blaðið - 28.03.2006, Qupperneq 12
12 I NEYTENDUR
ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 2006 blaöiö
Bensínverð í
hœstu hœðum
Lítraverð hefur hœkkað um tœpar 17 krónur á einu ári.
Kristján segir skil milli auglýsinga og annars efnis í fjölmiðlum óskýr.
Góö listræn aug-
lýsing selur ekki
endilega vöruna
„í mörgum auglýsingum er reynt að hafa vit
fyrirfólki ístaðþess að höfða til vitsins ífólki.“
Verð á bensíni heldur áfram að
hækka, og síðasta verðhækkun varð
í liðinni viku. Eftir þá hækkun er
verð á 95 oktana bensíni á bilinu
115,7-117,4 krónur í sjálfsafgreiðslu.
Þessa vikuna er Orkan með lægsta
bensínverðið 115,7 krónur en fast á
hæla hennar koma Atlantsolía og
ÓB sem selja lítrann á 115,8 krónur.
Á hinum enda listans er Essó
með hæsta verðið, 117,4 krónur á af-
greiðslustöðunum í Borgartúni og
Stóragerði. Á heimasíðu Essó má sjá
verðbreytingar á bensíni nokkur ár
aftur í tímann og þar má sjá að frá
áramótum hefur verð á 95 oktana
bensíni með fullri þjónustu hækkað
um tæpar átta krónur. Á sama tíma
í fyrra kostaði bensínlítrinn með
fullri þjónustu 105,6 krónur en
kostar nú 122,4 krónur sem gerir
hækkun upp á 16,8 krónur.
Hugi Hreiðarsson markaðsstjóri
hjá Atlantsolíu segir tonnið af bens-
íni hafa farið yfir 600 dollara í síð-
ustu viku en hafi verið vel undir 300
dollurum þegar Atlantsolía fór fyrst
á markað fyrir um tveimur árum.
„Þegar verðhækkanirnar urðu í
síðustu viku biðum við í tvo sólar-
hringa eftir að hækka verðið hjá
okkur á meðan stóru olíufélögin
hækkuðu verð hjá sér nær samtímis."
Hugi segir að þegar Atlantsolía hóf
starfsemi sína hafi fyrirtækið gert
tilraun til að sleppa því að hækka
verð þegar hin félögin gerðu það.
,Þetta leiddi ekki til fjölgunar við-
skipavina og hin olíufélögin svör-
uðu þessu með því að afturkalla
hækkanir hjá sér. Atlantsolía heldur
þó ótrauð áfram og samkeppni á
bensínmarkaði byggist á því að við
séum með.“
Runólfur Ólafsson framkvæmda-
stjóri FIB segir bensínverð komið í
hæstu hæðir og engin trygging fyrir
því að verð eigi ekki eftir að hækka
enn frekar. „Hátt heimsverð bens-
íns og hækkandi verð dollars hefur
vissulega áhrif til hækkunnar en
álagning olíufélaganna hefur einnig
hækkað og var óvenju há í síðasta
mánuði þó hún hafi lækkað aftur í
meðalálagningu núna. Samkeppnin
á markaðnum hefur klárlega aukist
með tilkomu Altantsolíu en slag-
kraftur félagsins er þó takmarkaður
þar sem erfitt getur reynst fyrir
nýjan aðila að komast inn á mark-
aðinn.“ Runólfur segir það réttláta
kröfu að kjörnir fulltrúar tryggi að
nýir aðilar á markaði eigi greiða
innkomu.
hugrun@bladid.net
Margir hafa orðið varir við
nýjar sjónarpsauglýsingar þar
sem Glitnir auglýsir þjónustu
sína. Sitt sýnist hverjum um
auglýsinguna en það sem flestir
taka a.m.k. eftir er að hún er í
lengri kantinum. Kristján Guð-
mundsson doktor í heimspeki
hefur gefið út bók um auglýs-
ingasálfræði og er nú að gefa út
aðra sem heitir Myndveruleik-
inn og fjallar um auglýsingar í
fjölmiðlum. Blaðamaður spurði
Kristján um nýja auglýsingu
Glitnis og fékk einnig álit hans
á auglýsingum í fjölmiðlum á
íslandi.
„Auglýsingar í ljósvakamiðlum eru
að lengjast og þær eru orðnar fleiri
en þær hafa áður verið. Það sem
Glitnir er að gera með auglýsingum
sínum er að búa til nýja ímynd og
þegar hún hefur stimplast inn í
áhorfendur verða auglýsingarnar
að öllum líkindum styttar. Þessi
herferð er örugglega mjög dýr en
nauðsynleg til að stimpla inn nýtt
nafn og skapa bankanum nýja
ímynd og þurrka um leið út gömlu
Islandsbankaímyndina."
Kristján segir ekki gefið að auglýs-
ingaherferðir heppnist og nefnir því
til staðfestingar auglýsingu trygg-
ingarfyrirtækis þar sem slagorðið
var „þú tryggir ekki eftir á“.
„Þegar fólk var spurt að því hvaða
tryggingarfélag hefði staðið að
baki auglýsingunni svaraði það
handahófskennt og gat ekki tengt
auglýsinguna tryggingarfélaginu.
Þessi auglýsing hafði góða listræna
framsetningu en var ekki góð fyrir
fyrirtækið þar sem fólkið tengdi
hana ekki réttum aðila. Þá eru aug-
lýsingar stundum gerðar af kvik-
myndagerðarmönnum sem eru í
raun að gera stuttar útgáfur af kvik-
mynd í auglýsingunum."
Leiðinleg auglýsing getur
skílað góðum árangri
Kristján segir einnig dæmi þess að
leiðinlegar auglýsingar hafi skilað
góðum árangri og vitnar því til stað-
festingar til smjörlíkisauglýsingar-
innar frá Ljóma þar sem meðlimir
Ríó Tríósins sungu um hve Ljóminn
væri ljómandi góður.
„Til að auglýsing virki þarf hún
bæði að vera góð listrænt séð og
einnig að vera þannig að fólk tengi
auglýsinguna við þann sem auglýsir.
Fólkþarflíka að tengja auglýsinguna
einhverju jákvæðu og uppbyggilegu.
Hið nýja lógó Glitnis er í þessum
anda en það er rauð beygja sem auð-
velt er að tengja brosi eða uppsveiflu
á línuriti. í sjónvarpsauglýsingunni
er hamrað á orðinu velgengni sem á
að fá fólk til að tengja bankann vel-
gengni og hagsæld. I nútímasamfé-
lagi er mikilvægt að vera sýnilegur
með því að auglýsa því annars er
hætta á að fyrirtækin verði undir í
samkeppninni."
Kristján segir ýmsar leiðir til
að koma skilaboðum á framfæri í
gegnum auglýsingar. „Ein leið er
svokallað „element of surprise" en
tryggingarfélagið Elísabet notaði
einmitt þessa aðferð. Þessar auglýs-
ingar virka þannig að auglýsingin
er byggð upp eins og framhaldssaga
og fólk þarf í raun að geta sér til um
hvað er verið að auglýsa."
Óskýr skil á milli auglýsinga
og annars efnis í fjölmiðlum
í tengslum við skrif bókar sinnar
Myndveruleikinn hefur Kristján
velt vöngum yfir auglýsingum í fjöl-
miðlum og það er hans mat að mörk
milli auglýsinga og annars efnis í
fjölmiðlum séu orðin mjög óskýr.
„Stundum sér maður límda auglýs-
ingu á forsíðu dagblaðanna en það
finnst mér mjög langt gengið. f sjón-
varpi er auglýsingum lumað inn á
milli kynningar og dagskrárliða
eins og t.d. framanvið veðurfrétta-
tímana. Þá kemur fram eftir Fréttir
hvaðan fötin sem fréttaþulirnir
klæðast eru og mér finnst þetta allt
dæmi um það hversu óskýr skil á
milli auglýsinga og annars efnis eru
orðin." Kristján segir að með þessu
áframhaldi verði þess ekki langt
að bíða að auglýsingahlé verði gert
á draumum fólks. „Auglýsendur
eru farnir að teygja sig mjög langt
og má þar nefna auglýsingar við
umferðargötur.
Einnig ríkir ákveðinn tvískinn-
ungur í því hvað má auglýsa og
hvað ekki. Mér finnst t.a.m. rangt
að íslenskir bjórframleiðendur fái
ekki að auglýsa framleiðslu sína og
ég vil að það sé réttlát samkeppni
á þessum markaði. Eins og staðan
er núna er í raun verið að kenna
ákveðin öfugmæli því það er verið
að auglýsa bjór með 5% styrkleika
en áhorfendur eiga að trúa því að
innihaldið sé 1%. Sá bjór er hins-
vegar aðeins seldur í einni verslun
í bænum og enginn kaupir hann.“
Kristján segir að með svona auglýs-
ingum sé 1 rauninni verið að hafa
vit fyrir almenningi í stað þess að
höfða til vitsmuna fólks.
hugrun@bladid.net
eru ódýrastir?
Samanburður á verði 95 oktana bensíns
AO Sprengisandur 115,80 kr. Kópavogsbraut 115,80 kr. Óseyrarbraut 115,80 kr.
ÓeGQ Vatnagarðar 115,80 kr. Fellsmúli 115,80 kr. Salavegur 115,80 kr.
<0> Ægissíða 116,90 kr. Borgartún 117,40 kr. Stóragerði 117,40 kr.
olís Álfheimar 117,30 kr. Ánanaust 116,90 kr. Gullinbrú 116,80 kr.
Eiðistorg 115,70 kr. Klettagarðar 115,70 kr. Skemmuvegur 115,70 kr.
ORKAN
03 Arnarsmári 115,80 kr. Starengi 115,80 kr. Snorrabraut 115,80 kr.
Gyifaflöt 116,80 kr. Bæjarbraut 117,30 kr. Bústaðarvegur 116,90 kr.
I Tölvu- ■ Wm PC-korekort
j ökuskírteint ■ ■■
• •
HVERS VEGNA
TÖLVU-
Curopeislut
. Oatakörkortet
Tíetotekniikan osaamisen Eurr>pean Computcr
Eurooppalainen ykköstodislus Oriving Liccnce
TÖK tölvunám fyrir byrjendur
TÖK er skammstöfun á al-
þjóðlegu prófskírteini sem
vottar tölvukunnáttu þína og
vottar a5 þú sért tölvulæs.
Það þýðir að þú kunnir að
nýta þér flesta möguleika
tölvunnar og þeirra forrita sem
hvað mest eru notuð við
vinnu og daglegt líf.
TÖK-skírteini er mikill styrkur
á vinnumarkaðinum jafnt hér-
lendis sem erlendis.
TÖK tölvunám er 90 stunda tölvunám hjá NTV sem
bæði er ætlað fyrir byrjendur og þá sem eitthvað
kunna. Námið og kennslugögnin miða að því að
gera nemendum kleift að taka þau 7 próf sem þarf til
að fá TÖK skírteini.
Námsgreinar:
Upplýsingatækni - Windows - Word - Excel
Access - PowerPoint - Póstur - InternetiÖ
Morgunnámskeið:
Byrjar 19. apr. og lýkur 22. maí.
Kennt er mán., mið. og fös.
frá kl. 8:30-12:30
Kvöldnámskeið:
Byrjar 3. apr. og lýkur 29. maí.
Kennt er mán. og mið. frá 18 til 22
ntv
Hlíðasmára 9 - Kópavogi
UPPLÝSIISIGAR OG SKRÁNING í SÍMA 544 4500 OG Á NTV.IS