blaðið - 08.04.2006, Blaðsíða 22
22 I VIÐTAL
LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2006 blaöið
Skipti ekki um hlutverk
,Ég tók að mér fjögurra ára verkefni
og er reiðubúinn að endurtaka það.
Á þessum tíma hefur orðið mikil
uppbygging í Reykjanesbæ og það
er brýnt að henni sé haldið áfram.
1 kosningunum í maí verður þessi
tími gerður upp og þá kemur í ljós
hvað mönnum finnst,“ segir Árni
Sigfússon bæjarstjóri i Reykjanesbæ.
Árni á nokkuð merkilegan pólit-
ískan feril og var um tíma borgar-
stjóri í Reykjavík en afskipti hans af
borgarmálum hófust í borgarstjóra-
tíð Davíðs Oddssonar en þá var Árni
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins
Hvernig var að vinna með Davíð?
„Það var mjög skemmtilegt. Á
sínum tíma var ég formaður félags-
málaráðs. Ég hélt því fram að með
því að bæta þjónustu félagsþjónust-
unnar kæmust fleiri til sjálfshjálpar.
Einhverjir sögðu þetta greinileg
merki þess að ég væri vinstrimaður.
Eitt af hlutverkum mínum sem for-
manns var að taka við ýmsum er-
indum bæjarbúa sem komu á minn
fund. Þetta voru oft mjög erfið við-
töl. Einhverju sinni sat ég frammi í
biðsal og beið eftir Davíð þar sem
hann var á borgarstjóraskrifstof-
unni. Við hlið mér sat kona með tvö
mjög ung börn sem hún átti erfitt
með að halda í. Hún var greinilega
þreytt og allt hennar fas bar með
sér að líf hennar væri erfitt. Hún var
kölluð inn í síðasta viðtal dagsins
hjá Davíð. Hún fór með börnin inn
á skrifstofu hans og kom út aftur
nokkrum mínutum síðar. Ég heyrði
hana segja: „Ó, þakka þér fyrir Davíð
minn. Þetta er frábært. Vertu bless
aður.“ Ég fór inn til Davíðs og sagði:
,Það er ótrúlegt hvernig þú ferð að
þessu. Ég sit með þessu sama fólki
og græt með því. Eg reyni að finna
lausnir en það er erfitt og sjaldnast
fæ ég svona bros í lokin.“ Davíð svar
aði: „Þú ert ungur og þetta lærist“.
Daginn eftir var ég með viðtals
tíma og þá kom til mín þessi kona
með börnin tvö. Hún sagði: „Hann
Davíð sagði að þú myndir örugglega
bjarga þessu fyrir mig“. Þá skildi ég
gleði hennar daginn áður.
Ég lærði heilmikið af Davíð. Hann
er mjög skynsamur og íhugar hluti
vel þótt hann geti líka verið snöggur
til. Ég tók eftir því að þegar hann
stóð frammi fyrir því að taka ákvarð
anir þá var hann glöggur á hvað
hvað mætti gerjast lengur og hvað
þyrfti strax að leysa. Ég lærði af því.
Lífið er meira en pólitík
Menn ( Sjálfstxðisflokknum segja
mér að þegar Davíð lét af embœtti
borgarstjóra hafi hann viljaðþigsem
arftaka sinn.
„Mér fannst hann alltaf vera mjög
hlynntur mér og reiðubúinn að
styðja mig. Það var hins vegar aldrei
nógu skýrt frá þvi gengið því þá
hefði það eflaust orðið. Hann var
eðlilega mjög upptekinn af sínum
málum á þessu tímabili og lét valið
um arftaka sinn í hendur borgarfull-
trúa. Það mynduðust tvær blokkir
og ég tel að ég hafi haft yfirhöndina í
hópnum en samt ekki mjög sterka yf-
irhönd. Þegar ég lít til baka sé ég að á
þessum tíma hafði ég eignast sterka
andstæðinga. Samherjar mínir,
nokkrir borgarfulltrúar, voru sumir
mjög ósáttir við þennan Árna Sigfús-
son eftir baráttu við hann í ungliða-
hreyfingunni. Þeir beittu sér gegn
mér. Ég vil ekki nefna nöfn því þetta
er ágætis fólk.
Ég hef verið lengi í pólitísku starfi
og í ungliðahreyfingunni tók ég
að mér að fara gegn ríkjandi vald-
höfum. Ég var áberandi í Heimdalli
og fannst þar ríkja of mikil væru-
kærð og kallaði bisnessmennina
í þeim félagsskap kokteildrengi.
Það sat í þeim. Ég náði kosningu
formanns á mjög fjölmennum aðal-
BlaomtelnarHugi
fundi. í SUS fór ég í formannskjör
gegn ríkjandi valdhöfum, ágætum
félögum mínum í dag. Áhyggjur
mínar og fleiri beindust að því að
þar væri Sjálfstæðisflokkurinn
að einangrast, það væru að verða
Það er léttara en þig grunar að endurnýja
g I e ra u g u n þ í n! B *- —
Sjóntækjafræðingur með réttindi til
sjónmælinga og linsumælinga
GLERAUGNAVERSLUN
Gleraugað
í bláu húsunum við Faxafen Sími:568 1800