blaðið - 28.03.2006, Síða 16
ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 2006 blaðiö
16 I BÍLAR
Atlants-
olía og FÍB
semja um
dælulykil
og afslátt
Síðastliðinn föstudag, und-
irrituðu þeir Árni Sigfússon,
formaður FÍB, og Geir Sæ-
mundsson, framkvæmdastjóri
Atlantsolíu, samning um afslátt
af eldsneyti. Undirritunin fór
fram á bensínstöð Atlantsolíu
í Reykjanesbæ, en þar er Árni
jafnframt bæjarstjóri.
Samningurinn veitir félags-
mönnum FlB rétt til að fá
sjálfvirkan dælulykil að elds-
neytisdælum á bensínstöðvum
Atlantsolíu og tveggja krónu af-
slátt af verði hvers litra.
Samningurinn er nýmæli
fyrir félagsmenn FÍB, en með
honum geta þeir sparað árlega
um 8o milljónir í eldsneytis-
kaupum. í samningnum er
ennfremur ákvæði um að Atl-
antsolía muni engum veita
betri afsláttarkjör í smásölu en
félögum FÍB.
Samkvæmt upplýsingum frá
FÍB hafa tvö af stærstu systurfé-
lögum FÍB í Bandarikjunum og
Evrópu, með rúmlega 6o millj-
ónir félagsmanna innan sinna
vébanda, sýnt þessu samstarfi
FÍB og Átlantsolíu mikinn
áhuga. Ekki síst finnst þeim
dælulykillinn byltingarkennd
nýjung sökum áreiðanleika og
einfaldleika í notkun.
Smáauglýsingar
510-3737
Augtýsingadeild
510-3744
Hyundai Santa Fe í reynsluakstri
BlaÖiÖ/lngó
loftpúðar í bílnum og tæknilýsingin
greinir frá vel falinni veltigrind.
Nytsemd og gæði
I venjulegum borgarakstri kemur
Santa Fe vel út, hann er á við venju-
legan fjölskyldubíl í akstri, en hefur
stærðina að auki. Það fer vel um fólk
í honum og það er auðvelt að koma
ungunum fyrir. Um leið kom hann
þægilega á óvart úti á landi. Bíllinn
er vel úti látinn af staðalbúnaði og
hvað gæðin varðar eru þau í góðu
lagi. Það má tína til fleiri smátriði ef
grannt er leitað, en miðað við verð-
flokkinn er það óviðeigandi. Maður
er einfaldlega að fá mikið fyrir
peninginn
Andrés Magnússon
Samdráttur í bílainn-
flutningi á árinu
Hyundai Santa Fe 2,7 V6
B&L
Verfi: 2.930.000
Fjölnotabfll
Eldsneyti: Benzín
Lengd:4,50m
Breidd: 1,82
Þyngd: 1.793 kg
Dyr:5
Vélarstærð: 2700 cc
Hestöfl: 175
Kostir: Þægilegur, snotur, gott verfi.
Gallar: Vantar snerpu, hávær.
Niðurstaða: Það er óhætt að mæla
með Hyundai Santa Fe til flestra al-
mennra fjölskyldunota. Hann er vel
útbúinn og miðað við verð kemur
hann einstaklega vel út.
■\^%Érk
Eftir að hafa reynsluekið Hyundai
Tucson, litla bróður Santa Fe, gæti
maður talið sig ganga að ýmsu
vísu í Santa Fe, stærðarmunurinn
er ekki gífurlegur og ættarmótið
augljóst í útliti. Því er samt ekki
þannig farið, í akstri áttar maður
sig á því að þeir bræður eru ekki
jafnlíkir hvor öðrum og ætla mætti.
Santa Fe hefur verið vinsæll jeppi
- eða á maður að segja jepplingur
- á Islandi, snotur og verklegur á af-
bragðsverði. Við bætist að kóresku
bílaframleiðendurnir hafa verið í
feikilegri sókn undanfarin ár og
gæðin jafnan langt umfram það
sem ætla mætti af verðinu.
Santa Fe grípur mann samt ekki
alveg frá fyrstu sekúndu. Á hinn
bóginn vex hann í áliti. Þetta er þægi-
legur og rúmgóður fjölskyldubíll í
borginni, sem ratað getur einstefnu-
öngstræti og bílastæði miðborgar-
innar vandræðalaust, en stendur
vel fyrir sínu úti á landi á vondum
vegum. En hann fer ágætan meðal-
veg þarna á milli, sem um leið þýðir
að hann er hvorki í fremstu röð borg-
arbíla né æðislegt utanvegatæki. En
hann er fínn til þess að gera ögn af
hvoru.
Akstureiginleikar
Hið fyrsta, sem ökumaðurinn tekur
eftir, er hversu hljóðlátur Santa Fe
er, vélin rennur í gang nánast án
þess að maður taki eftir því. Það
er svikalogn. Þegar stigið er í botn
rýkur vélin upp og það heyrist dug-
lega i henni. Fullduglega því hún er
tenór fremur en sá bassa-barítónn,
sem maður vill hafa í jeppum af
þessu taginu. Viðbragðið gæti
verið aðeins betra fyrsta kastið, en
síðan tekur hann við sér. Það er al-
drif í Santa Fe, sem tekur við sér
eftir þörfum og það kemur í góðar
þarfir á malarvegum og sjálfsagt
í snjó líka, þó blessunarlega hafi
ekki verið aðstæður til þess að
reyna það. Fjöðrunin er ágætlega
þægileg, en samt mætti hún taka
aðeins duglegar á móti í beygjum.
Hið helsta, sem má gagnrýna er að
manni finnst stýringin mega vera
veigameiri. Hún er létt og leikandi,
en hvetur mann ekki til neinna
formúlutakta. Bremsukerfið er að
sama skapi vel brúklegt, en við til-
teknar aðstæður skrika þær aðeins í
fetlinum. Það veldur engum vanda,
en er ekki til þess fallið að auka
mönnum hugrekki.
Vél og drif
Fá má Santa Fe í fimm gerðum,
þremur benzínútgáfum og tveimur
með dísilvél. Allir eru bílarnir sjálf-
skiptir nema sú minnsta, en Blaðið
fékk Santa Fe V6 til reynslu og er sá
með 2700 cc, 173 hestafla vél. Það er
nægur kraftur í vélinni, en eins og
fyrr segir mætti skiptingin vera að-
eins betri.
Útlit
Hönnunin er verkleg en er aðeins
farin að reskjast, enda von á nýrri
útgáfu innan skamms. Hann sam-
svarar sér vel og tekur sig vel út.
Hann er ekki stærri en svo að hann
kemst í þröng stæði án nokkurrar
fyrirhafnar og er svipaður meðal-
bílum að því leyti þó maður noti
speglana kannski af aðeins meiri
kostgæfni.
Rými
Það er frábært rými í bílnum, næg
hæð og gott olnbogarými þannig
að fimm fullorðnir komast hæglega
fyrir. Þegar maður í stærra lagi er
búinn að hagræða framsætinu er
raunar aðeins farið að ganga á fót-
rýmið í farþegasætunum aftur í, en
þó ekki meira en svo að sami maður
getur setið þægilega þar þó hnén
beri við sætið fyrir framan hann.
Sætin liggja líka neðarlega, þannig
að þarf engan stiga til þess að kom-
ast inn. Það er flestu haganlega fyrir
komið og bíllinn er ámóta smekk-
legur að innan sem utan, en plastið
kemur aðeins upp um verðflokkinn.
Þá kemur manni á óvart að útsýnið
er eiginlega ekkki nema rétt boðlegt.
Að því leyti er Tucson miklu betri.
Farangur
Farangursrýmið er vel stórt, en þó
það megi leggja aftursætin fram fara
þau ekki alla leið, svo maður vinnur
ekki mikið rými með þeim hætti. Á
hinn bóginn má finna hirslur hér og
þar í bílnum, svo flestir eiga að geta
vel við unað.
öryggi
Maður finnur fyrir ágætri öryggis-
tilfinningu í Santa Fe. Hann er ör-
uggur á vegi, en sem fyrr segir er
hann kannski hannaður með stór-
svig í huga. Þá eru sex tveggja þrepa
Talið er að talsverður samdráttur
verði í innflutningi nýrra bíla
á þessu ári, enda markaðurinn
senn mettur og blikur á lofti í
efnahagsmálum, sem orðið geti
til þess að neytendur haldi frekar
að sér höndum en áður.
Árið 2005 voru nýskráðir um
25.000 bílar á Islandi, en til saman-
burðar og glöggvunar voru fluttir
inn 18.600 nýir bílar árið 1987,
sem löngum var talið metár í bíla-
bransanum, en þá nutu bílakaup-
endur í senn skattleysis og lægri
aðflutningsgjalda.
Greiningardeild KB banka telur
að ljóst sé að bílainnflutningur
undanfarinna tveggja hafi verið
umfram eðlilega endurnýjunarþörf
bílaflotans, en um 16.000 bílar voru
fluttir inn á árinu 2004. Meðaltal lið-
inna 10 ára er um 13.000 bílar á ári.
Greiningardeildin telur að öllum
líkindum verði verulegur sam-
dráttur í bílainnflutningi á árinu
2006, en fyrir því séu tvær ástæður
helstar: Líklegt megi telja að offjár-
festing i bílum hafi átt sér stað, en í
dag eru skráð um 255.000 ökutæki,
en landsmenn séu ekki nema um
300.000 talsins. Um leið hafi með-
alaldur bílaflotans lækkað verulega
og eru um 160.000 ökutæki tiu ára
eða yngri eða sem nemur um 63%
af heildarbílaflotanum. Þá hafi
bílainnflutningur sögulega fylgt
gengisþróun náið og af þeim sökum
ætti 11% veiklun krónunnar frá ára-
mótum að draga úr innflutningi.
Gúmmívinnustofan
& POLAR rafgeymar
4 I ÓLAGI
RÓFUN OG ÍSETNING
fNING i
Hjólbarðaverkstæði & rafgeymaþjónusta
J S Sk M
"■’>1 ,
1
Komdu í snyrtilegt umhverfi
>ar sem fagmennskan er í fyrirrúmi
ardaga
GMC kynnir nýjan Yukon Denali
Þrátt fyrir að mikill samdráttur hafi
orðið vestanhafs í sölu stórra bíla
- jeppum, jepplingum og mömmu-
rútum - hefur síður en svo dregið úr
þróuninni á þeim vettvangi. Þannig
kynnti GMC á dögunum nýjasta Yu-
kon-jeppann og hefur heldur betur
bætt í munað og gæði á sama tíma
og verðið hefur lækkað miðað við
sambærilega bíla fyrri ára.
2007 árgerðin af Yukon Denali
kostar að vísu sitt ennþá, en það er
líka mikið í lagt. Að ytra byrði er
glæsileikinn undirstrikaður með
meira krómi, en að innan ber meira
áviði enfyrr.
Undir húddinu er 6,2 lítra V8 vél,
sem skilar 380 hestöflum, en kass-
inn er sex-gíra. Skrímslið hvílir svo
á 18 tommu felgum. Fyrir kalda ís-
landsmorgna kemur sér svo vel að
fjarstýrð ræsing er staðalbúnaður.
SÍSS8
sKgfigflH