blaðið - 28.03.2006, Síða 8
ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 2006 blaðiö
8 I ERLENDAR FRÉTTIR
Vildu fá ömmu í herinn
Sonia Goldstein, sem er 78 ára gam-
all ellilífeyrisþegi í Kalíforníu, brá í
brún þegar hún opnaði póstinn sinn
á dögunum. Meðal þeirra bréfa sem
hún fékk var ósk frá Bandaríkjaher
um að hún hugleiddi alvarlega að
ganga til liðs við landgönguliðið.
Hermálayfirvöld höfðu sérstakan
áhuga á að njóta „hinna einstöku
tungumálahæfileika hennar.” Þrátt
fyrir áhugann bentu þeir ömmunni
á að líf landgönguliðans sé erfitt
og reyni á andlegt og líkamnlegt
atgervi.
„Hinir einstöku tungumálahæfi-
leikar' Soniu Goldsteins felast í góðri
enskukunnáttu, því móðurtungan
er eina málið sem hún talar. Sonia,
sem styðjast þarf við göngugrind til
Sonia Goldstein treystir sér ekki til að ger-
ast landgönguliði í bandaríska hernum
þess að komast ferða sinna, segist til-
búin að gera allt fyrir föðurland sitt
en segist ekki nógu spræk til þess að
geta gerst landgönguliði.
Talsmaður Bandaríkjahers
afsakaði bréfsendinguna og sagði
mistök hafa átt sér stað.
Strepsils töflur eru látnar renna í munni og leysast þar hægt upp. Þannig nást fram staðbundín sótthreinsandi áhrif
í munni og koki. Auk þess hafa bragðefnin væg kælandi áhrif sem slá á ertingu. Venjulega er ein tafla látin leysast
hægt upp í munni á 2-3 klst fresti. Lyfið þarf venjulega að nota i 3-4 daga og stundum í allt að eina viku. Einnig
má leysa upp 1 -2 töflur í heitu vatni og drekka sem heitan drykk. Notkun lyfsins hefur enain áhrif á önnur lyf sem
notuð eru samtímis. Ofnæmi eða ofnæmislík viðbrógð geta komió fyrir en eru afar sjaidgæí. Hver pakki af Strepsils
inniheldur 24 munnsogstöflur. sem eru í hentugum þynnupakkningum. Hverri pakkningu fylgja viðurkenndar
leióbeiningar á íslensku um notkun lyfsins. sem gott er að kynna sér vel. Geymið þar sem börn nvorki ná til né sjá.
HALSTOFLUR
- eina skráða hálslyfið á íslandi.
VLyf&heilsa
Við hlustum!
Austurstræti ■ Austurveri • Domus IVIedica • Firði, Hafnarfirði ■ Fjarðarkaupum
Glæsibæ ■ Hamraborg Kópavogi ■ JL-húsinu ■ Kringiunni i ,hæð • Kringlunni 3.hæð
Melhaga ■ Mjódd ■ Mosfellsbæ ■ Salahverfi • Eiðistorgi ■ Hellu • Hveragerði • Hvolsvelli
Kjarnanum Selfossi • Vestmannaeyjum • Þorlákshöfn ■ Dalvík • Glerártorgí Akureyri
Hrísalundi Akuroyri • Ólafsfirði ■ Akranesi ■ Keflavik
Gengið til þingkosn-
inga í ísrael í dag
Reuters
Hermenn bera kassa með utankjörstaðaratkvæðum frá Kerim Shalom eftirlitsstöð-
inni við landamæri Egyptalands.
Þingkosningar hefjast í Israel í dag,
þriðjudag og benda kannanir und-
anfarna daga til þess að Kadima-
flokkurinn, sem Ariel Sharon þá-
verandi forsætisráðherra stofnaði
á síðasta ári, muni fá 34 af 120 þing-
sætum. Ehud Olmert, starfandi for-
sætisráðherra og leiðtogi flokksins,
hefur lýst því yfir að hann þurfi að
vinna að minnsta kosti, 40 þing-
sæti, til þess að geta myndað ríkis-
stjórn með starfshæfan meirihluta
á þingi. Samkvæmt könnunum
verður þetta í fyrsta skipti í áratugi
að annar flokkur en Verkamanna-
flokkurinn eða Likud-bandalagið
fái flest þingsæti.
Talið er líklegt að Kadima-flokk-
urinn myndi stjórn með Verka-
mannaflokknum eftir kosning-
arnar ef spár kannana undanfarna
daga ganga eftir.
Helsta kosningamál Kadima-
flokksins er að draga endanleg
landamæri Israelsríkis fyrir árið
2010. Til þess að framfylgja þeirri
stefnu munu nokkrar landnema-
byggðir Israelsmanna á Vestur-
bakkanum verði y firgefnar og hluti
af landsvæði Palestínu innlimaður
í Ísraelsríki. Palestínumenn hafa
lýst því yfir að ef tillögurnar gangi
eftir kippi það efnahagslegum
stoðum undir tilvist palestínsks
ríkis. Olmert hefur lýst því yfir
að hann muni framfylgja þessari
stefnu án samráðs við Palestínu-
menn ef þurfa þyki en jafnframt
ítrekað að ísraelsstjórn muni ráð-
færa sig við helstu bandamenn sína
um framtíðarlandamæri ríkisins.
Mikill viðbúnaður er í ísrael í
dag en óttast er að hryðjuverka-
menn láti til skara skríða til þess
að trufla kosningarnar. Yfir 20
þúsund lögreglumenn hafa verið
kallaðir út til að tryggja öryggi kjós-
enda og frambjóðenda.
„Ég á óvini i Þýskalandi"
Lech Kaczynski, forseti Póllands, segir logið upp á sig íþýskum fjölmiðlum.
Lech Kaczynski, forseti Póllands,
hefur sakað stjórnvöld í Þýska-
landi um óeðlileg afskipti af innan-
ríkismálum og kveðst eiga óvini í
nágrannaríkinu.
Grunnt hefur verið á því góða
með nágrönnunum að undanförnu
og er sú staða mála einkum rakin til
ummæla forsetans sem þykir afar yf-
irlýsingaglaður stjórnmálamaður.
„Ég a óvini í Þýskalandi,“ sagði
hinn íhaldssami Kaczynski í viðtali
við slóvakíska dagblaðið Pravda
á dögunum. Fullyrti forsetinn að
þýskir fjölmiðlar hefðu breitt út um
hann lygar og óhróður.
Fyrr í þessum mánuði sagði
Kaczynski í viðtali við þýska dag-
blaðið Die Welt að Evrópusambandið
væri „hreinn tilbúningur“ og heldur
máttlaust fyrirbrigði þar sem fjárlög
þess væru aðeins „táknræn".
Þessi ummæli vöktu athygli í
Þýskalandi og frá þeim var greint.
Nú segir Póllandsforseti að allt sé
þetta hreinn tilbúningur. „Þetta er
hreinn uppspuni. Þetta er fráleitt.
Lech Kaczynski telur sig eiga óvini í
Þýskalandi og segir Evrópusambandið
vera tilbúning.
Allt er þetta tómur misskilningur,“
sagði Kaczynski í viðtali við Pravda.
Hann vék sér því næst að því að
gagnrýna þýsku ríkisstjórnina og
afstöðu hennar til stjórnarskrár Evr-
ópu sem kjósendur í Frakklandi og
Hollandi höfnuðu í fyrra í þjóðarat-
kvæðagreiðslu. „Ég er hlyntur því
að fram fari viðræður um stjórnar-
skrána en ekki á þeim grundvelli
sem Þjóðverjar hafa lagt til,“ sagði
Kaczynski. „Stjórnin í Berlín getur
ekki sagt Pólverjum fyrir verkum,“
bætti hann við.
Kaczynski var kjörinn forseti
Póllands í fyrra. Hann telst vera
íhaldsmaður og grunnt er á þjóð-
ernishyggju í málflutningi hans. 1
kosningaharáttunni lagði hann
ríka áherslu á sérstöðu Póllands
gagnvart Evrópusambandinu og
Þýskalandi sérstaklega. Féll sú
nálgun hans í frjóan svörð, að mati
fréttaskýrenda.
Fyrr í þessum mánuð hélt forset-
inn í sína fyrstu opinberu heimsókn
til Þýskalands. Hann átti þar fund
með Angelu Merkel kanslara sem
leitast hefur við að bæta samskipti
ríkjanna. Þótti Kasczynski sýna
þeirri viðleitni hennar lítinn áhuga.
DANISH DESIGN
r
KVIK opnar verslun á Islandi
31. mars 2006 opnar Kvik glæsilega verslun að Skútuvogur I IA í Reykjavi1<.
Við hjá Kvik teljum að ,,a(íir eigi rétt á flottu eldhúsi" og við seljum nýtískuleg eldhús og
baðherbergi á lágu verði í meira en 80 vei-slunum um alla Evrópu. Einstök hugmynd Kvik
felur í sér danska hönnun í hæsta gæðaflokki á lægsta verði sem býðst á mai'kaðnum og
skjótri afgreiðslu á draumaeldhúsinu þínu.
Komdu í heimsókn um opnunarhelgina föstudaginn 3I. mars til sunnudagsins 2. apríl 2006
og taktu þátt í keppni um gjafakort frá Kvik að andvirði 100.000,-.
ALLIR EIGA RÉTT Á FLOTTU ELDHÚS
nádor'
0-
kvik