blaðið - 04.05.2006, Síða 6
6 I FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 2006 blaðiö
Andvígir stofn-
un hlutafélags
Félag íslenskra flugumferðarstjóra
lýsir yfir andstöðu við þá megin-
stefnu ríkisstjórnarinnar, sem birtist
í frumvarpi samgönguráðherra
á Alþingi, að stofnað verði hluta-
félag um flugleiðsöguþjónustu og
flugvallarrekstur Flugmálastjórnar
íslands. Þessi sjónarmið félagsins
hafa verið kynnt í samgöngunefnd.
Félagið lýsir furðu sinni á þeim
vinnubrögðum að leggja fram laga-
frumvarp um svo umfangsmiklar
breytingar svo skömmu fyrir þing-
lok, sem og aetlunum um „ að koma
þvi með hraði í gegnum Alþingi á
næstu dögum - helst án umræðu
í þjóðfélaginu, að því er virðist,"
eins og segir í tilkynningunni.
Minningarkort
Minningar- og styrktarsjóðs
hjartaskjúklinga
HjartaHeill
sími 552 5744
Gfró- og kreditkortþjónusta
Google Earth vildi kaupa loft-
myndir af íslensku fyrirtæki
Fyrirtækið Loftmyndir bauð upp á mjög skýrar myndir af Reykjavík.
Ekki náðist samkomulag og því voru notaðar gervitunglamyndir.
inu síðan árið 2004. Þar gefst not-
endum tækifæri til að ferðast á ein-
stakan hátt um heiminn með hjálp
forritsins. Það er í raun eitt risastórt
kort, eða loftmynd af heiminum.
Hægt er að stækka þar upp ákveðin
svæði á heimskringlunni og einnig
að skoða til dæmis ólíkar borgir í
ótrúlegum gæðum.
Lengi vel var ekki hægt að fá skýra
loftmynd af Reykjavík í forritinu en
það hefur nú breyst. íslendingar,
sem og aðrir, geta nú notið þess að
skoða götur og hús bæjarins frá ein-
stöku sjónarhorni.
Teknar úr flugvél
Arnar Sigurðsson, markaðsstjóri
Loftmynda ehf. segir myndirnar
sem Google notist við séu teknar
úr gervihnetti. Þetta séu mismun-
andi myndir í gæðum en almennt
nokkuð góðar. Hann segir Google
hafa um nokkurt skeið óskað eftir
myndum frá Loftmyndum en ekki
hafi náðst samkomulag um verð.
„Gallinn er bara sá að ef við seljum
þeim og þeir gefa öllum - hverjum
eigum við þá að selja okkar myndir
í framtíðinni?"
Að sögn Arnars eru myndir þær
sem Loftmyndir bjóða uppá mun
skýrari en gervihnattamyndirnar
sem Google notast við nú. Þær séu
teknar úr flugvél úr mun minni hæð
og bjóða þ.a.l. uppá skýrari stækkun-
armöguleika. „Gervitunglamyndir
eru að öllu jöfnu mun óskýrari en
myndir teknar úr flugvél og þess
vegna eru okkar myndir mun skýr-
ari og í betri gæðum.“
Yfirlitsmynd af Reykjavík á Google Earth. Myndirnar eru af framkvæmdum að dæma
teknar sfðastiiðið sumar.
Bandaríska hugbúnaðarfyr-
irtækið Google Earth hefur
reynt um nokkurt skeið að
ná samkomulagi við íslenskt fyrir-
tæki um að útvega loftmyndir af
Reykjavík fyrir forritið Google Eart.
Um er ræða myndir sem eru mun
skýrari í upplausn en þær sem not-
endum bjóðast nú.
Ókeypis á Netinu
Hugbúnaðinn Google Earth hefur
verið hægt að nálgast ókeypis á Net-
Góð með kjúklingi, svínakjöti, reyktum laxi, graflaxi, sem
salatsósa og i kalt pastasalat hverskonar.
Á þessari mynd hefur svæðið í kringum Haligrfmskirkju verið stækkað upp.
Ken Livingstone, borgarstjóri Lúndúna,
sér enga ástæðu til þess að sturta niður
þegar hann er búinn að pissa.
Hefur ekki
sturtað niður
í 15 mánuði
Bresk stjórnmál hafa í auknu mæli
einkennst af því að helstu leiðtogar
flokkanna auglýsi hversu miklir
vinir umhverfisins þeir eru. David
Cameron, leiðtogi íhaldsmanna,
leggur til að mynda mikla áherslu
á að sjást koma hjólandi til vinnu,
en Tony Blair, forsætisráðherra,
hefur fyrirskipað að eingöngu skuli
notaðar umverfisvænar perur í ljósa-
stæðið fyrir ofan hinar fornfrægu
dyr á Downing-stræti 10. Enginn
keppir þó við Ken Livingstone,
borgarstjóra Lundúna, en hann
viðurkenndi í vikunni í viðtali við
blaðið The Independent að enginn
í fjölskyldu hans hafi sturtað niður
eftir að hafa pissað á heimili hans
síðustu fimmtán mánuði. Með
þessu athæfi vill Livingstone sýna
gott fordæmi í að spara vatn.
Livingstone sagði í samtali við
blaðið að Lundúnarbúar sóuðu allt
of miklu vatni í óþarfa. Hann bætti
við að hægt væri að spara ógrynni
af vatni með því að sleppa að sturta
niður eftir að hafa pissað. Hann
hvetur því alla Lundúnarbúa til þess
að fara að ráði sínu og segir enga
ástæðu fyrir því að sóa dýrmætu
vatni f að sturta út þvagi úr klósetti.
Minni hagnað-
ur hjá Össuri
Hagnaður Össurar hf. á fyrstu þrem-
ur mánuðum þessa árs eftir skatta
nam rúmum 42 milljónum króna. Á
sama tíma í fyrra nam hagnaður fyr-
irtækisins eftir skatta hins vegar um
tæplega 235 milljónum króna. Sala
á tímabilinu nam 3,9 milljörðum
króna og jókst um 93% samanborið
við fyrsta ársfjórðung sfðasta ár.
Að sögn Jón Sigurðssonar, for-
stjóra Össurar, setja fyrirtækjakaup í
byriun þessa árs mark sitt á uppgjör-
ið. I janúar keypti Össur fyrirtækið
Innovations Sports og febrúar Rigid
Medical Technologies. Vonast er
til þess að þær fjárfestingar skili
sér f auknum hagnaði á næsta ári.
VOGABÆR
■ . :v .
Frábær köld meö kjúklingi og lambakjöti og út á pizzuna.
Góö á saltkexið meö rifsberjahlaupi og sem ídýfa.