blaðið - 22.04.2006, Blaðsíða 8

blaðið - 22.04.2006, Blaðsíða 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR LAUGARDAGUR 22. APRÍL 2006 blaöiö Gyanendra leitar sátta Nepalskonungur tilneyddur til að mceta hávœrum kröfum tugþúsunda mótmœlenda. Yfir- standandi útgöngubann var virt að vettugi og urðu hörð átök milli mótmœlenda og lögreglu. Konungsstjórnin í Nepal framlengdi í gær yfirstandandi úgöngubann í höfuðborginni Katmandú og lýsti því yfir að þeir sem brytu gegn því yrðu umsvifalaust skotnir til bana. Hátt í hundrað þúsund manns söfnuðust saman á fimmtudag til að lýsa andstöðu gegn Gyanendra kon- ungi og kröfðust þess að nepalska ríkisstjórnin kæmist aftur til valda. Gyanendra rak ríkisstjórnina frá völdum í febrúar á þeim forsendum að hún hefði reynst ófær um að binda enda á uppreisn skæruliða maóista. Mótmæli hafa staðið yfir vegna þessa undanfarnar tvær vikur og hafa sífellt fleiri slegist í hóp mót- mælenda. „Það er stórkostlegt að sjá hversu mikill fjöldi hefur safnast saman þrátt fyrir útgöngubannið og herferðina gegn okkur. Við höfum sýnt að það verður ekki þaggað niður í okkur,“ sagði Krishna Prasad Sita- ula, forseti nepalska þingsins. Sendi- fulltrúi frá Indlandi, Karan Singh, mætti á fund Gyanendras í 'gær og biðlaði til hans að hlusta á mótmæl- endur og koma á ró í landinu. „Það ríkir stjórnleysi í Nepal um þessar mundir og þörf er á róttækum að- gerðum hið fyrsta. Það voru í raun- inni þau skilaboð sem ég hafði til Gyanendras,“ sagði Singh. Fjórtán hafa látist Á fimmtudag skutu lögreglumenn að mótmælendum með þeim af- leiðingum að þrír létu lífið og fjöl- margir særðust. Hafa því alls 14 Ungur mótmælandi hrópar að herlögreglu við fögnuð viðstaddra á reykfylltri götu Katmandúborgar í gær. Reuters týnt lífi í mótmælunum. Nepalski herinn hefur hafist handa við að brenna lík þeirra mótmælenda sem létu lífið. Viðmælandi breska ríkis- útvarpsins, BBC, í Nepal varð vitni að líkbrennslu eins þeirra, Basu Ghimire. Greindi hann frá því að mágur Ghimire hefði verið sá eini sem var viðstaddur þar sem eigin- kona hans hefði verið afar ósátt við meðferðina á líkinu og þá voru aðrir ástvinir ekki boðaðir. „Þetta er enn eitt dæmið um tillitsleysi stjórn- valda gagnvart þegnum landsins. Ég er viss um að líkbrennslan fór fram eftir tilmælum konungsins,“ sagði viðmælandinn. Gyanendra heitir lýðræði Síðdegis í gær ávarpaði Gyanendra nepölsku þjóðina í sjónvarpi og bað stjórnarandstöðuna að tilnefna forsætirsráðherraefni. Stjórnarand- staðan kvaðst myndu ræða málið áður en hún gæfi svar við sáttabeiðni konungs. Tilkynningu Gyanendras var fagnað ákaft af mótmælendum á götum úti en ekki sló á vígaham fólksins. Telja margir að eftirgjöf konungs sé of lítil og komi of seint. „Við búum í fjölflokka lýðræðis- ríki og höfum þingbundna konungs- stjórn. Æðsta valdi yfir konungsrík- inu Nepal, sem var í okkar höndum, verður hér með skilað í hendur fólks- ins. Við vonumst eftir að friður og regla komist nú aftur á í landinu,“ sagði Gyanendra í yfirlýsingunni. Núverandi stjórn verður áfram við völd í landinu þar til nýr forsætisráð- herra hefur verið skipaður. Boðin legsteinn fyrir eigin útför Starfsmönnum norskrar útfarar- stofu varð heldur betur á í messunni þegar þeir sendu konu einni bréf þar sem henni var boðið að kaupa legstein fyrir útför sína vegna nýlegs fráfalls síns. Solveigu Grönstad brá í brún þegar hún las bréfið frá Ellinggárd-útfar- arstofunni sem stílað var á hennar „nánasta aðstandanda“. í bréfinu stóð: „Við sáum í fréttatilkynningu að Solveig Grönstad hefur fallið frá og vottumyður samúð okkar.“ Því næst mátti svo lesa um verð stofunnar á legsteinum og áletrunum sem kynnu að henta fyrir útför Solveigar. „Ég fékk áfall þegar ég las bréfið. En þetta er nú grátbroslegt þar sem ég er sprelllifandi og hress,“ sagði Sol- veig, sem er 75 ára, í viðtali í norsku dagblaði. Útfararstofan hefur beðist afsökunar á mistökum sínum. „Það eina sem við getum gert er að biðj- ast afsökunar. Líklega stafar þetta af því að tvær manneskjur báru nákvæmlega sama nafn,“ sagði Per Einar Ellinggárd, talsmaður útfararstofunnar. Fyrirlitning í garð alnæmis- smitaðra í Kenýa Þúsundir söfnuðust saman í Naíróbí, höfuðborg Kenýa, í gær og mótmæltu aðgerðarleysi stjórnvalda í garð alnæmissmitaðra sem lifa við afar bág kjör þar í landi. Tilefni mótmæl- anna var kaldrifjað morð á ungum alnæmissmituðum dreng sem stung- inn var til bana með heykvísl. Lög- regla grunar frænda drengsins um ódæðisverkið en sá hafði umsjón með drengnum. Morðið var framið fyrir tveimur vikum síðan en enn hefur enginn verið handtekinn. Talsmaður hags- munasamtaka alnæmissmitaðra sagði málið varpa skæru ljósi á hversu mikil fyrirlitning ríki í garð fólks með alnæmi í Kenýa. Drengur- inn hafi óafskiptur þurft að líða lang- varandi misþyrmingar frænda síns og nú þegar hann sé látinn aðhafist lögregla ekkert í málinu. Hedensted Caravan er í fararbroddi verslana með útilegubúnað ó Jótlandi í Danmörku. Nú hefur þú einnig tækifæri til að kaupa fró okkur tjaldvagna, hjólhýsi og útilegubúnað í bestu gæðum. Örlítið sýnishorn af notuðum hjólhýsum. Innifalinn danskur vsk. 2003 Adria Exclusive 432PX 10.695 EUR 2000 Adria C- model 743UP 13.375 EUR 2000 Adria Exclusive 562UP 11.635 EUR 2003 Adria Unica 502LS 9.355 EUR 2000 Burstner Fun 530TN 10.695 EUR 2002 Búrstner Ventana 530TK 14.715 EUR 1999 Burstner Ventana 540TK 12.700 EUR 2002 Hobby De-Luxe 560 Kmfe 14.716 EUR 2002 Hobby Excellent 460Ufe 11.365 EUR 2004 Hobby Exclusive 460Ufe 14.045 EUR 2004 Hobby Exclusive 560Ufe 16.056 EUR 2003 Hymer Puck 8.015 EUR Verð innihalda ekki tolla og tlutningskostnað Heimsækið WWW.HEDENSTEDCARAVAN.DK Þar getur þú séð yfir 100 hjólhýsi með 5 myndum og nánari upplýsingum um hvert og eitt hjólhýsi. Hedensted Caravan hefur mikla reynslu í innflutningi til Islands og við getum sent hjólhýsi beint til Seyðisfjarðar og annan útilegubúnað alveg heim að dyrum. Bílaleicubílar erlendis - sporaðu tíma, peninga og fyrirhöfn. rnr 375,000 bíla rloti fl.eíri en 30 l.öndurn urn alUin fiöirn. Meira en 3000 afgreiðslustaðir meðal annars á öllum stærri flugvöllum. bókaðu bílinn heima: ®4616010 BILALEIGA AKUREYRAR Alamo Bókanir erlendis | 461-6010 | 08-17 virka daga | erlendis@holdur.is | holdur.is þínar þarfir - okkar þjónusta. TIL AÐ FÁ TILBOÐ VINSAMLEGAST HAFIÐ SAMBAND VIÐ: Mr. Niels Lund-Nielsen sími: 0045 75890677, netfang: Niels.lund@hedenstedcaravan.dk Mánudaga til Föstudaga milli 09:00 - 17:00, Laugardaga milli 10:00 - 16:00

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.