blaðið - 09.03.2006, Síða 8

blaðið - 09.03.2006, Síða 8
8 I INNLENDAR FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 9. MARS 2006 blaöið Sífellt fleiri fá íslenskt ríkisfang Einstaklingum sem fá íslenskt ríkis- fang fjölgar stöðugt. Þannig fengu 725 íslenskt ríkisfang á síðasta ári á móti 161 einstaklingi árið 1991. Þetta kemur fram í tölum sem Hagstofa Is- lands birti í gær. Flestir einstaklingar sem fengu ís- lenskt ríkisfang á árinu 2005 höfðu áður ríkisfang í Póllandi eða 184. Næstflestir voru frá Serbíu og Svart- fjallalandi eða 72 og 50 höfðu áður ríkisfang í Taílandi. Pólverjum sem fá íslenskt ríkisfang hefur fjölgað mjög ört undanfarin ár. „Hverfandi fáir Pólverjar hlutu ís- lenskt ríkisfang framan af 10. áratug 20. aldar en undanfarin tvö ár hafa þeir verið langfjölmennastir einstak- linga sem öðluðust íslenskan ríkis- borgararétt", segir í úttektinni. Iin köld út á kjötiö, i fiskrétti, með reyktum silungi og fangi. Oóð með kötdum, steiktum lunda og sem ídýfa. Frábær köld úr dósinni eða hituð upp, meö lambakjöti, nautakjöti, fiski eða kjúkiingaréttum i ofni. Pip<Árscs<Á... ... jpeqár vindtar fivín! Stöðugt minni ánægja með þjónustu banka Ánægja viðskiptamanna með þjón- ustu banka og sparisjóða hefur farið stöðugt minnkandi á undanförnum árum samkvæmt ánægjuvog Gall- ups. Framkvæmdastjóri Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja segir auknar þjónustukröfur neytenda skýra að mestu leyti minnkandi ánægju. KB-banki lækkar mest Gallup birti á þriðjudaginn hina svokölluðu ánægjuvog sem mælir ánægju viðskiptavina með þjónustu 23 fyrirtækja árið 2005. Samkvæmt henni dró almennt úr ánægju viðskiptavina í mældum atvinnu- greinum nema hjá tryggingafé- lögum sem stóðu í stað. Ánægja með þjónustu banka og sparisjóða minnkar talsvert milli ára og almennt hefur ánægja við- skiptavina farið minnkandi síðan 1999 þegar mælingar hófust. Hæstu einkunn í ár hlaut Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis (SPRON) eða alls 74,8 stig. I fyrra mældist SPRON með 78,3 stig og hefur því lækkað um 3,5 stig milli ára. Lægstu einkunn fékk KB-banki eða 68,6 stig og lækkaði bankinn um 5,7 stig milli ára. Árið 2004 var KB-banki í öðru sæti í ánægjuvog bankanna en skipar nú það síðasta. Þá fékk íslandsbanki 71,7 stig og Landsbankinn 71,4 stig sem er ekki marktækur munur. Að mati Guðjóns Rúnarssonar, framkvæmdastjóra Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja, gæti skýr- ingin á minnkandi ánægju legið í auknum þjónustukröfum neytenda. Þá bendir hann á að bankar og spari- sjóðir mælist almennt mjög hátt í ánægjuvoginni miðað við önnur fyrirtæki. „Það sem áður var áber- andi gott hjá þessum fyrirtækjum er i dag eitthvað sem neytendinn býst við. Ég geri hins vegar fastlega ráð fyrir því að allir stjórnendur fyr- irtækja vilji fá sem flest stig hvað varðar ánægju viðskiptavina. Það er lykilatriði og þeir hljóta að taka þetta til sín.“ BlaSiö/Steinar Hugi Skiltin skúruð Starfsmenn Reykjavfkurborgar voru önnum kafnir við vorhreingerningar f gær og þrifu umferðarskilti bæjarins sem safnað hafa salti og drullu yfir vetrarmánuðina. IflSsiigiigiiíillíMKiilii EiarstYnðirlB.ensínTcralRáffna'QnsbílarJílmiklurúnvali * w. o VD vdo.is VDO Verkstæðið ehf. - Borgartúni 36 - s: 588-9747 Hvalveiðar í atvinnuskyni hefjist á ný íslendingar stefna að því að hefja hvalveiðar í atvinnuskyni að nýju. Þetta kom fram í svari Einars K. Guðfinnssonar, sjávarútvegsráð- herra, á Alþingi í gær. Einar svaraði Magnúsi Þór Haf- steinssyni sem spurði frétta af hrefnurannsóknum sem farið hafa fram undanfarin sumur. I svari ráð- herrans kom fram að stefnt væri að því að halda vísindaveiðum áfram í sumar með ekki minni krafti en gert hafi verið hingað til. Hvað veiðar í atvinnuskyni áhrærir sagði Einar, að „enginn væri hræddur" í þeim efnum. „Það liggur ekki fyrir hin pólítíska ákvörðun um hvenær veiðar verði hafnar, en ég sagði það áðan að stefnt væri að því að hefja veiðar í atvinnuskyni á ný," sagði Einar K. Guðfinnsson.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.