blaðið - 08.04.2006, Blaðsíða 20

blaðið - 08.04.2006, Blaðsíða 20
LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2006 blaöið 20 Sagan i nýju Ijósi Gullhringur sem fannst við fornleifarannsókn I kirkjugólfi í Skálholti og er á meðal gripa sem eru á sýningu í rannsóknarrými Þjóðminjasafnsins. Áhugaverðar uppgötvanir Á Þingvöllum hafa fundist stór mannvirki frá upphafi þinghalds og áður óþekktar búðartóftir. Þekking hefur aukist á biskups- setrunum tveimur, Hólum og Skál- holti, bæði á þéttbýli og húsakosti þessara höfuðstaða Norðurlands og Suðurlands. í Skálholti hafa m.a. fundist íveruhús og skólahús en á Hólum meðal annars prent- húsið þar sem fyrsta íslenska prent- smiðjan var starfrækt. Náttúruleg höfn hins forna verslunarstaðar Hóla í Kolkuósi hefur verið rann- sökuð og einnig annar forn versl- unarstaður, Gásar í Eyjafirði, þar sem grafin var upp stór trékirkja og búðir. f Keldudal í Hegranesi í Skagafirði fannst óvænt bæði kirkjugarður úr frumkristni og kumlateigur úr heiðni. f Reykholti fer einnig fram rannsókn á kirkju- garði og kirkju en þar var ein mik- ilvægasta höfuðkirkja á íslandi. Eitt rannsóknarverkefnið sem Kristnihátíðarsjóður styrkir felst í að afla gagna um staðsetningu allra þekktra kumla á fslandi, greina hvað lá að baki staðarvali þeirra og reyna þannig að leita uppi áður ókunn kumlstæði. Þá hafa tvö forn klaustur verið grafin upp, fyrsta nunnuklaustrið á Kirkjubæ sem stofnað var 1186, og munkaklaustrið á Skriðu í Fljótsdal sem starfrækt var á tíma- bilinu 1493-1554. Hedensted Caravan is one of the leading Camping stores in Jylland Denmark. And now you also have the opportunity to buy our top quality products and at the same time save a lot of money. Visit our webside WWW.HEDENSTEDCARAVAN.DK to see over 100 caravans each presented by 5 pictures and specifications. Hedensted Caravan have great experience with export to Island and we can deliver Caravans directly to Seyðisfjörður and camping equipment directly to your doorstep. TIL AÐ FÁ TILBOÐ VINSAMLEGAST HAFIÐ SAMBANO VIÐ: Mr. Niels Lund-Nielsen slmi: 0045 75890677 netfáng: Niels.lund@hedenstedcaravan.dk Mánudaga til Föstudaga milli 09:00 -17:00 Laugardaga milli 10:00 -16:00 A small selection of our Caravans from last season 05 Adria Adiva 462PD 05 Adria Adiva 502UK 04 Adria Adora 462UB 05 Adria Adora 542PU 05 Adria Altea 542PK 05 Adria Altea 502LS 04 Biirstner Ventana 490TS 05 Biirstner Ventana 540TK 05 Wilk S3 Silverstar 490UE Á miðvikudag var opnuð sýning á níu fornleifarannsóknum Kristni- hátíðarsjóðs á Þjóðminjasafni íslands. Þar eru kynntar þær forn- leifarannsóknir sem nú standa yfir með tilstyrk Kristnihátíðar- sjóðs og meðal annars má þar sjá úrval gripa sem fundist hafa við uppgrefti. Fjöldi merkra gripa hefur fundist við alla þessa uppgrefti og margvís- legar nýjar upplýsingar hafa komið fram. Rannsóknirnar hafa aukið miklu við þá þekkingu sem við áður höfðum úr ritheimildum, staðfest það sem vitað var, bætt við það og stundum flett ofan af mannvirkjum, stöðum eða starfsemi sem engar rit- heimildir greina frá. Fornleifarann- sóknir eru þannig smám saman að bæta við og breyta Islandssögunni frá því sem var meðan einungis rit- heimildum var til að dreifa.Vænta má frekari uppgötvana og funda árið 2006 því fornleifarannsóknir njóta áfram styrks frá Kristnihá- tíðarsjóði. En í sumar verður í síð- asta sinn grafið með fjárstuðningi sjóðsins. Merkilegar frumrannsóknir Ágústa Kristófersdóttir sýningar- stjóri segir að ekki hafi jafnum- fangsmiklar rannsóknir farið fram á stöðum eins og gömlu biskups- stólunum Hólum og Skálholti. „Þar hefur verið grafið í tengslum við framkvæmdir og í kirkjunum en staðirnir hafa ekki verið teknir fyrir í heild sinni áður. Þetta eru mjög merkilegar frumrannsóknir á þessum stöðum og koma til með að varpa nýju ljósi á lífið á þessum stöðum sem voru lengi vel einu þéttbýliskjarnarnir sem til voru á Islandi,“ segir Ágústa. Á sýningunni gefur meðal ann- ars að líta tvær höfuðkúpur sem fundust í Skriðuklaustri. Onnur er af manneskju sem hefur verið með beinvörtur á höku en hin er af hol- góma unglingi. „Það var mjög sjald- gæft að fólk sem fæddist með svona fæðingargalla lifði frumbernskuna af. Það sýnir að hann hefur fengið góða umönnun,“ segir Ágústa og bætir við að þetta varpi á vissan hátt nýju ljósi á starfsemi klaustursins. Stór sýning árið 2008 Athygli vekur að þeir munir sem eru til sýnis í Þjóðminjasafninu eru flestir frekar smáir og segir Ágústa að smæð sýningarrýmis- ins hafi öðrum þræði áhrif á val sýningargripa. „Það stendur til að hér verði stór sýning árið 2008 þegar búið verður að fullvinna fræðilegu rannsókn- irnar og fara yfir það sem kom upp úr jörðinni og þær niðurstöður og ályktanir sem menn geta dregið af þvi,“ segir Ágústa og bætir við að mikið starf bíði við rannsóknir, skráningu og forvörslu þeirra muna sem fundist hafa. Óvenjumikil gróska í fornleifarannsóknum Óvenjumikil gróska hefur verið í fornleifarannsóknum hér á landi á undanförnum árum, sem meðal annars má þakka Kristnihátíðar- sjóði, en hann lauk störfum í lok síðasta árs. Sjóðurinn var stofnaður til að minnast þess að 1000 ár voru liðin frá því að kristni var lögtekin á íslandi og gegndi tvíþættu hlutverki. Annars vegar var honum ætlað að efla fræðslu og rannsóknir á menn- ingar- og trúararfi þjóðarinnar og stuðla að umræðum um lífsgildi hennar, siðferði og framtíðarsýn. Hins vegar var honum ætlað að kosta fornleifarannsóknir á helstu sögustöðum þjóðarinnar, m.a. á Þingvöllum, í Skálholti og á Hólum. Á fimm ára starfstímabili Kristni- hátíðarsjóðs lagði ríkissjóður til hans 500 milljónir króna eða 100 milljónir á ári hverju. Þar af var rúmum helm- ingi varið í fornleifarannsóknir. Anna Soffía Hauksdóttir, for- maður stjórnar Kristnihátíðarsjóðs, er afar ánægð með hvernig til tókst og segir að starfið hafi verið farsælt. „Aðalatriðið er að þessum fjármunum hefur verið vel varið. Frábær árangur hefur náðst, bæði í fornleifarannsóknum, sem og á sviði menningar- og trúar. Þátttak- endur hafa starfað af miklum áhuga og alúð,“ segir Anna Soffía. Mikið starf óunnið Anna Soffía segir að rannsóknir, sem sjóðurinn styrkti, hafi breytt sýn þjóðarinnar á lífið hér á landi fyrr á öldum. Enn sé þó mikið starf óunnið. „Ljóst er að mikið starf er framundan i forvörslu, enda hafa fundist þúsundir gripa við uppgröft. Þessa gripi þarf að forverja og búa þá til sýninga," segir Anna Soffía og bendir jafnframt á að á fjárlögum sé gert ráð fyrir fjárframlagi til mála- Minningarkort Minningar- og styrktarsjóðs hjartaskjúklinga ^ai HjartaHeill sími 552 5744 Gíró- og kreditkortþjónusta Anna Soffía Hauksdóttir formaður stjórnar Kristnihátíðarsjóðs segir frábæran árangur hafa náðst bæði i fornleifarannsóknum, sem og á sviði menningar- og trúar. flokksins. „Á fjárlögum 2006 - 2008 verður samtals 60 milljónum króna veitt til forvörslu og undirbúnings sýninga á niðurstöðum rannsókna sem hafa fengið styrk úr sjóðnum,“ segir Anna Soffía sem telur afar mik- ilvægt að miðla til almennings allri þeirri nýju þekkingu sem fengist hefur. „Það verða sýningar meðal annars hér í Þjóðminjasafninu og á þeim stöðum þar sem grafið hefur verið. Þar hafa heimamenn og þeir sem stýrt hafa fornleifarann- sóknum tekið höndum saman og ég er ekki i vafa um að það verður árangur af því starfi um ókomna framtíð. Þannig getur allur almenn- ingur gert sér grein fyrir sögu hvers staðar,“ segir Anna Soffía. Umfangsmikil og tímafrek verkefni Meira en 150 verkefni hlutu styrk úr Kristnihátíðarsjóði á fimm ára starfstímabili hans. Þar af voru tólf verkefni á sviði fornleifarannsókna og nutu þau flest styrks allan tím- ann enda um umfangsmikil og tíma- frek verkefni að ræða. Anna Soffía tekur undir að það hafi verið mikils virði fyrir fornleifafræðinga að geta lagt svo mikið starf í rannsóknir á tilteknum svæðum. „Enn fremur voru rannsóknarhóparnir duglegir við að útvega sér fjármagn annars staðar frá, innan lands og utan. 1 sumum tilfellum var styrkurinn frá Kristnihátíðarsjóði tvö- eða þrefald- aður,“ segir Anna Soffía og bætir við að þátttaka erlendra fræðimanna hafi einnig verið áberandi. „Á sama tíma hófst kennsla í fornleifafræði við Háskóla Islands og þetta hefur stutt gríðarlega hvort við annað. Nú eru margir nemendur í fornleifa- fræði og þeir hafa flestir unnið við þessar rannsóknir á sumrin og það hefur gagnast kennslunni," segir Anna Soffía
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.