blaðið - 28.03.2006, Blaðsíða 10

blaðið - 28.03.2006, Blaðsíða 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 2006 blaðiö Jústsjenkó milli steins og sleggju Auðvelt að skipta um myndefni www.somskipti.is verð frá kr. 2.4 90 +24,5% vsk inm-.u skilti upplýsingor í síma 580 7820 verð fra kr. 9.900 +24,5% Hægt að fella saman vsk S44tSKIPTI >5^ prcnllausnir fyrir skapandrfolk Viktor Jústsjenkó veltir vöngum yfir stöðu mála. Erfiðar stjórnarmyndunarvið- ræður eru framundan {Úkraínu í kjölfar þingkosninganna á sunnu- dag. Niðurstaða þeirra er talin geta ákvarðað hvort stjórnvöld halli sér að Evrópusambandinu og NATO til framtíðar eða hvort tengslin við Rússland verði styrkt áný. Lokaniðurstöður kosninganna verða birtar í dag, þriðjudag. Það liggur fyrir að Héraðsflokkur Vikt- ors Janúkóvitsj, fyrrverandi forsæt- isráðherra, fékk flest atkvæði, eða um 30% miðað við þau atkvæði sem talin höfðu verið í gær. Okkar Úkra- ína, flokkur forsetans Viktors Júst- sjenkó, galt afhroð og fékk um 16% atkvæða. Sigurvegari kosninganna er umbótasinninn Júlía Tímósjk- enkó en flokkur hennar, BYT, fékk um 24% atkvæða í kosningunum. Tímósjenkó var bandamaður Jústsjenkó í appelsínugulu bylting- unni 2004 en eftir að forsetinn vék henni úr embætti forsætisráðherra s.l. haust stofnaði hún eigin flokk og hefur hann nú lykilstöðu á þinginu. Líklegt er að stjórnarsamstarf um- bótasinna ráðist af því hvort að þau Jústsjenkó og Tímósjenkó geti lagt persónulegan ágreining til hliðar. í gær tókTímósjenkó frumkvæðið { stjórnarmynduninni og lýsti því yfir að frjálslyndu flokkarnir, BYT og Okkar Úkraína, ættu að mynda samsteypustjórn með nokkrum smá- flokkum undir forsæti hennar. Þetta myndi þýða að áframhald yrði á sam- starfi umbótasinna með breyttum valdahlutföllum. Jústsjenkó brást við boði um samstarf á varfærinn hátt og lýsti því yfir í gær að stjórn- málamenn landsins ættu að gefa sér tíma til að fara yfir stöðuna {kjölfar útslitanna. Janúkóvitsj tók einnig í sama streng, en hann bíður átekta á hliðarlínunni eftir því hvort áfram- hald verði á samstarfi umbótasinna. Efnahagurinn gróf Reuters undan forsetanum Ástæðurnar fyrir slæmu gengi flokks forsetans í kosningunum eru raktar til veiks efnahags í land- inu. Hækkun Rússa á gasi sem selt er til Úkraínu kom þungt niður á almenningi í frosthörkunum í vetur. Auk hækkandi orkuverðs hefur lágt heimsmarkaðverð á helstu út- flutningsafurðum Úkraínu leitt til minnkandi hagvaxtar. Stór hluti kjósenda telur að Hér- aðsflokkur Viktors Janúkóvitsj geti snúið ástandinu í efnahagsmálum við. Hann er leynt og ljóst studdur af stjórnvöldum í Moskvu og eru þau talin líkleg til að koma úkraínskum efnahags til hjálpar komist flokkur- inn til valda. Flokkur Tímósjenkó barðist fyrir umbótastefnu í kosning- unum en efnahagsstefna flokksins hefur þótt bera keim af popúlisma og sem hefur fallið í góðan jarðveg hjá kjósendum. Hinsvegar er ekki víst að erlendum fjárfestum lítist jafn vel á stefnumál flokksins, en eitt brýnasta verkefni úkraínskra stjórnvalda er að laða til sín erlenda fjáfestingu í helstu útflutnings- geirum landsins: stál- og efnaiðnaði. Ágreningur er á milli flokka Júst- sjenkó og Tímósjenkó um einkavæð- ingaráform á þessum geirum. Erfitt val hjá Jústsjenkó Staða forsetans er erfið eftir kosning- arnar. Jústsjenkó er á öndverðum meiði við Viktor Janúkóvitsj, sem hann velti úr sessi í appelsínugulu byltingunni 2004, í flestum málum. Grundvallarágreiningur er á milli þeirra um hvert Úkraína eigi að stefna í framtíðinni. Jústsjenkó vill nánari samband við Evrópusam- bandið og að landið gangi í NATO á meðan flokkur Janúkóvitsj vill nán- ari tengsl við Rússa og hafnar algjör- lega aðild að NATO. Þrátt fyrir að flokkur Júlíu Tímósj- enkó, BYT, standi nær umbótastefnu forsetans telja stjórnmálaskýrendur að erfitt geti verið fyrir þau að starfa saman sökum þeirra deilna sem risu upp á milli þeirra s.l. haust. Talið er víst að Tímósjenkó muni notfæra sér lykilstöðu sína og krefjast þess að fá forsætisráðherrastólinn ásamt meirihluta ráðherraembætta í sam- steypustjórn umbótasinna. Telji Júst- sjenkó kröfur Tímósjenkó óásættan- legt er hugsanlegt að hann freisti þess að mynda stjórn með flokki Janúkóvits. MVONGOOSE —Blvöru fjallahjól VARIST VmÍKINGAR smellu- rammar lVax Comp Kr. 36.900 Álstell 6061 I Dempari I Spinner Grind OS-1 1100mm slaglengd 1 stillanlegur 124 gíra Shimano Acera WVÓNCÖÖSE Rockadile Kr. 28.900 Álstell 6061 I Dempari I RST Gila T6 1100 mm Slaglengú I Álstell 6061 I Dempari Suntour M-2000 I 21 gíra Shimano TX-30 Álstell 6061 I Dempari Suntour > M-2000 I 21 gíra Shimano TX-30 www.gap.is Álstell 60611 Dempari Rock Shox J2.51 Slaglengd 100 mm stillanlegur, læsanlegur I 24 gíra SRAM SX-5.0 Rockadile 24“ Kr. 26.900

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.