blaðið - 22.02.2006, Blaðsíða 26
30IFÓLK
MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2006 blaðið
AF VÍGATÓLUM
OG VIMÁTTU-
HEIMSÓKM
ísland er vopnlaust land. Eða því hef-
ur verið otað að Smáborgaranum svo
lengi sem hann man eftir sér. Þessari
fullyrðingu hefur líka verið kastað
fram í nánast hverjum einasta ferða-
mannabæklingi sem Smáborgarinn
hefur fest hendur á svona til að undir-
strika hversu friðelskandi og Ijúf þessi
annars ágæta þjóð er.
Af þessari fullyrðingu gefinni vek-
ur það alltaf undrun hjá Smáborgar-
anum að það líðist að leggja stórum
sem smáum herskipum við bryggjuna
í miðbæ Reykjavíkur. Vissulega hlýtur
það að vekja undrun ferðamanna að
yfir höfuðborg þessa yfirlýsta vopn-
lausa lands gnæfa fallbyssukjaftar og
önnur vígatól. Hér á Smáborgarinn
að sjálfsögðu við þessar endalausu
vináttuheimsóknir erlendra herskipa.
Væri ekki sniðugra að finna þeim ann-
an stað til að leggja að bryggju en
einmitt í miðborginni sjálfri? h.e. ef
þessar blessuðu stórþjóðir finna sig
knúnar til að heimsækja okkur með
þessum hætti.
Það er í sjálfu sér annar handleggur
að senda vopnum búið vígatól í þeim
erindagjörðum að fara í vináttuheim-
sókn. Smáborgaranum finnst það
svipa til þess að hann skellti sér í
heimsókn til vina sinna vopnaður
hafnarboltakylfu og hnúajárni. Smá-
borgarinn er nokkuð viss um að
vinum hans þætti það ekkert sérstak-
lega vinalegt. En það kann svo sem að
vera á missirilningi byggt.
Ein frægasta „vináttuheimsóknin"
sem Smáborgarinn man eftir í fljótu
bragði var þegar þýska orrustuskipið
Schleswig-Holstein sigldi inn í höfn-
ina í Danzig í septemberbyrjun 1939
til sækja Pólverja heim. Seinna sama
dag komst þessi vináttuheimsókn á
spjöld sögunnar þegar þetta sama
orrustuskip hóf skothríð á borgina og
hleypti formlega af stað seinni heims-
styrjöldinni.
Nú er Smáborgarinn ekki að halda
því fram að svipuð örlög gætu beðið
okkar. Allavega á hann erfitt með
að ímynda sér að danska varðskipið
Vædderen hæfi skyndilega skothríð á
Reykjavík. Staðreyndin er engu að síð-
ur sú að vinátta og vopn eiga sjaldan
samleið og íslenskir ráðamenn ættu
að mati Smáborgarans að afþakka vin-
áttuheimsóknir af þessu tagi.
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Magnús Þór Hafsteinsson, alþingismaður.
Ættu karlar á þingi ekki að
taka þátt í Typpatali?
„Þessari hugmynd hefur ekki skotið upp hér á þinginu, en mér finnst hún
góð. Ef einhverjum dytti það í hug væri það hið besta mál.“
Alþingiskonur munu taka þátt í sérstakri sýningu á leikritinu Píkusögur í Borgarleikhúsinu þann 1. mars næstkomandi.
Jagger
heimsœkir soninn
Ellilífeyrisrokkarinn Mick Jagger tók sér dagsleyfi frá tónleikaferða-
lagi Rolling Stones um Suður-Ameríku og kom syni sínum á óvart
með heimsókn í skólann hans í Sao Paulo í Brasilíu.
Peyjann á hann með brasilísku fyrirsætunni Luciönu Gimenez en
frægt var þegar eiginkona Jagger til næstum 25 ára, Jerry Hall, skildi
við hann eftir að hann hélt framhjá henni með Gimenez.
Heimsóknin gekk ekki þrautalaust fyrir sig en svæðið í kringum
skólann var troðfullt af aðdáendum og ljósmyndurum. Peyjanum
var stungið snögglega inn í bíl, ásamt móður sinni, og varð Jagger
að bruna á eftir þeim til að sleppa við mannmergðina. Svona er
frægðin.
4»
Hjónabandið úrelt
Furðufuglinum Boy George finnst fáránlegt að samkynhneigðir berjist fyrir því að fá að
gifta sig þar sem honum finnst hjónaband úrelt fyrirbæri sem ekki á sér stað í nútíma eða
samkynhneigðri menningu.
George var steinhissa á ákvörðun Elton John og elskhuga hans, David Furnish, þegar þeir
létu gefa sig saman borgaralega í desember á síðasta ári, daginn sem það var leyft.
„Hjónabönd samkynhneigðra, hvað er það?“ gólaði Boy George hissa í samtali við
bresk götublöð. „Mér hefur ekki verið boðið í þannig athöfn og ég held að ég myndi
ekki fara hvort sem er. Mér finnst hrikalegt að samkynhneigðir þurfi að herma eftir
því sem augljóslega virkar ekki fyrir gagnkynhneigða lengur. Ég hlakka til skilnaða
samkynhneigðra.“
Lucy hlœr að sögusögnum
Leikkonan Lucy Liu, sem sló í gegn í þáttunum Ally McBeal og hasargrinmynd
unum Charlies Angels, hlær að sögusögnunum um að hún og hjartaknúsarinn
George Clooney hafi átt í ástarsambandi.
Lucy notar elstu tuggu í bókinni og segir þau aðeins vini. „Ef að ég og George
værum saman myndum við aldrei sýna það opinberlega,“ sagði hún ennþá hlæj-
andi. „Ég myndi kela við einhvern annan á almannafæri, en ekki George.“
;ingar
510 3744
eftir Jim Unger
Þú borðar of mikið af gulrótum.
© Jlm Unger/dlst. by Unlted Medla, 2001
HEYRST HEFUR...
Björgvin G.
Sigurðs-
son, þingmað-
ur Samfylk-
ingarinnar í
Suðurkjördæmi,
hefur óskað eft-
ir utandagskrárumræðu um
heimildir lögreglu til þess að
nota tálbeitur. Innan lögreglu
og dómsmálaráðuneytis hafa
menn rætt um óhefðbundnar
rannsóknaraðferðir eins og
tálbeitur af auknum þrótti
undanfarna mánuði þannig að
eflaust mun Björn Bjarnason,
dómsmálaráðherra, taka Björg-
vini betur en síðast þegar þeir
deildu um löggæslumál, meðal
annars í ritdeilu hér í Blaðinu...
ins vegar
lHs p y r j a
sumir hvort
löggæslumenn
Jeigi að stuðla
að lögbrotum
með tálbeitum
og telja að þar á verði einhverj-
ar hömlur að vera. 1 ljósi nýlegs
reykingafrumvarps Jóns Krist-
jánssonar, heilbrigðisráðherra,
ættu menn t.d. að hafa varann
á sér ef Haraldur Johannes-
sen, ríkislögreglustjóri, skyldi
vinda sér að manni á barnum
á næstunni og gefa eld...
thygli hefur
vakið að Páll
Magnússon, út-
varpsstjóri, hefur
setthinforlátuhús-
gögn fyrirrennara
sinna á sölu, enda áttaði hann
sig ekki á því til hvers hann
þyrfti rókokó-húsgögn sem
forseti Frakklands væri full-
sæmdur af. Antík-salar borgar-
innar hafa rætt það að þetta séu
engan veginn einu munirnir af
þessu tagi, sem finna megi í fór-
um hins opinbera. Vonast þeir
til þess að framtak Páls geti orð-
ið til þess að möppudýr verði
send niður í kjallara hinna og
þessara ríkisstofnana til þess
að finna fleiri gersemar...
Pau stórtíðindi bárust út í
gær að verkalýðsforysta
fólks í þægilegri innivinnu
hefði náð niðurstöðu um nýtt
heiti félagsins, eftir langvinna
verðlaunasamkeppni um nýtt
nafn, sem lýsa átti eðli félagsins
betur en hið myrkrum hjúpaða
dulnefni Verzlunarmannafélag
Reykjavíkur. VR mun því héð-
an í frá bera hið nýstárlega heiti
VR. Samkvæmt félaginu stend-
ur skammstöfunin nú fyrir
„virðingu og réttlæti“. Eða var
það fyrir „vitleysu og rugl“?
N
Pýjasta
I s k 0 ð -
anakönnun
Félagsvís-
indastofnun-
ar hefur
skotið bæði
Sjálfstæðismönnum og Sam-
fylkingarmönnum í Reykjavík
skelk í bringu. Könnunin bend-
ir nefnilega til þess að alls ekki
sé ólíklegt að „turnarnir tveir“
verði hnífjafnir í borgarstjórn
með sjö manns hvor. Oddamað-
urinn verði hins vegar Svandís
Svavarsdóttir, vonarstjarna
vinstri grænna. Óttast stóru
flokkarnir að í þeirri stöðu geti
hún samið um nánast hvað sem
er við hvorn flokkanna sem
væri og aukin heldur haldið
samstarfsflokknum í gíslingu
allt kjörtímabilið. Rauðliðarnir
eru hins vegar þegar farnir að
ræða um að kannski sé betra að
vera með einn borgarfulltrúa
en tvo ef þetta er afleiðingin...