blaðið - 22.04.2006, Blaðsíða 24

blaðið - 22.04.2006, Blaðsíða 24
24 I SAGA LAUGARDAGUR 22. APRÍL 2006 biaAÍð Tískudrottningin Elísabet Elísabet II Bretadrottning virðir fyrir sér nokkur þeirra heiliaóskakorta og -skeyta sem henni hafa borist í tilefni áttræðisafmælis henn- ar í gær. Tolvuskeyti og kort sem drottningu bárust í tilefni tímamótanna skipta tugum þúsunda. Áttrœð og enn í fullu fjöri Enginn þjóðhöfðingi í Evrópu hefur setið jafnlengi á valdastóli og Elísabet II Bretadrottning sem varð áttræð í gær. Haldið er upp á tímamótin með ýmsum hætti í Bretaveldi á næstu vikum. Umgjörð hátíðarhaldanna verður þó minni en þegar haldið var upp á að hálf öld var liðin frá krýningu hennar fyrir fjórum árum. Fjölmargar sýningar verða settar upp í tilefni tímamót- anna auk þess sem minjagripir af ýmsum stærðum og gerðum verða framleiddir, allt frá frímerkjum til leikfangabangsa. Þó að hinn eiginlegi afmælisdagur drottningar sé 21. apríl á hún einnig opinberan afmælisdag sem verður haldin þann 17. júní í ár en þá er hið óútreiknanlega breska veðurfar talið hagstæðara fyrir hátíðahöld utandyra. Átti ekki að verða drottning Elizabeth Alexandra Mary Windsor fæddist í London þann 21. apríl 1926. Hún var þriðja í röð þeirra sem erfa áttu krúnuna og gerði sér upphaflega litlar vonir um verða nokkurn tíma drottning. Þegar frændi hennar Eð- varð VIII konungur þurfti að afsala sér krúnunni árið 1936 varð hins vegar Elísabet sem þá var aðeins tíu ára tilvonandi ríkisarfi. Georg VI faðir Elísabetar lést í febrúar 1952 og var hún krýnd drottning Breta í júní- mánuði ári síðar. Þrátt fyrir að hún hafi verið svo ung þegar hún tókst á hendur hið vandasama starf sinnti hún verkefn- inu með sæmd og vann fljótt hugi og hjörtu landsmanna með framkomu sinni og þokka. Aðeins þrír þjóðhöfðingjar hafa setið lengur en Elísabet á valdastóli á Bretlandi síðustu 1000 árin. Hún hefur unnið með tíu forsætisráð- herrum á valdatíma sínum og er Tony Blair sá eini þeirra sem fæddist eftir að hún tók við embætti. Fáir úr bresku konungsfjölskyld- unni njóta jafnmikilla vinsælda meðal þjóðarinnar og Elísabet enda hefur hún ekki verið viðriðin hneykslismál eins og sumir ætt- ingjar hennar og tengdafólk. Þrátt fyrir árin áttatíu er drottn- ingin við ótrúlega góða heilsu og læknar telja að hún muni vera áfram við völd í að minnsta kosti áratug til viðbótar þó að hún muni að öllum líkindum draga úr skyldustörfum. Elísabet og Filippus prins sem hún giftist 1947 eignuðust fjögur börn Karl, Önnu, Andrés og Eðvarð. Elísabet II Bretadrottning hefur alla tíð vakið athygli fýrir fatasmekk sinn og klæðaburð og þá ekki síst hattasafn sitt sem er í senn mikið og íjölbreytt. Að sögn Brian Hoey, sérfræðings í bresku konungsfjölskyldunni og höf- undar bókarinnar Líf með drottning- unni segir að hún skipti um klæðnað allt að fimm sinnum á dag eftir því hvernig dagskráin er. „Það er mikilvægt að hún sé áber- andi,“ segir Caroline de Guitaut sem er sýningarstjóri sýningar á kjólum drottningar í Buckingham-höll. „Hún tekur þátt í viðburðum þar sem eru hundruð, jafnvel þúsundir manna. Þá verður hún að vera sýni- leg, hún verður að klæðast sterkum litum svo að allir sjái hana sam- stundis,“ segir hún og bætir við að það sé ekki síður mikilvægt fyrir ljósmyndara og myndatökumenn sjónvarpsstöðvanna. Fyrir stuttar opinberar heimsóknir til útlanda hefur drottningin um 50 mismunandi gerðir af klæðnaði. Vel á annan tug kassa þarf til að flytja fatnaðinn í og eru þá ekki taldar með sérstakar öskjur fyrir hatta og skó. Skórnir sem hún klæðist verða að vera sérstaklega þægilegir þar sem það reynir mjög á fæturnar að taka þátt í opinberum athöfnum og öðrum viðburðum sem virðast engan endi ætla að taka. I tilefni áttræðisafmælis Elísabetar Bretadrottningar verður stærsta sýn- ing sem nokkurn tíma hefur verið haldin á kvöldkjólum drottningar opnuð í Buckingham-höll í sumar. Kjólarnir verða áttatíu eða jafn- Elísabet II Bretadrottning þarf að skipta um föt allt að fimm sinnum á dag þegar hún er í opinberum heimsóknum, allt eftir dagskránni hverju sinni. margir árunum sem drottning hefur lifað og er sá elsti þeirra frá fimmta áratugnum. Margir kjólanna voru hannaðir af klæðskerunum Norman Hartnell og Hardy Amies sem unnu árum saman fyrir drottninguna. Hún klæddist kjólunum bæði við opinberar at- hafnir og fjölskylduviðburði. Ómetanlegir skartgripir til sýnis Ennfremur munu ýmsir dýrgripir úr hinu mikilfenglega skartgripasafni drottningar vera til sýnis. Meðal annars gefst gestum færi á að berja augum ýmsa ómetanlega muni og gjafir sem drottningunni hafa borist um ævina. Þar á meðal er gullháls- men sett eðalsteinum sem hertoginn af Edinborg hannaði og gaf drottn- ingu í tilefni af fimm ára brúðkaup- safmæli hjónanna. Kjólarnir verða sýndir í fyrsta skipti saman í ágúst og september á þessu ári. í tilefni afmælisins verður enn- fremur sett upp viðamikil ljós- myndasýning um feril drottningar í Windsor-kastala. AF HVERJUAÐ BORGA MEIRA? Bjóðum úrval vandaðra og gullfallegra innréttinga íeldhúsið, baðherbergið ásamt fataskápa í svefnherbergi og geymslur á frábæru verði. HEIMILISTÆKIÁ TILBOÐSVERÐI ÞEGAR KEYPTAR ERU „SETTU ÞAÐSAMAN" INNRÉTTINGAR „Settu það saman"er ósamsetta línan frá HTH. Engin afgreiðslufrestur- Afhent beint af lager.* Kynntu þér málið - bú sérð ekki eftir því! XllAÐVERSLA Hvíttuð eik dekor/0900. Hið Ijósa eikaryfirbragð fellur vel að stál áferð heimilistækjanna. PdDIOfyAUS? ORMSSON FURUVÖLLUM • AKUREYRI HTH-deild ■ SfMI 461-5003 SETTU ÞAÐ SAMAN mmnmmmm ORMSSON AKUREYRI • SlMI 461 5003 BEINNSlMIÁSÖLUMENN: 530-2906 • 530-2907 • 530-2908

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.