blaðið - 22.04.2006, Blaðsíða 4

blaðið - 22.04.2006, Blaðsíða 4
4 I INNLEBIDAR FRÉTTIR LAUGARDAGUR 22. APRÍL 2006 blaöið Frá starfsemi Ævintýralands í fyrra Ekkert Ævintýraland Sökum breytinga á húsa- kynnum heimavistar Landbún- aðarháskólans að Hvanneyri verður ekki hægt að starfrækja sumarbúðirnar Ævintýraland þetta sumarið. Munu búðirnar því taka sér ársfrí. „Við biðjum öll þau börn sem ætluðu að koma til okkar í sumar og foreldra þeirra innilegar vel- virðingar á þessu. Við leitum nú að framtíðarhúsnæði fyrir sum- arbúðirnar og mætum tvíefld og hress til starfa að ári, sumarið 2007“ segir í tilkynningu frá að- standendum Ævintýralands. Segir nýjar reglur síst strang- ari en í nágrannalöndunum Blaðamannafélag íslands mótmœlirfyrirhuguðu dómsmálafrumvarpi harðlega. dóms- og kirkju- málaráðherra. „Ég tel fullgild rök fyrir því að stuðla að friðhelgi þeirra, sem eru í dóm- húsum, og ákvæði frumvarpsins um það efni er síst strangara en almennt tíðkast í þeim löndum, þar sem frelsi fjölmiðla er í heiðri haft. Frumvarpið er nú til meðferðar Björn Bjamason, í allsherjarnefnd Alþingis og leitar hún umsagnar og ræðir einstakar greinar þess,“ segir Björn Bjarnason um frumvarp þar sem myndatökur og aðrar upp- tökur í dómshúsum verða bannaðar. Blaðamannafélag Islands (BÍ) hefur mótmælt frumvarpinu harðlega, nú síðast á aðalfundi félagsins fyrr í vik- unni, þar sem eftirfarandi ályktun um málið var samþykkt. “Aðalfundur Blaðamannafélags Islands, haldinn 19. apríl 2006, mót- mælir harðlega fyrirætlunum um að þrengja starfsskilyrði blaðamanna sem fram koma í frumvarpi til laga um breytingar á lögum til dómstóla. Hágæða prótein mm w Faar hitaeiningar Fundurinn varar við þróun í þá átt að tak- marka upp- lýsingar til al- með ályktuninni vilji félagið vara við þróun sem miðar að því að þrengja aðstarfs- skil- menn- ings um o p i n b e r mál.” Ekkert samráð haft Arna Schram, formaður BÍ segir að manna. „Við teljum að það sé ástæða fyrir t.d. opnu þinghaldi í dómsstólum lands- ins. Rökin eru meðal annars að al- menningur eigi að vita hvað er að gerast í opinberum málum, og inni- falið í því er að- gengi fjölmiðla. Mér finnst skýr ogsterkrökþurfi til að takmarka þennan aðgang en slíkt er ekki gert í frumvarp- inu. Á hinn bóginn gera fjöl- miðlar sér grein fyrir að frelsinu fylgir mikil ábyrgð,“ segir Arna. Hún segir ennfremur að ekki hafi verið haft samráð við Blaðamannafé- lagið við frumvarpsgerðina. „Nei, það var ekki gert og mér finnst það gagnrýnivert. Það er verið að setja reglur sem skerða starfsskil- yrði blaðamanna og við lesum um þetta þegar búið er að leggja máið fram á Alþingi. Mér hefði þótt eðlilegra að rætt hefði verið við fé- lagið um þessi áforrn," segir Arna ennfremur. Arna Schram, formaöur Bf Krónan styrktist í gær Krónan styrktist um 2,2% í gær eftir að hafa fallið um 9,6% frá því fyrir páska og um 21% frá því um síðustu áramót. Við lokun markaðar í gær stóð dollarinn í 77,31 krónu, Evran í 95.45 krónum og pundið í 137,8 krónum. Um síðustu áramót stóð dollarinn í 63,1 krónu, evran í 74,7 krónum og pundið í 108,85 krónum. Velta á gjaldeyrismarkaði í gær nam rúmum 51 milljarði og hefur veltan aldrei mælst hærri. Fyrra metið var frá því í byrjun marsmán- aðar en þá nam hún rétt tæpum 46 milljörðum króna. I hálffimm fréttum greiningar- deildar KB-banka í gær segir að raungengi krónunnar sé nú að nálgast jafnvægi og frekari veiking sé ekki réttlætanleg út frá hagfræði- legum sjónarmiðum. Betra verð Hundamatur með nautakjöti og Iifur300g kr 70- Ý. & Blam/FMi Boxað til sigurs Islandsmeistaramótið í hnefaleikum stendur nú yfir. f gær og í fyrradag kepptu hnefaleikamenn á öllum aldri og f öllum þyngdar- flokkum um réttinn til aö taka þátt í úrslitamótinu sem haldið verður í kvöld. þar veröa ellefu fslandsmeistarar í hnefaieikum krýndir. Keppnin mun fara fram í Kaplakrika og opnar húsiö kl. 19:00 en bardagarnir byrja stundvíslega kl. 20:00. Hér fyrir ofan má sjá Davíð Rafn Björgvinsson koma þungu höggi á Þráinn Erlendsson í undanúrslitum f 75 - 81 kg. flokki í gær. www.expressferdir.is GOLF m HANBURY MANOR Hanbury Manor er frábært golf- hótel, örstutt frá Stansted flug- velli. Rmm stjömu hótel með öllum nútímaþægindum. Golfvellinum er mjög vel við- haldið og er skemmtilegur og krefjandi. Fjölmargir íslendingar hafa dvalið á þessu golfhóteli og eiga það allir sameiginlegt að koma himinl'rfandi til baka! GOLFFERÐ TIL LONDON 55.900 kr. INNIFALIÐ: Flug með lceland Express til Stansted með flugvallasköttum, tvær nætur á hótelinu ásamt tveimur hringjum á golfvellinum. Bnnig er hægt að kaupa 4 nótta pakka með 4 golfhringjum á 79.900 kr. » Nánar á www.expressferdir.is Express Ferðir, Grímsbæ, Efstalandi 26, slmi 5 900 100 Formaðurinn hættur Jón Ingi Kristjánsson, formaður AFLs Starfsgreinafélags Austurlands sagði af sér formennsku á stjórnar- fundi nú um páskana. AFL er stærsta einstaka stéttarfélagið á Austurlandi með rúmlega 2000 félagsmenn. Jón Ingi hefur verið starfandi formaður frá stofnun AFLs árið 2001. Um leið og Jón sagði af sér formennsku lét hann af setu i miðstjórn Alþýðusam- bands Islands, framkvæmdastjórn Starfsgreinasambandsins og stjórn Sjómannasambands Islands. Ástæður uppsagnar Jóns eru sagðar persónulegar en hann hefur þegar hætt störfum. Varaformaður félagsins, Sigurður Hólm Freysson, mun taka við skyldum formanns fram að aðalfundi sem haldinn verður í mai, þar sem stjórnarkjör mun fara fram.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.