands á ný.
Tvö erlend lið voru einnig inni
í myndinni, Metro Stars í Banda-
ríkjunum og belgíska liðið Lokeren.
Bjarni valdi þó ísland og þá aðallega
vegna náms en hann hyggur á nám í
viðskiptafræði næsta haust.
í kjölfarið voru mörg íslensk lið
nefnd til sögunnar: KR, FH, Valur,
Fylkir og ÍA og hann valdi heima-
hagana á ný en Bjarni lék síðast með
ÍA 1996. Það ár tryggði félagið sér
Islandsmeistaratitilinn á eftirminni-
legan hátt eftir hreinan úrslitaleik
við KR þar sem Bjarni skoraði tvö
mörk og var svo valinn efnilegasti
leikmaður Islandsmótsins. Það ár
varð Bjarni næstmarkahæstur á ís-
landsmótinu með 13 mörk.
Það er ljóst að fengur í A er mikill
og það má búast við því að ÍA geri
harða atlögu að íslandsmeistaratitl-
inum í sumar. Þórður, bróðir Bjarna,
er einnig kominn heim úr atvinnu-
mennsku og leikur með ÍA á kom-
andi leiktíð og þá hefur Arnar Gunn-
laugsson skipt yfir í IA frá KR.
(slandsmeistarar Víkings í 5. flokki sigurreifir í búningsklefanum ásamt Þrándi Sigurðsyni þjálfara liðsins
VISSIR
ÞÚ?
að hjá grensasvideo.is er
gert við alla geisladiska.
PlayStation • DVD • CD
X-BOX
Rispurnar eru fjarlægðar og
diskurinn verður sem nýr.
Verð aðeins 650.-
Grensásvideó.is
Grensásvegi 24
Sími 568-6635
Opið alla daga 15:00 til 23:30
íslandsmótið í
innanhúss fótbolta
Um helgina fóru fram úrslitin á ís-
landsmótinu í fótbolta innanhúss.
Keppt var í sex húsum, Laugardals-
höll, íþróttahúsinu í Austurbergi, á
Akranesi, að Varmá í Mosfellsbæ, í
Fylkishöllinni og í Kaplakrika.
Mikil barátta var að vanda og í 5.
flokki drengja var mikill slagur á
milli Gróttu og Víkings um titilinn.
I riðlakeppninni vann Grótta 3-0
og svo mættust liðin aftur og þá í
úrslitaleiknum. Þar höfðu Víkingar
betur og unnu 3-1 og urðu þar með
íslandsmeistarari í 5. flokki drengja.
Halldór B. Jónsson varaformaður KSl
afhendir fyrirliða Víkings Róbert Rúnari
Jack bikarinn.
ihiUOtl
Fulninga ogfranskir
hurðaflekarúreik
kirsuberi og hlyn
Skápahurðir
staðlaðarog
millistærðir margar
viðartegundir
Spónasalan ehf
Smiðjuvegi 40 gul gata
s 567 5550
www islandia.is/sponn
íslandsmeistarar í fótbolta innan-
húss um helgina urðu eftirfarandi:
2. flokkur karla-Fram
2. flokkur kvenna-KR
3. flokkur karla-Selfoss
3. flokkur kvenna-GRV(sameinað
lið Grindavíkur, Reynis Sandgerði
og Víðis úr Garði).
4. flokkur karla-í A
4. flokkur kvenna-FH
5. flokkur karla-Víkingur
5. flokkur kvenna-Valur.
Auglýsingadoild 510-3744
blaóió
Chelsea - Barcelona
mætast í kvöld
Það verður svo sannarlega hart bar-
ist á Stamford Bridge í kvöld þegar
flautað verður til leiks í fyrri leik
Chelsea og Barcelona í 16-liða úr-
slitum meistaradeildar Evrópu.
Þegar þessi lið mættust á síðustu
leiktíð meistaradeildarinnar hafði
Chelsea betur. Okkar maður Eiður
Smári Guðjohnsen var einn aðal-
maðurinn í 4-2 sigri Chelsea í seinni
leik liðanna og skoraði eitt mark í
leiknum.
Chelsea verður án Michael Essien
i báðum leikjunum gegn Barca en
Essien tekur út tveggja leikja keppn-
isbann. Þá er óvíst með þátttöku
Claude Makelele og William Gallas
sem glíma við lítils háttar meiðsli
en þó er reiknað með að þeir verði
með. Eiður Smári er í leikmanna-
hópi Chelsea og fastlega má reikna
með að hann verði í byrjunarliðinu.
Frank Rijkaard, þjálfari Barcel-
ona, mætir með alla sína sterkustu
menn til Lundúna. Ronaldinho lék
með liðinu að nýju um síðustu helgi
í deildarkeppninni og átti frábæran
leik í stórsigri Barcelona á Real Betis.
I leik liðanna á Stamford Bridge á
síðustu leiktið skoraði Ronaldinho
eitt glæsilegasta mark sem fótbolta-
unnendur hafa séð.
Spurningin er hvort hið léttleik-
andi lið Barcelona nær sér á strik í
leiknum í kvöld á nánast ónýtum
grasvelli Chelsea.
Bæði lið hafa yfirburðarforystu
í deildarkeppnum sinna landa og
unnu bæði sigra um síðustu helgi.
Claude Makelele á langflesta leiki
að baki í meistaradeildinni eða 72.
Til samanburðar hefur Eiður Smári
leikið 23 leiki í meistaradeildinni.
Þrír leikmenn í liði Chelsea eiga á
hættu að verða í leikbanni í seinni
leiknum ef þeir fá gula spjaldið hjá
Terje Hauge, dómara leiksins i kvöld.
Þetta eru Arjen Robben, John Terry
og Frank Lampard. Tveir liðsmanna
Barcelona fara í leikbann verði þeir
áminntir í kvöld, Rafael Marguez og
Mark van Bommel.
Aðrir leikir í meistaradeildinni
í kvöld eru Ajax og Inter sem leika
á Amsterdam-Arena vellinum í
Hollandi. Werder Bremen tekur á
móti Ítalíumeisturum Juventus og
í Glasgow mætast Rangers og Vill-
arreal. Allir leikir kvöldsins hefjast
klukkan 19:45.
ÍþRÓTTA8AND\LAÍi
akraness
Frá undirskrift samnings KB banka og fþróttabandalags Akraness í gær
ÍA og KB banki semja
I gær endurnýjuðu íþróttabanda-
lag Akraness og KB banki samn-
ing sinn sem gerir KB banka áfram
að aðalstyrktaraðila rekstrarfélags
meistaraflokks og 2. flokks félags-
ins. Með samningnum verður KB
banki aðalstyrktaraðili félagsins
til ársins 2010.
Samstarf lA og bankans má
rekja allt aftur til ársins 1991 og
Ingólfur Helgason, forstjóri KB
banka, sagðist mjög ánægður með
samninginn og það myndi ekki
líða á löngu þar til Skagamenn
kæmu með stóran bikar í hús.
Skagamenn ætla sér stóra hluti
í fótboltanum í sumar og hafa
fengið leikmenn eins og Þórð Guð-
jónsson og Arnar Gunnlaugsson
til liðs við sig.