blaðið - 28.03.2006, Blaðsíða 38

blaðið - 28.03.2006, Blaðsíða 38
ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 2006 blaðið 381 Ifjf I HVAÐ FINNST ÞÉR? H HEYRST HEFUR... MISSKILDU SKÁLDIN Smáborgarinn hefur lúmskt gaman að full- yrðingum. I hverri fullyrðingu felst dásam- leg einföldun á margræðum veruleika. Á einhvern hátt tekst fullyrðingunni að ýta öllum öðrum möguleikum til hliðar. Stund- um ganga þessar fullyrðingar jafnvel svo langt að þær umbreytast og verða að við- urkenndum sannleik. Lifandi goðsagnir í nútíma veruleika sem reynast þó oftast innantómar þegar betur er að gáð. Bókelsk þjóð Því hefur lengi verið haldið fram að Is- lendingar séu bókelsk þjóð. Er þá gjarnan visað í þann mikla bókmenntaarf sem fornsögurnar eru og með tölfræðilegum útreikningum sýnt fram á að engin þjóð lesi jafn mikið og við. Miðað við höfðatölu að sjálfsögðu. Smáborgarinn var lengi þeirrar skoðunar að hér væri á ferðinni ein- hver Sannleikur. Hann man eftir íslensku- kennurum sem drógu stoltir fram nýjustu útreikningana og ítrekuðu í sömu mund þá miklu ábyrgð sem á herðar okkar væri lögð. I þessu öllu saman voru svo skáldin útverðir. Þau stóðu vörð um menningar- arfinn og það átti að bera virðingu fyrir þeim. Sellufundir Staðreyndin hins vegar, ef Smáborgarinn má fullyrða, því miður sú að fáir (slending- ar hafa áhuga á bókalestri og bókmennta- umræðu. Allavega ekki meira en gengur og gerist hjá öðrum þjóðum. Bókmennta- umræðan sjálf er að mati Smáborgarans afskaplega einangruð orðræða fárra fræðimanna og þær bókmenntahátíðir sem haldnar eru minna helst á lokaða sellufundi Rauðu herdeildarinnar eða sam- komu Félags eldri borgara. Skáldin hafa því orðið útundan f þjóð- félagsumræðunni. Orð þeirra sem áður vógu svo þungt hafa tapað gildi sínu og landsmenn sýna vangaveltum Denny Crane um umhverfismál í Bandaríkjunum meiri áhuga. Svo kvarta skáldin yfir áhugaleysi fjöl- miðla á þeirra málefnum og list. Skemmst er að minnast þegar Ijóðskáldin grenjuðu yfir misskiptum áhuga sjónvarpsins á Ijóð- listinni. Staðreyndin er, ef Smáborgarinn má fullyrða í annað sinn, að þessi meinta bókelska þjóð hefur fyrir löngu misst áhugann á skáldskaparlistinni. Hún þrífst aðeins við sjónvörpin og sms skeytin. Eft- ir standa greyið skáldin Ifkt og innantóm fullyrðing æpandi út í myrkrið. Sigurjón Þórðarson, alþingismaður. Hvernig líst þér á fyrirhugaða Ný- sköpunarmiðstöð? „Þetta er auðvitað á frumstigi. En það sem er jákvætt við þetta er að höfuð- stöðvarnar eiga að vera á Sauðarkróki. Fyrirspurn mín um flutning opin- berra starfa hefur kannski hreyft við fólki, maður vonast til þess. Aðalatriði fyrir svona stofnun er nú samt að það komi eitthvað jákvætt út úr henni.“ Iðnaðarráðherra kynnti í gær áform um sameiningu Byggðastofnunar, Iðntæknistofnunar og Rannsóknarstofnunar byggingariðnaðarins. Nýja stofnunin mun heita Nýsköpunarmiðstöð islands og verða höfuðstöðvarnar á Sauðarkróki. Einn eyðileggur fyrir öllum Lisa Kudrow, sem leikur ljóskuna Phoebe Buffay í Vinum, hefur staðfest að allt hafi verið klárt fyrir endurkomuþátt Vina þangað til einn af karlkyns vinunum neitaði að vera með. Orðrómur um nýju þættina fór á flug þegar Kathleen Turner, sem leikur kynskipt- inginn faðir Chandlers Bing, ljóstraði upp að framleiðendur þáttanna hefðu rætt við sig um endurkomuna. Talsmenn NBC sjónvarpsstöðvarinnar harðneituðu orðróminum en Lisa Ku- drow staðfesti nýlega að nýir þættir séu í farvatninu. „Við höfum fengið tækifæri til að gera nýja þætti en einn leikaranna vill ekki vera með, það er einn af strákun- um, mér finnst það glatað," sagði Kudrow um málið. Skrifar undir hjá Epic Jessica Simpson hefur slitið sjö ára samningi sínum við Columbia plötuútgáfuna og skrif- að undir hjá útgáfurisanum Epic. Þetta gerist aðeins fjórum mánuðum eftir að hún sleit þriggja ára hjónabandi sínu og Nick Lachey. „Eg elska alla vini mína hjá Columbia," sagði Simpson í tilkynningu. „Ég mun sakna þeirra þegar ég færi mig um set. Epic er nýr staður með nýjan leiðtoga. Mér finnst það vera rétta fyrirtækið til að hefja nýtt ferðalag um vegi tónlistarbransans." Simpson vinnur nú að nýju efni með upptökusnillingunum Jimmy Jam, Terry Le- wis og Scott Storch. Epic útgáfan mun gefa út hennar næstu plötu en síðasta plata Simp- son, In This Skin, kom út árið 2003. 'M \ Sharon Osbourne mfm í Píkusögum " * Hin kjaftfora Sharon Osbourne, eiginkona ellismellsins Ozzy Osbourne, kemur fram í Píkusögum í Konunglega leikhúsinu í Newcastle á Englandi í þessari viku. Þetta er í fyrsta skipti sem Sharon sýnir hæfileika sína á sviði en hún er þekktari fyr ir að koma fram í raunveruleikaþáttunum um fjölskylduna sína sem sýndir voru á Mtv sjónvarpsstöðinni og á Stöð 2 hérna heima. Osbourne, sem nýlega var kosin „uppáhalds fræga mamma Bretlands" kemur fram ásamt sjónvarpsstjörnunni Lisa Riley, leikkonunni Jenny Jules og fleiri góð- kunningjum breta. eftir Jim Unger SERBLAÐ BÍLAR Mánudaginn 3.apríl bladið= Auglýsendur, upplýsingar veita: ■:o!ia(o) uiafiio.ru Sögusagnir hafa verið uppi um að Anna Kristinsdóttir, sem lét í lægra haldi fyrir Birni Inga Hrafnssyni í prófkjöri framsóknarmanna í Reykjavík, leggi á ráðin um að ganga til liðs við Samfylk- inguna skömmu fyrir borgar- stjórnarkosningar. Hún hugsar Birni Inga þegjandi þörfina og víst ekki alltaf þegjandi. Glögg- ir menn í Ráðhúsinu þykjast hafa séð fyrstu merki þessarar þróunar í því að Anna lét af störfum sem formaður Sam- ráðshóps um Sundabraut, sem hefur eilítið verið í fréttum að undanförnu. í stað þess að Anna kallaði til annan fram- sóknarmann í sinn stað, eins og lög gera ráð fyrir, eftirlét hún nefnilega Degi B. Eggerts- syni, leiðtoga Samfylkingarinn- ar í borginni, formannsstólinn sinn... i V v' ■ ■ til Vangaveltur um stirð- leika í samskipt- um samherja snúa að fleir- um í Ráðhúsi Reykjavíkur. Sjálfstæðismenn hafa þannig verið að snúa kosningabaráttu sína í gang, fyrst með innleggi í umræðu um málefni aldraðra, sem einhvernveginn koðnaði niður í annarri fréttaumræðu, og síðan skrifaði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson miðopnugrein í Morgunblaðið í gær til þess að endurnýja öldrunarmálin. En spurt er: Hvar er Gísli Mar- teinn Baldursson? Vitað er að sumir stuðningsmenn hans úr prófkjörinu eru ekki par hress- ir, enda er hvíslað um að kjör- nefnd sjálfstæðismanna, sem skipar í önnur sæti listans en þau sem bundust í prófkjörinu, hafi ekki hleypt neinum að úr þeim hópi... Frá því var greint á þessum stað í gær að enn væri stirt á milli þeirra Margrétar Frí- mannsdóttur, þingflokksformanns Samfylk- ingarinnar, og Ingibjargar Sól- rúnar Gísladóttur. 1 þinginu flýgur fyrir að í ævisögu Margr- étar, sem kemur út næstu jól, sé sérstakur kafli helgaður hin- um nýja formanni. Þær stöllur talast að því er sagt er helst ekki við nema gegnum Krist- ján L. Möller, varaformann þingflokksins, sem kemur dag hvern til þings með hlaða af klæðum til að bera á vopnin... Me n n hafa talsvert rætt um „pil- snerfylgi“ framsókn- armanna í Reykjavík og hafa spunameistarar Sam- fylkingarinnar sérstaklega nefnt að þarna gjaldi þeir ríkis- stjórnarsamstarfsins við íhald- ið og meinta óvinsælda forsæt- isráðherra. Sagnfróðir menn á borð við Dag B. Eggertsson vita þó betur, því framsóknar- menn hafa séð ámóta tölur í skoðanakönnunum, t.d. þeg- ar Steingrímur Hermannsson var forsætisráðherra og allra manna vinsælastur, ef marka má ævisögu hans, sem Dagur reit, sællar minningar...

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.