blaðið - 08.04.2006, Page 27
blaðið LAUGARDAGUR 8. APRÍL 2006
VIÐTALI 27
bókarinnar, erfólk óhrœddara?
Mér finnst ég sjá raunverulega
breytingu. Mér var bent á bloggsíðu,
Liverpoolblogg þar sem bloggað
var um daginn og veginn. Allt í
einu breyttust skrifin, bara BLING!
Nýjasta bloggið eftir að viðkomandi
hafði lesið bókina var eins og allt
önnur manneskja væri að skrifa,
hann var bara vaknaður.
Hefurðu séð einhverjar breytingar
í fjölmiðlaumrœðunni, er hún
gagnrýnni?
Fjölmiðlamenn hafa fæstir
mikinn tíma og ég held að fæstir
þeirra hafi haft tíma til að lesa
bókina. Þarna eru margir þræðir
sem fjölmiðlar hafa ekki sinnt eða
elt. Maður veltir því fyrir sér hver
eru völd almannatengsla? Hvernig
gömul vinátta og samband við gamla
vinnufélaga verður verðmæti sem
svo er hægt að selja stórfyrirtækjum.
Fjölmiðlafólk hefur lítinn tima og
ef þú ætlar að losa 4000 tonn af
brennisteinsdíoxíð þá færðu bara
almannatengslafyrirtæki til að orða
það rétt fyrir þig þannig að það
standi í fyrirsögn; "Fullkomnasti
hreinsibúnaður í heimi.” Það
stendur þá bara í blaðinu sem veldur
því að almenningur hefur ekki
alltaf aðgang að upplýsingum í mjög
stórum málum.
En eru fjölmiðlamenn líklegir til að
taka á þessu? Ertu ekki kominn að
rótum vanda fjölmiðla; Fleiri miðlar,
hlutfallslega færra fólk, meiri vinna,
yfirborðskenndarifréttir?
Mér hefur fundist skorta á að
fjölmiðlar birti heildarmyndir. Það
var það sem ég var að taka saman í
bókinni. Það er allt í einu komið upp
stórmál og það er afgreitt á mettíma.
Ef ég fer til Benidorm sumarið 2008
verður þá búið að ákveða að eyða
Langasjó þegar ég kem heim?
Þú gerir heilmikið í bókinni úr
þessari fölsku tímapressu, að ef við
grípum ekki tœkifærið núna þá sé
það að eilífu glatað. Er það önnur
svona svipa?
Timapressan er líka sett af því
að það er búið að vinna allan
undirbúning, svo er bara kveikt
á tímapressunni. Það virðist ekki
vera nein langtímahugsun í þessum
iðnaði. En hún er samt til staðar
inni í geiranum. Gagnvart okkur
almenningi er hún ekki til staðar
því við eigum ekki að hafa neina
heildarmynd. Á einu ári hækkuðu
markmiðin í orkuframleiðslunni
á íslandi úr milljón tonnum upp í
eina og hálfa milljón. Þau hækkuðu
úm þrjú álver í Straumsvík án
nokkurrar umræðu.
Minnkandi einstaklingar
Finnst þér stjórnvöld lítasvoáaðþau
hafi aukinn rétt til að taka ákvörðun
fyrir börn framtíðarinnar?
Hver stjórnar og stjórnar ekki?
Þetta er bara samspil. Ef einhver
leiðtogi upplýsist og villleyfalýðnum
að ráða þá er hætta á að lýðurinn
vilji ekki upplýsast og leggi okið af
ábyrgðinni á herðar leiðtogans, láti
honum eftir að bjarga sér. Þetta er
samverkandi og í raun skortur á
framtíðarsýn Islendinga og vantrú
á eigin getu.
Finnst þér þetta endurspeglast í
utanríkisstefnunni?
Menn fatta ekki að þjóð getur
verið smá en einstaklingur hvar
sem er í heiminum er jafn stór.
Þessi hugsun hefur valdið því
að við sem einstaklingar höfum
minnkað. í þorskastríðinu, til
dæmis, báru skiptstjórar á stóru
bresku freigátunum ómælda
virðingu fyrir skipstjórum á litlu
íslensku skipunum. Þeir voru
stórar manneskjur þrátt fyrir að
vera á litlum skipum. Ég held að
Bandaríkjamenn muni ekki þykja
99......................................................................
Menn fatta ekki að þjóð getur verið smá en einstaklingur hvar sem er í heiminum
er jafn stór. Þessi hugsun hefur valdið því að við sem einstaklingar höfum minnkað.
margt eftirminnilegt við þetta
fólk sem reyndi að halda þeim og
einhverjum herþotum á landinu.
Það er mikil smæð í því sem sárt er
að horfa upp á. íslensk stjórnvöld
hafa tekið of mikla ábyrgð á sig
í þessu máli sem er í raun miklu
lengra gengið heldur en stolt
meðalmannsins segir að þurfi til. Ef
við myndum sjálf taka ákvarðanir
um orkustefnuna, hverju ætti að
ráðstafa næstu árin, þá myndu
stjórnmálamenn missa 90% af
sínum virkjunarkostum. En af því
að við tökum alltaf ákvarðanir i
tímapressu eða einn í einu, eða út frá
hagsmunum einhvers byggðarlags,
þá er hægt að taka þetta allt saman.
Bara smátt og smátt.
Heldurðu að það verði hægt að koma
í veg fyrir að vatni verið hleypt á
Kárahnjúkavirkjun?
Þeir sem hafa kynnt sér svæðið
og kynnt sér alvarleg áhrif
lónsins á umhverfið til dæmis í
uppfoki þykir nokkuð augljóst að
framkvæmdin var líklega alltaf
tæknilega óframkvæmanleg. Menn
hljóta að velta fyrir sér hversu mikið
vandamál þetta fyrirbæri verður
um alla framtíð.
Það væri fróðlegt að sjá ef öll
vafaatriðin væru kynnt fyrir
þjóðinni virkjunin er stærri en
lýðæðið til að mynda með því að
leyfa þjóðinni að kjósa um hvort
fylla eigi lónið eða ekki. Mér finnst
persónulega að virkjunin ætti
að standa ónýtt sem tákn um að
maðurinn geti snúið við ef hann
vill snúa við. Að maðurinn sé stærri
en vélin. Ég held að þannig gætum
við borið höfuðið nokkuð hátt og að
fjöldi manns myndi koma hingað til
að sjá þann minnisvarða. Það má
hafa arð af slíkri framkvæmd.
eóod e eoi r
BÆJARLIND 12 • 201 S: 544 4420 KÓPAVOGUR
Opið: mán-fös 10:00-18:00 lau 10:00-16:00 - sun 13:00-16:00
SOHO LEÐURSTÓLL
Fáanlegur I dökkbrúnu leöri með Ijósum
eikarfótum og dökkum fótum
veiö
14.500
00 dekor i
Leðursófasett 503
3+1+1 3+2
207.000,- 197.000,
Fáanlegt í hvítu og dökkbrúnu leðri
Mikiö úrval af
sófum og bordstofustólum
ROMEO
Með PU bycast áferð
Fáanlegur I dökkbrúnu, Ijósbrúnu og
svörtu með Ijósum eikarfótum
Verð:
12.500
THEO
Rispufrítt áklæði sem gott er að þrífa
Fáanlegur með Ijósum beykifótum og
dökkum fótum.
Verð:
12.500
CAPRI luðurí
F Aanlagur I
Vorð éðuri
Verö nú:
TANGO LEÐURSTÓLL
Fáanlegur I dökkbrúnu og rauðbrúnu
leðri með Ijósum eikarfótum
vtíiu:
13.800
DENNIS
Með PU bycast áferð
Fóanlegur I dökkbrúnu með Ijósum
eikarfótum og dökkum fótum
veiu;
17.500