blaðið - 28.03.2006, Page 31
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 2006
ÍPRÓTTIR I 31
PÚLLARAR
Þið eruð enn meistarar!
Njótið þess á meðan það varir og spilið á Lengjunni
MEISTARADEILDIN er á Lengjunni. Fylltu
út seðil á lengjan.is eða á næsta sölustað og hleyptu
enn meiri spennu í leikina.
ALLTUM
FERMINGAR
Miðvikudagur 29.mars
blaðió
Auglýsendur, upplýsingar veita:
Kolbrún Ragnarsdóttir • Sími 510 3722 • Gsm 848 0231 • kolla@bladid.net
Ellert Ágúst Pálsson • Sími 510 3746 • Gsm 869 9903 • elli@bladid.net
Bjarni Daníelsson • Sími 510 3725 • Gsm 856 4299 • bjami@bladid.net
MEISTARADEILDIN 28.-29. MARS
28.03 © Arsenal - Juventus @ 2,20
28.03 Benfica - Barcelona 0 3,00
29.03 Inter - Villareal □ 1,4Ó
129 03 © Lyon-ACMilan @2,15
wm
□ 2,60 0 2,45
@2,80 01,80
@3,20 0 4,50
□ 2£0 □ 2,50
1.000
Dýfingafaraldurinn
er útlensk veira
Alan Stubbs segir erlendu leikmennina
bera ábyrgð á leikaraskapnum í ensku
úrvalsdeildinni.
Patrick Vieira hikaði ekki við að beita karate gegn Frank Baumann í viðureign Juventus og Werder Bremen i 16-liða úrslitum Meistara-
deildarinnar. Fróðlegt verður að sjá hvort slíkt verður uppi á teningnum gegn Arsenal.
Á von á góðum móttökum
Alan Stubbs, varnarmaður Everton,
segir að stóraukinn leikaraskap í
ensku úrvalsdeildinni megi rekja
til erlendu leikmannanna sem þar
spila. Mikið hefur verið rætt um
svonefndan dýfingafaraldur að und-
anförnu og hefur Filabeinsstrend-
ingurinn Didier Drogba, leikmaður
Chelsea, af mörgum verið sagður
fremstur í flokki leikara ensku
knattspyrnunnar. Stubbs ræddi við
fjölmiðla eftir leik Liverpool og Ever-
ton þar sem n spjöld fóru á loft og
tveir leikmenn fengu reisupassann.
Stubbs sagði að skýr lína
væri milli óheiðarlegra leikmanna
sem aðhylltust slíka hegðun og
þeirra sem gerðu það ekki. „Spyrjið
hvaða breska leikmann sem er og
þið munuð heyra að það síðasta sem
þeir vilja sjá er að leikmenn hlaupi
að dómaranum æpandi að hann eigi
að spjalda einhvern,“ sagði Stubbs.
Þar vísaði hann til Luis Garcia, leik-
manns Liverpool, sem biðlaði með
látbragði til dómarans Phil Dowd
að spjalda David Weir eftir að hann
braut á Mohamed Sissoko. „Það er
nógu erfitt að halda sér á vellinum
án þess að einhverjir kjánar séu
að reyna að fiska mann út af fyrir
smámuni. Það er einfaldlega ekki
karlmannlegt,“ sagði harðjaxlinn
Stubbs.
Aian Stubbs í leik með Everton.
„Þetta er erlent fyrirbæri sem
hefur náð að læða sér inn í ensku
knattspyrnuna. Erlendu leikmenn-
irnir hafa vissulega komið með
margt gott í úrvalsdeildina en því
miður hefur margt neikvætt fylgt
þeim líka,“ sagði Stubbs. „Það er í
höndum ráðamanna deildarinnar
að gera eitthvað í málunum. Það
eina sem við leikmennirnir getum
gert er að spyrja þessa leikmenn
hvað í ósköpunum þeir séu að hugsa
að vera að velta sér um í grasinu í
von um að aðrir verði spjaldaðir."
Patrick Vieira snýr aftur á Highbury þegar Juventus og Arsenal
mœtast í Meistaradeildinni í kvöld.
Patrick Vieira segist ekki eiga von
á öðru en góðum viðtökum frá að-
dáendum Arsenal þegar hann snýr
aftur á Highbury í kvöld til að leika
með Juventus gegn sínu gamla liði.
Hann er þó viss um að það verði
sérkennilegt að klæðast búningi
Juventus á móti liðinu sem hann
lék með í næstum áratug. „Eftir að
hafa verið hjá liði í 9 ár getur það
ekki verið annað en tilfinningaríkt
að leika á móti því með nýja liðinu
sínu. Ég átti margar góðar stundir
á leikvanginum og á von á því að fá
hlýjar móttökur,“ sagði Vieira sem
vann þrjá deildarmeistaratitla og
fjóra bikarmeistaratitla með Lund-
únaliðinu áður en hann hélt til Tór-
ínó á síðasta ári.
Vieira notaði einnig tækifærið
og hældi sinum gömlu félögum i
hástert þegar hann ræddi við fjöl-
miðla í gær. „Ef ég ætti að bera Ar-
senal saman við eitthvað ítalskt lið
myndi ég segja að þeir væru eins og
AC Milan. Þeir hafa gaman af þvi að
leika knattspyrnu og eru með frá-
bæra einstaklinga innanborðs. Leik-
stíll Arsenal byggist á tækni fremur
en líkamlegum styrk, en ég er þó
sannfærður um að við höfum burði
til þess að sigra þá,“ sagði Vieira.
Stendur og fellur með miðjunni
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, lýsti
því yfir í gær að miðjan yrði lykill-
inn að sigri. „Það verður athygl-
isvert að sjá okkar miðju á móti
þeirra því ekki einungis hafa þeir
Patrick, heldur einnig Emerson og
Mauru Camoranesi, það þannig
að þeir verða erfiðir viðureignar,“
sagði Wenger og bætti við að Cesc
Fabregas, arftaki Vieira á miðju Ar-
senal, væri ólíkur forvera sínum að
leikstíl. „Cesc er öðruvísi leikmaður
og reiðir sig helst á hreyfanleika á
meðan Patrick notar Ííkamlegan
styrk. Þeir hafa þó sama stórkost-
lega skilninginn á leiknum. Patrick
var frábær leikmaður fyrir okkur og
ég er sannfærður um að Cesc verður
það líka,“ sagði Wenger.