blaðið - 09.03.2006, Síða 37
blaðið FIMMTUDAGUR 9. MARS 2006
FORMÚLUNA í
BARNAEFNIÐ
atli@bladid.net
Ár eftir ár sýnir Ríkissjónvarpið
frá Formula 1 kappakstrinum sem
snýst um að hálfbrenglaðir og útlits-
gallaðir bílar keyra hring eftir hring
þangað til sá sami og sigraði síðast
sigrar aftur. Fjör.
Aldrei hef ég skilið af hverju fólk
horfir á þetta. Þessir „bílar“ geta
keyrt mjög hratt, jájá, húrra fyrir
því. Þeir endast þó yfirleitt ekki
lengur en nokkra hringi áður en
þeir bila, eða þurfa að taka bensín.
Þegar ég átti bíl gat ég keyrt heim til
móður minnar á Sauðárkrók og til
baka á einum tanki, það er hátt í 700
kílómetra leið og bíllinn bilaði aldr-
ei á þessu ferðum. 1 Formúlinni eru
þeir varla komnir af stað áður en
bensínið er búið og skipta þarf um
dekk! Ég hlae að því ég þurfti ekki að
skipta um dekk fyrr en fór að frysta
en um vorið gat ég tekið gömlu góðu
sumardekkin fram aftur.
Ég legg til að Ríkissjónvarpið
leggi metnað i að sýna frá viðburð-
um sem skipta máli því formúlan
er næstum því jafn langdregið sjón-
varpsefni og fótbolti. Þegar ég var
yngri fannst mér gaman að leika
mér með bílabraut sem hafði tvo
bíla á spori. Svo ýtti ég á takka á
fjarstýringu og bílarnir fóru á fullu
spani í hringi, svona svipað og form-
úlan. Þetta var alveg hrikalega gam-
an en ég var bara sjö ára. Ég legg til
að formúlan verði nýr dagskrárliður
í barnaefni sjónvarpsins.
DAGSKRÁI 37 '
ísland i dag i dúett
Von er á fjölmenni á Ölveri í karókí
ríka og fræga fólksins sem X-ið 97.7
stendur fyrir í kvöld. „Þetta er hald-
ið þarna í Ölveri í Glæsibæ og er fyr-
ir alla sem vilja koma og skemmta
sér,“ segir Viðar Ingi Pétursson, út-
varpsmaður á X-inu. „Þetta hefst
um klukkan níu og þarna verður
fullt af fínu fólki. Til dæmis Gísli
Marteinn, Oddný Sturludóttir, Óli
Palli, Inga Lind og Svanhildur ætla
að syngja dúett og svo kemur Þórar-
inn Tyrfingsson líka.“
Til styrktar góðu málefni
Á staðnum verða söfnunarbaukar
þar sem tekið verður á móti frjáls-
um framlögum til styrktar ung-
lingadeild SÁÁ. Aðspurður hvort
það orki tvímælis að halda fjáröfl-
un til styrktar SÁÁ á öldurhúsi segir
Viðar Ingi svo vissulega vera. „Við
erum samt ekki í beinu samstarfl
við SÁÁ. Við viljum bara gera eitt-
hvað skemmtilegt og láta gott af okk-
ur leiða um leið. Það er ekkert æðri
merking á bakvið þetta en það. Svo
má líka benda á að samtökin sjálf *
reka spilakassa um leið og þau veita
spilafíklum stuðning.“
Frítt er inn á staðinn og þarf eng-
an miða til að komast að. Vonast er
til þess að sigurvegari síðasta árs,
Arnar Björnsson, sjái sér fært að
mæta til að veita nýjum karókíkóngi
eða - drottningu titilinn.
◄
I
u
I
h
I
I
EITTHVAÐ FYRIR...
IES
Sjónvarpið, 22.25, Aðþrengdar
eiginkonur (29:47) (Desperate
Housewives) Bandarísk þáttaröð
um nágrannakonur í úthverfi sem
eru ekki allar þar sem þær eru séð-
ar.
Stöð 2, 21.45, Nip/Tuck (9:15)
(Klippt og skorið 3) Christian og
Quentin lendir enn og aftur saman
þegar þeir eru ósammála hvort þeir
eigi að taka að sér að framkvæma
hættulega lýtaaðgerð, sem vel getur
aukið hróður þeirra ... ef aðgerðin
heppnast þ.e.a.s. Stranglega bönnuð
börnum.
...ílughrœdda
Stöð 2, 20.55, Ryanair Caught
Napping (Ryanair hneykslið) Slá-
andi ný heimildarmynd frá bresku
sjónvarpsstöðinni Channel 4 þar
sem fréttamenn tóku sig til, réðu sig
sem flugliða hjá Ryanair, störfuðu
þar i heila fimm mánuði, og tókst
þannig að afhjúpa glæpsamlega
galla á öryggismálum þessa stærsta
lággjaldaflugfélags í Evrópu. Heim-
ildarmyndin hefur vakið gífurlega
athygli síðustu vikurnar eða síðan
hún var frumsýnd fýrst í Bretlandi
fyrr í febrúarmánuði og kveikti
tímabæra umræðu um þennan
meinta fylgifisk sífellt harðnandi
samkeppni á markaði lággjaldaflug-
ferða; vanrækslu í öryggismálum.