blaðið - 22.04.2006, Page 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 22. APRÍL 2006 blafiið
Sala á tóbaki minnkar
Heildartekjur ÁTVR á síðasta ári
námu rúmum 16.6 milljörðum
samkvæmt ársskýrslu verslunar-
innar sem birt var í gær. Hagnaður
nam um 540 milljónum sem er
besta afkoma frá því að skattar
voru aðskildir frá tekjum ÁTVR.
f ársskýrslunni kemur einnig
fram að tekjur vegna sölu áfengis
hafi aukist um 8,7% á síðasta ári.
Alls voru seldir 17,2 milljónir lítrar
af áfengi og þar af um 13 milljónir
lítrar af bjór.
Þá jukust tekjur af tóbakssölu
um 7% á síðasta ári sem skýrist
fyrst og fremst af verðhækkunum
á árinu. Sala á tóbaki dróst hins
vegar saman um 1% í magni.
Hjartavernd fær 60 milljón-
ir króna í rannsóknarstyrk
Algengt er að einstaklingar
fái kransæðastíflu án þess að
hafa nokkra hugmynd um það
sjálfir. Þetta kemur fram í niður-
stöðum nýlegrar rannsóknar sem
Hjartavernd stóð að í samvinnu
við bandaríska heilbrigðisráðu-
neytið. Að mati vísindamanna er
ljóst að þetti geti haft afgerandi
áhrif á þróun hjartabilunar hjá
öldruðum.
Hjartavernd hefur nú gert nýjan
samning við bandaríska heilbrigð-
isráðuneytið uppá 60 milljónir
íslenskra króna og munu pening-
arnir verða nýttir til frekari rann-
sókna á hjartasjúkdómum. Vonir
standa til þess að niðurstöður
þeirra rannsókna muni auka skiln-
ing manna á hjartasjúkdómum og
hvernig megi bregðast við þeim.
Sumarl 27. maí-3. júní
Slóvenía - Króatía
Vikuferð þar sem flogið er til Mílanó, ekið til Portoroz þar sem gist er í 6
nætur og síðan í 1 nótt í Mílanó. Margar skemmtilegar skoðunarferðir,
siglingar, dropasteinshellir, vínbóndi heimsóttur og tími til að slappa af.
Fararstjóri: Hófý
Ver3:94.200 kr.
Sumar3
Portoroz - Króatía - Austurríki 12. - 2 ?. juní
Okkar klassíska ferð til Slóveníu og Króatíu sem hefur verið svo
vinsæl í gegnum árin. Flogið til Miinchen og alltaf gist í nokkrar
nætur á hverjum stað. J
Fararstjóri: Svavar Lárusson
Ver3:147.500 kr. örfá sæti laus
ALLIR GETA B Ó K A S 1 G í B Æ NDAFERÐIR
www. baendaferdir. is S: 570 2790 Mk férðaþjónusta bænda BÆNDAFCRBIR J
„Vonbrigði að ekki
náðist sátt um málið"
Formaður Samtakanna 78 er óánægður með að trúfélögfái ekki að
gifta samkynheigð pör, þráttfyrir mikinn stuðning almennings.
Samkynhneigð pör öðlast m.a. rétt til ættleiðinga og tæknifrjóvgunar samkvæmt frum-
varpi til laga.
Samkynhneigð pör fá ekki að gifta
sig innan trúfélaga samkvæmt
breytingartillögu á lagaákvæðum er
varða réttarstöðu samkynhneigðra.
f nefndaráliti allsherjarnefndar Al-
þingis um lagaákvæðið kemur fram
að nefndin telur að umræðan um
breytingar á vígslurétti trúfélaga
þurfi lengri aðdraganda og vandaðri
undirbúning. Formaður Samtak-
anna 78 segir niðurstöðuna vera von-
brigði. Breytingartillagan var lögð
fram á Alþingi á fimmtudaginn.
Ekki tímabært
Samkvæmt breytingartillögum á
lagaákvæðum er varða réttarstöðu
samkynhneigðra verður samkyn-
hneigðum pörum ekki leyfilegt að
staðfesta samvist sína innan trúfé-
laga. í nefndaráliti allsherjarnefndar
Alþingis kemur fram að nefndin
telur mikilvægt að umræða um
málið fái lengri aðdraganda og vand-
aðri undirbúning. Þá kemur einnig
fram í áliti nefndarinnar að þrátt
fyrir að einstök trúfélög hafi lýst
yfir vilja til að fá heimild af þessu
tagi sé ekki tímabært að leggja til
breytingar á lögum vegna málsins.
f frumvarpinu eru engu að síður
lagðar fram umtalsverðar lagabreyt-
ingar sem hafa það markmið að
jafna réttarstöðu samkynhneigðra
para. Verði frumvarpið að lögum
munu samkynhneigð pör t.d. geta
skráð sambúð sína í þjóðskrá og
ættleitt börn. Þá verður samkyn-
hneigðum konum í staðfestri sam-
vist eða sambúð leyfilegt að gangast
undir tæknifrjóvgun.
Breytingartillagan var lögð fram
á Alþingi á fimmtudaginn og bíður
umræðu. Verði frumvarpið sam-
þykkt öðlast lögin gildi frá og með
27. júní næstkomandi.
Mikill stuðningur við málstaðinn
Hrafnhildur Gunnarsdóttir, for-
maður Samtakanna 78, segir frum-
varpið í heild vera sigur fyrir rétt-
indabaráttu samkynhneigðra. Hún
segir það hins vegar vera vonbrigði
að ekki náðist sátt um giftingu sam-
kynhneigðra para. „Þetta eru vissu-
lega vonbrigði. En ef við skoðum
skýrsluna sem þessar lagabrey tingar
byggja á þá var aldrei farið í saum-
ana á því að veita vígsluréttindi. Ég
tel því mjög eðlilegt að leitað verði
sátta í þessu máli.“
Hranfhildur segist hafa fundið
fýrir miklum stuðningi úti í þjóðfé-
laginu vegna málsins og augljóst sé
að mikil jákvæðni ríki í garð rétt-
indabaráttu samkynhneigðra. Hún
ítrekar þó að hún vilji ekki skylda
trúfélög til að samþykkja giftingar
samkynhneigðra heldur að þeim sé
gefið frelsi til að ákveða það. „Þjóð-
kirkjan hefur látið í það skína að
hún þurfi a.m.k. eitt ár í viðbót. Þó
afstaða biskups í þessu máli sé að
mínu mati skýr þá talar hann ekki
máli allra innan kirkjunnar. Ég veit
að þar eru mjög skiptar skoðanir
um málið. Á þeim stutta tíma sem
ég hef verið formaður samtakanna
hef ég fengið mikið af símtölum frá
prestum sem hafa verið að lýsa yfir
stuðningi við okkar málstað. Það er
mjög ánægjulegt. En Þjóðkirkjan
verður að ráða þessu sjálf. Það er
ekki okkar að stjórna henni né
öðrum trúfélögum."
Segir kjaraskerð-
ingu blasa við
I pistli sem Skúli Thoroddsen, fram-
kvæmdastjóri Starfsgreinasam-
bands íslands skrifar á heimasíðu
samtakanna segir hann væntingar
um að gildandi kjarasamningar
skili launafólki auknum kaupmætti
á samningstímanum að verða að
engu. Þar segir hann ennfremur:
„Kaupmáttarskerðing blasir við.
Ef ekki næst að tryggja hér stöðug-
leika og ná tökum á efnahagsstjórn-
inni stefnir í algjört óefni. Það þýðir
ekki að ráðast á boðbera válegra tíð-
inda, hinn virta opinbera Danske
bank, svo undrun sætir, eða stinga
höfðinu í sandinn eins og virðast
vera viðbrögð stjórnvalda og fjár-
málaspekúlanta í nýfrjálsum ís-
lenskum bönkum. “
(
Hártæ
Öll hársnyrtitæki með góðum afslætti en aðeins í nokkra daga.
Sléttujárn, bylgjujárn, vöfflujárn, hárklippur, krullujárn, nefhárasnyrtar, blásarar, hitaburstar,
rakvélar og margt fleira. Vörumerki á borð við Babyliss, Braun, Remington og Philips.
Búöín þfn byggtOQbÚÍÓ
„ . Kringlunni
Smaralind 568 9400
V 554 7760
I