blaðið - 08.04.2006, Blaðsíða 23
blaðið LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2006
VIÐTAL I 23
til litlar klíkur sem aldrei mætti
verða. Þegar valdið hefur verið lengi
í kringum sama hóp þarf að brjóta
hann upp. Þótt þarna væru ágætis
kunningjar mínir, eins og félagi
Hannes Hólmsteinn, þá fannst mér
nauðsynlegt að fara gegn þeim. Upp-
haflega stóð til að Hreinn Loftsson
biði sig fram til formennsku í SUS í
mínu liði en það breyttist og ég fór
fram og sigraði.
Ég fann fyrir þessari fortíð þegar
baráttan stóð um arftaka Davíðs.
Ég átti harða andstæðinga innan
flokksins. Ég hafði lagt áherslu
á að ég myndi ekki kaupa menn
til fylgis við mig úr þessum hópi.
Annað hvort yrði mér falið þetta
verkefni eða einhver annar tæki það
að sér. Engin niðurstaða varð í því
máli og Davíð kallaði til þriðja aðil-
ann, Markús Örn Antonsson sem
tók við borgarstjórastarfinu. Ég hét
Markúsi fullum stuðningi og vann
með honum þar til hann ákvað
mjög skyndilega að stíga frá. Þá var
mjög einarður vilji að ég tæki við af
honum, einungis þrír mánuðir til
kosninga og fylgistölur höfðu mælst
í lágmarki, 30 prósent. Kannski hugs-
uðu einhverjir mér þegjandi þörfina
með því að etja mér á foraðið. R-list-
inn varð til á þessum tíma og sigraði
í kosningunum en Sjálfstæðisflokk-
urinn fékk rúmlega 47 prósent fylgi.
Ég náði góðum árangri en ekki nægi-
legum árangri."
Reykjavíkurlistinn tók við borginni
og þú hvarfst til annarra starfa. Á
því tímabili sem pólitískum ferli
þínum virtist lokið þá hefurðu varla
veriðfullkomlega ánœgður?
„Lífið er mikið meira en pólitík og
ég er ekki bara einhver starfstitill.
Auðvitað vill maður hafa betur í pól-
itískri baráttu en ef það gerist ekki
þá er mikilvægt að maður geti horft
til baka og verið sáttur við vinnu
sína, viti að maður hafi ekki farið
fram úr sér og hvorki skaðað aðra
né sjálfan sig.“
Hreinskilna leiðin
Hvernig heldurðu að baráttan um
borgina fari núna?
„Eg vona að hún fari vel. Það er
ágætis stuðningur við Sjálfstæðis-
flokkinn. Mér finnst meiri sannfær-
ingakraftur í sjálfstæðismönnum en
Samfylkingunni. Ég held að borgar-
búar hlusti fremur á rök en ræður.“
Hefurðu einhver ráð til borgarfull-
trúa flokksins?
„Ég er ekki hrifinn af „ég“-stjórn-
málum. Mér finnst stjórnmálamenn
segja of mikið: „Ég“ - eins og þeir
séu einir í baráttunni. Mér finnst
að borgarstjórnarflokkur sjálfstæð-
ismanna eigi að beita „við“ -stjórn-
málum. Þetta er öflugur hópur með
góða forystu. Honum farnast vel
með því að samnýta kraftana“
Ertu bjartsýnn áaðþú ogþinn flokkur
vinni meirihluta í Reykjanesbœ?
í Reykjanesbæ hafa Samfylkingin
og Framsóknarflokkurinn samein-
ast og ég upplifi á skemmtilegan hátt
sömu hluti og gerðust forðum. Áður
hafði ég þrjá mánuði til að vinna og
sýna hvað ég vildi gera en nú hef ég
haft fjögur ár. Ég held að það skipti
sköpum."
Hvernig stjórnmálamaður heldurðu
að þú sért?
„Eg held að ég sé ekkert öðru-
vísi en aðrir stjórnmálamenn, hef
mína kosti og galla. Ég hef fengið
það góða blöndu af sigri og tapi að
ég geri mér grein fyrir að hvoru
tveggja fylgir ábyrgð. Ég er ekki
„stand up comedian" sem stjórn-
málamaður. Það eru til manngerðir
sem hafa óskaplega gaman af því
að vera stöðugt í framvarðarsveit
og eru skemmtilegir í því hlutverki.
Ég er í framvarðarsveit þegar ég
þarf að verá það. Ef ég þarf þess
ekki þá finnst mér mjög gott að
draga mig í hlé.
Auðvitað hef ég þurft að beita
hörku í pólitík og taka á mönnum.
1 fyrirtækjarekstri hef ég líka þurft
að takast á við erfið verkefni og
segja upp fólki, stundum vinum
minum.“
Velurþú mjúku leiðina í slíku?
„Hreinskilnu leiðina, myndi ég
segja, og án hamagangs. Yfirleitt
eiga allir sína kosti þannig að maður
dregur þá fram um leið og maður
segir viðkomandi að þeir henti
ekki.“
Mikilvægi þungamiðjunnar
Á árurn áður vargóð ímyndþín jafn-
vel notuð gegn þér. Þér og konunni
þinni var til dœmis lýst í áramótas-
kaupi sem Ken ogBarbí.
„Ég tók það ekki nærri mér enda
þekkti ég ekki þennan Ken. Þetta er
hluti af því að þola pólitík. 1 mínu
nánasta umhverfi fannst mönnum
þetta vera högg undir beltisstað. Ein-
hverjir sögðu þó að ég hefði gefið
færi á mér af því að myndir birtust
af mér með fjölskyldunni. Það er
ómögulegt annað en að slíkt gerist
þegar ég á í hlut. Hún er það besta
sem ég á. Ég er ekki leikari sem
skipti um hlutverk eftir því sem
hentar. Ég held að það sjáist nokk-
urn veginn á mér hvernig ég er.“
Þú ert mikill fjölskyldumaður, erþað
ekki rétt?
„Hvað þýðir það að vera fjöl-
skyldumaður? Ég á fjögur börn og
er hamingjusamlega kvæntur. Ég
hef gríðarlega gaman af að vera í ná-
vist fjölskyldunnar. Börnin mín eru
vinir mínir. Ég vinn mjög mikið og
er ekki alltaf í beinu sambandi við
þau en ég nýt þess best að vera með
Bryndísi og fjölskyldunni þegar ég á
frítíma. Ég er ekki með félögunum á
pöbbnum að horfa á fótboltaleik af
stórum skjá. Og ekki ennþá á golfvell-
inum að gera tímamótasamninga!
Hvaða lífsviðhorfhefurðu?
„Ég trúi á Guð almáttugan, skap-
ara himins og jarðar. Ég reyni að
fylgja kenningum Jesús Krists en
eins og öðrum mönnum gengur mér
það misjafnlega. Engar kenningar
um manninn og veginn þykja mér
þó vera sterkari en þær. Eg trúi því
að það besta sem menn geta gefið af
sér sé innri kraftur sem þeir öðlast
með því að leggja sig fram um að
afla sér þekkingar og vera heiðar-
legir. Gildi eins og sannleikur skipta
mjög miklu máli. Sömuleiðis ástúð
og það að menn geti gefið af sér til
annarra.
Ég hef mikið velt fyrir mér
þungamiðjum hjá einstaklingum
og trúi að ef maður hefur sterkan
kjarna geti maður yfirstigið alla
erfiðleika. En þá skiptir máli hver
þungamiðjan er. Um þungamiðjur
sumra er sagt að það sé fjölskyldan
og það kynnu margir að segja um
mig. Fyrir einhverjum er fjármála-
heimurinn allt og geðsveiflur þeirra
fara eftir hæðum og lægðum í gengi.
Hjá öðrum er einn ástvinur þunga-
miðjan. Þá fer líðan þín eftir því
hvernig ástvinurinn lætur.
Það sem ég er að segja er að þunga-
miðjan þarf alltaf að vera í sjálfum
þér. Ef þungamiðjan er fyrir utan
mann sjálfan þá brestur karakter-
inn um leið og þungamiðjan breyt-
ist. Þungamiðjan þarf að vera æðri
tímabundnum sveiflum eða utanað-
komandi áhrifum.
Trú og sannleikur eru stór hug-
tök sem maður reynir að vinna úr
af sínum veika mætti. En ef manni
tekst það á einhvern hátt trúi ég að
maður geti staðið eins og klettur
í öllum áföllum. Og geti miðlað
af sínum brunni. Þá getur maður
reynst fjölskyldu sinni vel á erfiðum
tíma. Og líka þeim sem gengið féll
hjá. Þetta er mitt lífsviðhorf. Svo
get ég auðvitað haldið við þig langar
ræður um það þegar ég hef runnið
á svellinu.“
\:y'\ ^cv-'-yv
a rumum
CAPRI
NÝ SENDING
W TILBOÐ 69.000.-
Verð áður 89.000.-
Meöan byrgðir endast
KAROLIN
NÝ SENDINIt
TILBOÐ 119.000
áf ur 427000 / nú 29.900,-
497069 / nú 38.500,-
áöúr 587060 / nú 48.000,-
ðift 69.500 / nú 59.500,-
sjálfstœð fjöðrun
áður 59t600- verö nú kr 49.600-
áöur 667060- verö nú kr 58.000-
i x 200cm áður »9.000- verð nú kr 79.500-
E/ecía er hágæða pokagormadýna með 240 gormum 6 hvem
fermetir. Hún er svæðaskipt 15 misstíf svæði.
Hver gormur er sér I ofnum poka, sem kemur I veg fyrir að einhver
einn álagspunktur myndist og tryggir afslöppun fyrir hrygginn.
mgmr//.
. ■ ►* u • ■ v-
með 6cm visco þrýstijöfnunarefni á
svefnyfirboröinu.
160 x 200cm tilboð kr. 139.000,-
180 x 200cm tilboð kr. 159.000,-
OPTIFLEX
Ein vandaðasta uppbygging á
rafstillanlegum rúmum.
80 x 200 cm verð frá 69.000.
OO
>mmmmm
ö
C
ö
u
cn
o
£
£
£
húsgagnaverslun
^SCANA
JUVEGI 2, KÓP S:587 6090
HÚSGÖGNIN FÁSTEINNIG i HÚSGAGNAVAL, HÖFN S: 478 2535