blaðið - 28.03.2006, Qupperneq 2
2 I ZNNLENDAR FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 2006 blaAÍA
blaðið—=
Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur
Sími: 5103700 • www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
510 3799
netfang: frettir@ bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Komnir í loftið
ATLANTSSKIP
-FLYTJA VORUR-
591 3000
Yfir helmingur sótti uppsagnarbréfin
Dæmdur í sekt
mbl.is | Héraðsdómur Reykjaness
hefur dæmt forsvarsmann verktaka-
fyrirtækis í 90 þúsund króna sekt
fyrir brot á lögum og reglum um
öryggi á vinnustöðum. Maðurinn
játaði brotið.
Fram kemur í dómnum, að við ný-
byggingu, sem verktakafyrirtækið
sá um, hafi ekki verið til staðar
fullnægjandi vinnupallar, en í stað
þeirra voru notaðar spýtur sem
lagðar voru milli gluggakarma í
u.þ.b. 6 metra hæð. Þá var ekki greið
aðgangsleið að byggingunni sem var
án þétts og trausts fjalagólfs og án
handriða. Mátti finna óvarin steypu-
styrktarjárn fyrir neðan brúna þar
sem fallhæð var um 3 metrar. f
dómnum kemur fram, að maðurinn
gerði strax þær lagfæringar á vinnu-
aðstöðunni, sem Vinnueftirlitið
hafði gert kröfu um.
Svo virðist sem starfsmenn varnar-
liðsins á Keflavíkurflugvelli hafi
almennt ekki viljað bíða eftir upp-
sagnarbréfum sínum því meira en
helmingur þeirra sóttu bréfin á
skrifstofu starfsmannahalds varn-
arliðsins í gær.
Nokkurs misskilnings virðist
hafa gætt í sambandi við uppsagn-
arfrest starfsmanna varnarliðsins.
Því hefur til að mynda ítrekað verið
haldið fram í fjölmiðlum síðustu
daga að uppsagnarfrestur meiri-
hluta starfsmanna sé sex mánuðir.
Þetta er ekki rétt því flestir starfs-
menn eru með þriggja mánaða
uppsagnarfrest. Hinsvegar taka
uppsagnir þær sem nú standa yfir
ekki gildi fyrr en um mánaðar-
mótin júní/júlí og hafa starfsmenn
því örugga atvinnu fram til loka
septembermánaðar.
Að sögn Friðþórs Eydal, upplýs-
ingafulltrúa varnarliðsins, munu
þó þrettán starfsmenn í snjóruðn-
ingum missa vinuna í lok júní.
Ástæðan sé einfaldlega sú að ekkert
sé fyrir þessa starfsmenn að gera
yfir sumartímann.
Allt gert til að létta undir
með starfsmönnum
Þrátt fyrir að starfsmenn séu al-
mennt strangt til tekið bundnir varn-
arliðinu til loka september segir Frið-
þór að ekki verði horft í það.
„Þegar svona er komið er auð-
vitað enginn hindraður í að hætta
störfum ef hann finnur sér nýja
vinnu. Það er verið að gera allt til
að létta mönnum lífið á þessum erf-
iða tímapunkti. Þeir þrettán starfs-
menn sem missa munu vinnuna
fyrst þurfa ekki að vinna síðasta
mánuðinn og fá þannig svigrúm
Mynd: Amar fells
til að finna sér ný störf. Aðrir starfs-
menn fá tvo daga í hverjum mánuði,
sem sagt allt að 12 daga, til að sinna
starfsleit," segir Friðþór.
Óvissunni lokið
Að sögn Guðbrands Einarssonar,
formanns Verslunarmannafélags
Suðurnesja hefur þjónustuskrifstofa
fyrir þá sem missa vinnuna þegar
tekið til starfa. Hún er samstarfs-
verkefni sjö stéttarfélaga á svæðinu
og Reykjanesbæjar.
„Þetta átti að byrja í dag“ sagði Guð-
brandur í samtli við Blaðið í gær.
Banaslys við Kárahnjúka
Annað banaslysiðfrá því aðframkvœmdir hófust. í báðum tilfellum
voru það starfsmenn verktakafyrirtœkis Arnarfells sem létust.
Tuttugu og sex ára gamall starfs-
maður verktakafyrirtækisins Arn-
arfells lést í fyrrinótt í spengingu á
vinnusvæði Kárahnjúkavirkjunar.
Slysið, sem átti sér stað á fimmta
tímanum, varð í svokölluðum að-
göngum 4, í Desjárdal. Starfsmað-
urinn var að koma fyrir sprengi-
hleðslum við stafn jarðganganna
þegar ein þeirra sprakk nálægt
honum. Maðurinn varð undir grjót-
hruni af völdum sprengingarinnar
og er talið að hann hafi látist sam-
stundis. Aðrir starfsmenn sem voru
við vinnu á svipuðum slóðum sluppu
án meiðsla. Lögregla og vinnueftir-
lit unnu í gær ásamt eftirlitsaðilum
á svæðinu að rannsókn málsins.
Tekist á um ábyrgð
Þetta er annað banaslysið á fram-
kvæmdasvæðiKárahnjúkavirkjunar
frá því framkvæmdir hófust árið
2003. Fyrra slysið átti sér stað þann
15. mars 2004 þegar starfsmaður
Arnarfells varð fyrir broti úr bergi
sem féll úr vegg Hafrahvamma-
Maðurinn sem lést f gær var við vinnu í svokölluðum aðgöngum 4 og vann við spreng-
ingar.
Pylsubarínn LaugardaP'
gljúfurs þar sem hann var við störf.
Sá var 25 ára gamall og vann hann
við undirbúning borunar í bergið
þegar grjóthnullungur losnaði og
féll á manninn með áðurnefndum
afleiðingum.
Tekist hefur verið á um ábyrgð í
því máli æ síðan. Ekki er langt síðan
aðalmeðferð lauk fyrir Héraðsdómi
Austurlands þar sem tveir yfirmenn
ítalska verktakafyrirtækisins Impre-
gilo, tveir yfirmenn hjá VIJV, sem
„Það var búið að finna húsnæði
og Mannafl, ráðningarskrifstofan
sem sjá mun um verkefnið, er þegar
tilbúin að taka á móti fólki. Eg hef
reyndar ekki haft miklar fréttir af
því hvernig þetta fer í gang enda er
þetta aðeins fyrsti dagurinn í verk-
efni sem taka mun nokkra mánuði.
Við ætlum okkur að greina aðstæður
á svæðinu og vinna í úrlausnum
fyrir starfsfólk með það að mark-
miði að koma því aftur út á vinnu-
markaðinn. Það eru hinsvegar ekki
bara þessir sex hundruð starfsmenn
varnarliðsins sem missa munu vinn-
una. Við vitum ekki ennþá hversu
mörgum einstaklingum þjónustuað-
ilar munu segja upp en þeir munu
líka hafa aðgang að þessari þjónustu-
skrifstofu okkar.“
Guðbrandur segir að mikill áhugi
sé fyrir þessu verkefni og viðbrögðin
jákvæð.
„Það hafa margir sett sig í sam-
band og margir hafa viljað koma á
framfæri hugmyndum um hvaða
þjónustuþættir geti nýst fólki. Ég
heyri ekki annað en að starfsmenn
séu ánægðir með að þetta sé gert“.
Hann segir ennfremur að þeir
sem þurfa á þessari þjónustu að
halda verði hvorki spurðir um stétt-
arfélagsaðild né búsetu - þjónustan
sé hugsuð fyrir alla þá sem á henni
þurfi að halda og ekki verði þar
gengið í manngreinarálit. Hvað
stemmninguna á svæðinu varðar
segir Guðbrandur.
„Mér finnsúað viðbrögðin nú séu
að fólk sé í raún fegið að þetta sé yfir-
staðið. Þetta hefur legið í loftinu ansi
lengi og nú þtígar þetta er allt komið
á hreint er óvissunni lokið og menn
geta farið að hugsa fram á við“.
sinnir eftirliti á framkvæmdasvæð-
inu og framkvæmdastjóri Arnarfels
eru sakaðir um að hafa ekki sinnt
öryggisþáttum á framkvæmdasvæð-
inu sem skildi.
Þeir sem til þekkja segja að ör-
yggismál hafi verið tekin rækilega
í gegn eftir það slys og hafi verið í
nokkuð góðu lagi æ síðan. Slysið nú
komi því sem reiðarslag fyrir fram-
kvæmdaaðila og alla þá sem vinna
að verkinu.
Úrvalsvísital-
an og krón-
an hækka
Úrvalsvísitala Kauphallarinnar
hækkaði um 2,29% í gær eftir að
hafa falliðíum 4,43% á föstudag-
inn. Mesf; hækkuðu hlutabréf
í Glitni áður Islandsbanki um
4,12% og nkst mest í Mosaic Fas-
hion um 4,07%. Hlutabréf í KB-
banka hækkuðu um 2,47% í gær
og hlutabréf í Landsbankanum
2,01%.
Mest lækkuðu hlutabréf í At-
orku um 2,44% í gær og þá hluta-
bréf í Marel um 2,05%. Viðskipti
með hlutabréf námu alls 5,6
milljörðum og þar af 2,3 millj-
arðar með hlutabréf í KB-banka.
Við lokun banka í gær hafði
krónan styrkst um 1,06% og var
dollarinn 72,38 og pundið 126,5.
Heiðskírt 0 Léttskýjað Skýjað Alskýjað ✓ / Rigning, lítilsháttar Rigning 9^9 Súld j*' Snjókoma ’fj Slydda JJ Snjóél JJ Skúr
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Frankfurt
Hamborg
Helsinki
11
18
11
04
13
10
0
-1«
_ >j< -
P. *
*
Kaupmannahöfn 07
London 11
Madrid 15
Mallorka 19
Montreal 0
New York 04
Orlando 11
Osló 03
París 9
Stokkhólmur 04
Þórshöfn 05
Vín 11
Aigarve 16 Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Dublin 07 Veðursíminn 902 0600
Glasgow 08 Byggt á upplýslngum frá Veðurstofu Islands
f,
0C
Á morgun
'l' >k 'l'
-1° * _r*
0°