blaðið - 08.04.2006, Blaðsíða 38
38 I UNGA FÓLKID
LAUGARDÁGUR 8. APRÍL 2006 blaöiö
HERBERGIÐ* BAÐIÐ • HEIMILIÐ
" ‘ -■ ■" '■
Umsóknir sendist á rumfatalagerinn@rumfatalagerinn.is eSa Smáratorg 1 201
Kópavogur merkt „Sölumaður". Allar nánari upplýsingar veita verlsunarstjórar í
verslunum Rúmfatalagersins milli 14:00 - 16:00.
FariS verður meá allar umsóknir sem trúna&armál.
Smáratorgi 1
200 Kópavogi
510 7000
Póstkrafa
Smáratorgi 1
510 7020
Hoitagörðum
v/Holtaveg
104 Reykjavík
588 7499
Skeifunni 13
108 Reykjavík
568 7499
Glerártorg
600 Akureyri
463 3333
Póstkrafa
Glerártorg
463 3333
„Grande finale" hjá Listdansskóla íslands
Lokasýning Listdansskóla íslands
fer fram í Borgarleikhúsinu á þriðju-
dags- og mivikudagskvöld og hefst
skemmtunin bæði kvöldin kl. 20.
Nemendur úr öllum skólanum taka
þátt í sýningunni og segir Melkorka
Sigríður Magnúsdóttir útskriftar-
nemi að um afar fjölbreytta sýningu
sé að ræða sem gefi góðan þverskurð
af því starfi sem fram fari innan
veggja skólans. Alls verða þrjú verk
sett upp á sýningunni. Yngstu nem-
endurnir setja upp nýstárlega upp-
færslu af Mary Poppins, nemendur
í framhaldsdeild setja upp klassiskt
verk sem heitir Paquita og nútíma-
verk eftir brasilíska dansflokkinn
Grupo Corpo sem mun koma fram á
Listahátíð í Reykjavík í vor. Að sögn
Melkorku er sérstök áhersla lögð á
að gera sýninguna sem glæsilegasta
þar sem skólinn sé að hætta störfum
í núverandi mynd.
Líst vel á hugmyndir um
framtíð dansnáms
Sú ákvörðun menntamálaráðherra
að leggja Listdansskóla íslands niður
hefur verið mjög umdeild og var
Melkorka í forsvari nemenda sem
mótmæltu henni. Hún segir að ekki
sé enn búið að ganga frá fyrirkomu-
lagi dansnáms en verið sé að vinna
á fullu í málinu. „Menntamálaráðu-
Nemendur í Listdansskóla fslands æfa fyrir lokasýningu skólans sem haldin verður í Borgarleikhúsinu næstkomandi þriðjudags- og miðvikudagskvöld.
Blaðiö/Steinar Hugi
Hæfniskröfur:
• Hressleiki
• Opin fyrir nýjungum
• Tilbúin að læra
• Metna&ur og óhugi
anæva úr heiminum. Hún komst
áfram í 160 manna úrslit og var á
leið aftur til frekari prófa og viðtala
daginn eftir að blaðamaður ræddi
við hana í vikunni. Aðeins 30 nem-
endur eru teknir inn og því ljóst að
samkeppnin er hörð.
Auk þess að vera að útskrifast úr
Listdansskóla íslands og þreyta inn-
tökupróf við virta erlenda dansskóla
undirbýr Melkorka sig þessa dagana
undir stúdentspróf frá Menntaskól-
anum við Hamrahlíð. Hún segir afar
erfitt að samhæfa þetta allt saman
og hún hafi haft meira en nóg að
gera ekki síst síðustu önnina og því
hafi fylgt mikið stress og álag.
1 framtíðinni hefur Melkorka
hug á að semja sín eigin dansverk í
meiri mæli. í fyrrasumar starfrækti
hún lítinn danshóp ásamt fjórum
danssystrum sínum undir nafninu
íslenska hreyfiþróunarsamsteypan.
Hópurinn starfaði á vegum Hins
hússins og samdi meðal annars
nokkur lítil dansverk. „Núna erum
við búnar að fá ríflegan styrk til að
semja stórt dansverk. Við ætlum
sem sagt að vinna að því í sumar og
það verður síðan sýnt í lok sumars-
ins,“ segir Melkorka að lokum.
Dansmærin efnilega Melkorka Sigríður
Magnúsdóttir hyggst halda utan til frek-
ara náms í listdansi að lokinni útskrift frá
Listdansskóla fslands í vor.
neytið er búið að skipa nefnd sem
samanstendur af nokkrum kenn-
urum skólans og fagaðilum við að
gera námskrá og skipuleggja næsta
skólaár. Það eina sem ég get sagt í
stöðunni er að ég treysti þessum
aðilum fullkomnlega til að búa til
nýjan skólasegir Melkorka.
Hún vill ekki tjá sig frekar um
fyrirhugaðar breytingar á skólanum
en segir að sér lítist vel á þær hug-
myndir sem séu uppi á borðinu.
Góður undirbúningur
fyrir frekara nám
Sjálf hyggst Melkorka halda af landi
brott til frekara náms í listdansi
næsta haust og segir það nám sem
Listdansskólinn hafi boðið upp á
vera frábæran undirbúning fyrir
það. „Það sem er svo gott við List-
dansskólann er að hann gefur al-
hliða þjálfun bæði í nútímadansi
og klassískum" segir hún. „Dans-
sköpunin (kóreógrafían) sem við
lærum á síðustu tveimur árunum í
Listdansskólanum er á háskólastigi.
Ég fann það þegar ég var að taka inn-
tökupróf við skóla erlendis að maður
stóð hinum krökkunum ekkert að
baki,“ segir Melkorka.
Melkorka gekkst á dögunum undir
inntökupróf í virtum dansháskólum
í Hollandi og Belgíu. Hún fékk inni
í skóla í Amsterdam sem talinn er í
hópi þeirra bestu í landinu. „Þessi
braut sem ég komst inn á er mjög
sérstök og ekki nein önnur til og
þess vegna sækja útlendingar mikið
í hana,“ segir Melkorka og bætir við
að á henni sé mikil áhersla lögð á al-
hliðaþjálfun nemenda. „Aðalatriðið
er náttúrlega dansinn og danssköp-
unin en það er líka lögð áhersla á
leikræna tjáningu og að menn geti
gert meira en bara dansað,“ segir
hún.
f nógu að snúast
í Belgíu tók hún þátt í inntökuprófi
ásamt 800 öðrum nemendum hvað-
Rúmfatalagerinn óskar eftir sölumönnum,
í boöi er fullt starf.
Góð laun í boði fyrir duglega einstaklinga.
Mikil vinna í boði ó líflegum og skemmtilegum vinnustað.
Or vöxtur fyrirtækisins gefur mikla möguleika ó að vaxa í starfi.
Idol hvað?
Hin sívinsæla Söngkeppni fram-
haldsskólanna fer fram í Mýr-
inni í Garðabæ í dag. Þetta er í 17.
skipti sem keppnin er haldin en
hún verður með örlítið breyttu
sniði að þessu sinni. í stað þess
að allir þátttakendur keppi í
einu verður haldin sérstök for-
keppni kl. 15. Tólf keppendur
komast síðan áfram úr forkeppn-
inni í aðalkeppnina sem hefst kl.
20:30.
Bæði forkeppnin og aðal-
keppnin verða sendar út í beinni
útsendingu í Ríkissjónvarpinu
og á Rás 2 og því ættu þeir sem
ekki komast á staðinn að geta
fylgst með. Um undirleik sér hin
góðkunna hljómsveit Kúng Fú.
Miðaverð er 1500 krónur auk
miðagjalds og er hægt að nálgast
miða á vefsíðunni midi.is.