blaðið

Ulloq

blaðið - 08.04.2006, Qupperneq 12

blaðið - 08.04.2006, Qupperneq 12
12 I DEZGLAN LAUGARDAGUR 8..APEÍL 2006 blaöiö Urg Ala Buks Unum eftir Jan Pozok Samskipti manna og trölla Út er komin myndasögubókin Urg Ala Buks Unum eftir myndasögu- höfundinn góðkunna Jan Pozok. Höfundur gefur sjálfur bókina út en myndasagan birtist áður í myndasögublaðinu Bleki. Sagan er lauslega byggð á þjóðsögunni ,Skessan á steinnökkvanum" sem Jón Árnason tók saman og segir frá samskiptum manna og trölla. I tilefni af útgáfunni mun höfund- urinn árita bókina í myndasögubúð- inni NEXUS við Hverfisgötu í dag, laugardag frá kl. 14 til 16. Vaiva Straukaité, 23 ára stúlka frá Litháen sem búið hefur á Akureyri í 3 ár. Ragnhildur Aöalsteinsdóttir tók allar Ijós- myndir á sýningu sem annars árs nemar við Háskólann á Akureyri hafa sett upp í Ketilhúsinu. Útlendingar í Eyjafirði 1 dag laugardag kl. 16 opnar Jón Kristjánsson félagsmálaráðherra ljósmyndasýningu sem nemendur á 2. ári í fjölmiðlafræði við Háskól- ann á Akureyri hafa sett upp í Ket- ilhúsinu þar í bæ. Yfirskrift sýning- arinnar er „Útlendingar í Eyjafirði" en undanfarin ár hefur erlendu fólki fjölgað hratt í firðinum og þar búa nú rúmlega 400 útlendingar frá um 40 löndum. Annars árs fjöl- miðlafræðinemar við Háskólann Frábært helgartilboð - 4 nætur Terra Nova býður einstakt tækifæri á helgarferðum í sumar til þessarar einstöku borgar. Góð gisting á frábærum kjörum.Eiffelturninn,Sigurboginn, Latínuhverfið, Montmartre, Signa, Champs Elysées, Concordetorgið. París kemur sífellt á óvart og er endalaus uppspretta mannlífs, menningar og rómantíkur.Tryggðu þér flug og gistingu strax því framboðið á þessu einstaka tilboði er mjög takmarkað. Kr. 49.990 Flug, skattar og gisting I tvíbýli á Holiday Inn Biblioteque með morgunverði í 4 nætur. Netverð á mann. Skógarhlíö 18-105 Reykjavik - Sími: 591 9000 www.terranova.is ■ Akureyri sími: 461 1099 Hafnarfjörður simi: 510 9500 Laugavegi61 • Sími 552 4930 www.jonogoskar.is íjúlí og ágúst Frá aðeins kr. 49.990 Bókaðu á www.terranova.is SPENNANDI VALKOSTUR Sálumessa Mozarts Fjórir kórar leiða saman hesta sína í Breiðholtskirkju í dag þar sem Sálumessa Mozarts verðurflutt ásamt hljómsveit. I tilefni af því að 250 ár eru liðin frá fæðingu Mozarts mun 90 manna kór ásamt einsöngvurum og 30 manna sveit úr Sinfóníuhljómsveit íslands flytja Requiem, sálumessu Mozarts, á tvennum tónleikum í Reykjavík og á Selfossi fyrir páska. Flutningur sálumessunnar er samstarfsverk- efni fjögurra kóra sem eiga það sam- eiginlegt að vera ýmist stjórnað eða að njóta raddþjálfunar söngvarans Keith Reed. Kórarnir sem um ræðir eru Landsvirkjunarkórinn, Samkór Selfoss, Samkór Reykjavíkur og Kirkjukór Breiðholts. Requiem er meðal síðustu tónverka sem Mozart vann að er hann lést árið 1791 aðeins 35 ára að aldri. Æfingar kóranna fjögurra á Requiem hafa staðið yfir frá ára- mótum og hefur verið æft þrisvar til fjórum sinnum í viku en flutningur verksins tekur um 55 mínútur. Ein- söngvarar á tónleikunum verða þau Þuríður G. Sigurðardóttir og Olöf Inger Kjartansdóttir sópranar, Jó- hanna Ósk Valsdóttir, alt, Bjartmar Sigurðsson, tenór og Keith Reed, bassabaritón. Hljómsveitarstjóri er Gunnsteinn Ólafsson og konsert- meistari Sif Tulinius. Fyrri tónleikarnir voru í Selfosskirkju í gær en þeir síðari í Breiðholtskirkju ( dag kl. 17. Aðgöngumiðar eru til söiu hjá kórfélögum og við innganginn. á Akureyri hafa nú fangað sögu 30 þessara einstaklinga og mark- miðið með sýningunni er að koma erlendum íbúum á framfæri, auk þess að koma af stað umræðum um tengsl milli íslenskra og erlendra íbúa á Eyjafjarðarsvæðinu. Sýningin verður opin í Ketilhús- inu 9. -11. apríl frá kl. 13-17. Tískusýning leiklistarnema Leiklistarnemar á þriðja ári i Lista- háskóla íslands verða með tískusýn- ingu í versluninni Monu á Lauga- vegi 66 kl. 14 í dag. Tískusýningin er haldin í tilefni eins árs afmælis verslunarinnar en jafnframt verður viðskiptavinum boðið upp á 15% af- slátt á vor- og sumarvörum. í versluninni er til sölu leðurfatn- aður, töskur og taufatnaður frá Dan- mörku, Þýskalandi og Serbíu og Svartfjallalandi. Einnig eru seldar vörur eftir átta íslenska hönnuði svo sem fatnaður, fylgihlutir, skór, skartgripir og lampar. Boðið verður upp á léttar veitingar og eru allir hjartanlega velkomnir. Bílaleigubíll í Danmörku frá 3.411 kr á dag Ford Fiesta eða sambærilegur. Verðdæmi Portúgal * * 2.281,- Spánn 2.672,-* ýmis lönd: Frakkland ** 2.426,- Þýskaland 2.442,-* Innifalið í leiguverði erlendis: Ótakmarkaóur akstur, skattur, tryggingar og afgreiðslugjald á flugvelti - ekkert bókunargjald. ** M.v. 7 daga lágmarksleigu, verð er háð gengi og getur breyst án fyrirvara Bókaðu bílinn heima í síma 461-6010 * THE (HS7TTU7E OF TRANSPORT MANAGEMENT (ITM) VawniCarRMii valdi National sem bílaleigu ársins 2006 bæði i Bretlandi og Evrópu. Þetta er annaö árið í röð sem sem þessi heiður hlotnast fyrirtækinu í Bretlandi, en þriöja áriö i röð sem National er kosin besta bílaleigan f Evrópu. BÍLALEIGA AKUREYRAR þínar þarfir - okkar þjónusta. Bókanir erlendis | 461-6010 | 08-17 virka daga | erlendis@holdur.is | holdur.is

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.