blaðið - 04.05.2006, Síða 10
10 I FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 2006 blaðiö
ESB frestar aðildarviðræðum
við Serba vegna Ratko Mladic
Ratko Mladic, fyrrum herforingi Bosníu-Serba, fer nú huldu höfði í Serbíu.
Evrópusambandið lýsti því yfir í gær
að viðræðum við Serba um samstarf
og umbætur sem eiga að leiða til
fullrar aðildar að Evrópusamband-
inu í framtíðinni hafi verið frestað.
Ástæðan er að yflrvöld í Belgrad hafa
enn ekki handsamað Ratko Mladic,
fyrrum leiðtoga hers Bosníu-Serba í
borgarastríðinu í fyrrum lýðveldum
Júgóslavíu. Mladic er, ásamt Rado-
van Karadzic stjórnmálaleiðtoga Bo-
sníu-Serba, eftirlýstur af stríðsglæpa-
dómstóli Sameinuðu þjóðanna í
Haag í Hollandi. Þeir eru meðal ann-
ars ákærðir fyrir að bera ábyrgð á
þjóðarmorðum á Bosníumönnum.
Áætlað var að Evrópusambandið
hæfi aðildarviðræður við Serba
þann n. maí næstkomandi. Ollie
Rehn, sem fer með málefni stækk-
unar Evrópusambandsins, sagðist
í gær harma seinagang stjórnvalda
í Serbíu við að hafa upp á Mladic,
sem ákærður er fyrir að bera ábyrgð
Ollie Rehn, yfirmaður stækkunarmála
Evrópusambandsins, sagði (gær að fyrir-
huguðum viðræðum um aðild Serba að
sambandinu yrði slegið á frest.
á þjóðarmorðum í Bosníustríðinu
1992-1995. Þar er honum meðal
annars gefið að sök að bera ábyrgð
á fjöldamorðum á 8 þúsund mús-
limum í bænum Srebrenica. Rehn
ítrekaði þó að Evrópusambandið sé
reiðubúið til þess að hefja viðræður
á ný sjáist merki um aukinn vilja
Serba við að hafa uppi á eftirlýstum
stríðsglæpamönnum. Forsætisráð-
herra Serbíu, Vojislav Kostunica,
vísaði í gær gagnrýni talsmanna Evr-
ópusambandsins á bug. Hann sagði
að stjórnvöld í Belgrad hafi gert allt
sem í þeirra valdi stendur til þess
að handsama Mladic. Þrátt fyrir að
ekki hafi náðst að handsama Mladid
sagði Kostunica að tekist hafi að upp-
ræta tengslanet hans og að hann sé
nú aðþrengdur á felustað sínum.
Veldur pólitískum höfuðverk
Mladic hefur farið huldu höfði siðan
1995 en Evrópusambandið hefur
beitt stjórnvöld í Belgrad miklum
þrýstingi að framselja Mladic.
Ráðamenn þar á bæ hafa hinsvegar
ítrekað neitað að vita nokkuð um
ferðir hans. Hinsvegar viðurkenndu
stjórnvöld að hann hafi verið undir
verndarvæng hersins fram á mitt ár
2002 og að hann hafi þegið lifeyris-
greiðslur frá ríkinu fram til desemb-
ermánaðar á síðasta ári.
Evrópusambandiðhefurnotaðhug-
s myndir um hugsanlega aðild ríkja á
Balkanskaganum sem hvatningu til
þess að knýja þar fram umbætur og
auka stöðugleika á svæðinu. Stjórn-
málaskýrendur telja að óþolinmæði
gagnvart litlum samstarfsvilja Serba
í málefnum eftirlýstra stríðsglæpa-
manna fari vaxandi, sérstaklega
í ljósi þess að stjórnvöld í Belgrad
vissu mun meira um ferðir Mladic
en þau gáfu upp.
Þetta ástand veldur Vojislav
Kostunica pólitískum höfuðverk.
Nauðsynleg forsenda fyrir nánari
tengslum við Evrópusambandið er
að stjórnvöld handsami Mladic. En
talið er að slík handtaka, sérstaklega
ef yfirvöld þurfa að beita valdi, geti
skapað mikla ólgu meðal þjóðern-
issinnaðra Serba sem líta á Mladic
sem þjóðhetju.
Miklar verð-
hækkanir
Miklar hækkanir á húsnæðis- og
eldsneytisverðiundanfarnatólfmán-
uði hefur valdið verðbólguhækkun
um 5,5%. Þetta kemur fram í saman-
tekt Hagstofunnar á þróun vísitölu
neysluverðs frá apríl 2005 til apríl
2006. í samantektinni kemur fram
að á einu ári hefur eldsneyti að með-
altali hækkað um 18% og húsnæði
umi2,3%. Ennfremur hefur verð á
matvælum hækkað 6,1%.
Þegar horft er á samsetningu út-
gjalda á tímabilinu kemur í ljós að
landsmenn eyða meira í ferðir og
flutninga en áður. I mars í fyrra
nam sá útgjaldahluti rúmum 13%
af heildarútgjöldum heimila en er
í dag tæp 17%. Á sama tíma minnk-
aði vægi annarra liða eins og mat-
vöru úr 14,2% í 13,3% og húsnæðis úr
17,2% í 16,8%.
Þórólfur í starf
forstjóra Skýrr
Þórólfur Árnason,
fyrrverandiborgar-
stjóri, hefur verið
ráðinn forstjóri
Skýrr hf. Hann
mun því fram-
vegis stýra þessu
stærsta fyrirtæki
landsins á sviði
upplýsingatækni, en hjá því starfa
í dag um 200 starfsmenn. Félagið
er dótturfélag Kögunar hf. sem er í
meirihlutareigu Dagsbrúnar hf.
Þórólfur var lengi vel forstjóri Tals
hf. og síðar borgarstjóri í Reykjavík
frá árinu 2003 til 2004.
Alfabakka 14 s. 557 4070
Að framkalla stafrænu myndirnar þínar
... á netinu
1... af minniskortinu
... af geisladiski
- ...af USB minnislykli
ww.myndval.is
Auglýsingar
510 3744
blaðið=