blaðið - 22.04.2006, Side 22
22 I VIÐTAL
LAUGARDAGUR 22. APRÍL 2006 blaðiö
Dvel ekki i minningabókum
BlaðiÖ/Steinar Hugi
Skoðanakönnun sem Félagsvís-
indastofnun gerði nýlega fyrir
NFS sýnir að Sjálfstæðisflokk-
urinn næði meirihluta í sveita-
stjórnarkosningum í Árborg en
Eyþór Arnalds leiðir þann lista.
„Ég held að það sé ekki raunhæft
að einn flokkur fái meirihluta
í Árborg. Það hefur aldrei gerst.
Hins vegar er þessi skoðana-
könnun mikill áfellisdómur yfir
bæjarstjórninni. Hún er ekki
bara fallin, heldur kolfallin,”
segir Eyþór.
Ekki er langt síðan Eyþór flutti
frá London þar sem hann starfaði
sem framkvæmdastjóri hjá banda-
ríska fyrirtækinu Enpocket. Hann
býr nú í Hreiðurborg, sveitabæ sem
er milli Selfoss og Eyrarbakka. „Ég
hef alltaf verið mikill náttúruunn-
andi. Maður metur frekar kostina
við að vera nálægt náttúrunni
þegar maður er búinn að troðast
í neðanjarðarlestinni í London,”
segir hann þegar hann er spurður
hvort það hafi ekki verið mikil við-
brigði að flytja úr stórborg í sveit.
„Ég held að við íslendingar séum
loks að uppgötva hversu mikil lífs-
gæði felast í náttúrunni. Lengi vel
snerist íslenski draumurinn um
náttúruna um það að fara upp í
sumarbústað þar sem er kjarr og
hraun. Nú er mun meiri áhugi á
víðáttunni. I myndlistinni máluðu
Kjarval og Briem kjarr, runna og
hraun en núna eru Georg Guðni
og Húbert Nói að mála sjóndeild-
arhringinn, mosa og votlendi. Við
erum að koma auga á nýja fegurð
í landslaginu sem við tókum ekki
eftir áður.”
Mikilvæg sýn
Þú ert þekktur tónlistarmaður,
varst sem unglingur pönkari í
Tappa Tíkarassi með Björk og
fleirum en laukst háskólanámi
í tónsmíðum. Eru pönkarinn og
virðulegi tónlistarfrœðingurinn
ekki fullkomnar andstæður?
„Þeir hafa kannski ekki svo ólíka
eiginleika. Það þarf ákveðna ögun
til að semja pönklag. Pönkararnir
voru flestir afar skapandi einstak-
lingar. Þeir sem voru með mér í
Tappa tíkarass, fjórtán til fimmtán
ára, hafa flestir gert mjög skemmti-
lega hluti eftir það. Þetta var mjög
skapandi tími og Tappi tíkarass
var sérlega jákvæð pönkhljómsveit.
Við höfðum gaman af lífinu.
Tónlistarnám byggir á því að
nemandinn sé skapandi en um
leið agaður. Ég var mjög hepp-
inn með kennara eins og Gunnar
Kvaran sem kenndi mér á selló
allt frá byrjun. Bandaríkjamað-
urinn Paul Zukofski, sem stofn-
aði Sinfóníuhljómveit æskunnar
sem ég lék í sem unglingur, hafði
einnig mikil áhrif á mig. Þegar ég
lék undir stjórn hans fannst mér
Bandaríkin vera stórveldi. Ég fann
hvað það bjó mikil þekking á bak
við tónsprotann. Ég fann ekkert
Óskum Árborgarbúum og landsmönnum
öllum gledilegs sumars
tmmrm