blaðið - 04.05.2006, Blaðsíða 12
12 I DEZGLAN
FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 2006 blaöið
M
? ? t t t f
Efþú hefur vit í kollinum
þá er tvennt sem blífur,
að hætta að nota bílinn og
að eiga góðan hjálm..
nion caasE
alvöru fjallahjól
Switchback SX
34.900
Stell: 6061
slaglengd stillanlegur Glrar SRAM ESP 3.0 21 glra
Rockadile Al 2006
28.900
Stell: 6061 Framdempari Spinner Grind 2.70mm Slaglengd stillanlegur
Gírar SRAM ESP 3.0 21 gíra
Wing Comp 2006
sumartilboð
39.
(áður 49.900)
Stell: 6061 Al/Cro-mo Framdempari RST Gila T6, lOOmm
Afturdempari KS-290 coil over shock Glrar Shimano Altus 24 glra
BlaöiS/Steitwr Hugi
Sigríður: „Með því að tala oftar um kynferðislegt ofbeldl þá verður minna um það."
Ekki allir
sem þegja
Hjólað í
vinnuna
I gærmorgun hleypti heilbrigð-
isráðherra af stað leiknum
„Hjólað í vinnuná' en þetta er í
fjórða sinn sem þessari fyrir-
tækjakeppni er hleypt á stað. Fyr-
irtækjakeppnin stendur frá 3.-16.
maí eni4. maíverðurhjóladagur
fjölskyldunnar. í fréttatilkynn-
ingu kemur fram að markmið
„Hjólað í vinnuná1 sé að vekja
athygli á hjólreiðum sem heilsu-
samlegum, umhverfisvænum
og hagkvæmum samgöngumáta.
Allir sem nýta sér eigin orku til
að koma sér til vinnu s.s. hjóla
eða ganga geta tekið þátt. Þeir
sem taka strætó eru einnig gjald-
gengir þátttakendur en þá telur
sú vegalengd sem gengin er til
og frá stoppistöð.
Jóna Hildur Bjarnadóttir svið-
stjóri hjá almenningsíþrótta-
sviði ÍSÍ segir að þátttakan í
þessu verkefni hafi tvöfaldast á
milli ára. „Fyrir utan að bæta
líkamlega og andlega heilsu er
að einhverju að keppa en verð-
launaskildir eru veittir fyrir þrjú
efstu sætin í hverjum fyrirtækja-
flokki en miðað er við að hjóla
sem flesta daga á tímabilinu og
að hjóla sem flesta kílómetra.
Stærri fyrirtæki tefla fram fleiri
en einu liði og dæmi eru um að
17-20 lið keppi frá sama fyrirtæki.
Fyrirtækin keppa síðan sameig-
inlega við önnur fyrirtæki.'1
hugrun@bladid.net
Rokkað til
vinstri
Ungir vinstri grænir efna til tón-
leikahalds, Rokkað til vinstri,
í Iðnó í kvöld. Tónleikarnir
eru haldnir af Ungum vinstri
grænum til stuðnings framboði
Vinstri grænna í Reykjavík.
Fjöldi hljómsveita og einstakra
tónlistamanna koma fram,
Benny Crespo's gang, Rósa Guð-
mundsdóttir, Helgi Valur, Byssu-
piss, Mammút, Múgsefjun, Jan
Mayen, Hraun og Norton. Að-
gangur á tónleikana er ókeypis.
Fjölbreyttir
Kópavogs-
dagar
Kópavogsbær stendur fyrir
Kópavogsdögum 2006 dagana 4.
- 11. maí í samvinnu við Iista- og
menningarstofnanir í Kópavogi.
Þetta er í þriðja sinn sem Kópa-
vogsdagar eru haldnir en þessa
daga verður fjölbreytt dagskrá
í boði fyrir íþúa Kópavogs og
nágrannasveitarfélaga.
A Kópavogsdögum verður
meðal annars opnuð yfirlits-
sýning á verkum Guðmundar
frá Miðdal og haldið málþing í
Salnum í tengslum við sýning-
una. Þá verður sérstakur íþrótta-
dagur í samvinnu við íþrótta- og
tómstundaráð Kópavogs, fjöl-
skylduhátíð og hlaupið verður
Smárahlaup.
Sigríður Björnsdóttir, fram-
kvæmdastjóri og starfsmaður
Blátt áfram, segir að það sé
nauðsynlegt að halda umræðu
um kynferðislegt ofbeldi á lofti.
Af því tilefni er ráðstefna í dag
um kynferðislegt ofbeldi og aðal-
fyrirlesarinn er Robert E. Longo,
sérfræðingur frá Bandaríkjunum
sem hefur unnið í málaflokknum
í 29 ár. Robert mun fjalla um fyr-
irbyggjandi aðgerðir, þolendur
og gerendur kynferðislegrar
misnotkunar.
Sigríður segir að þær spurningar
sem verður reynt að svara á ráðstefn-
unni séu spurningar sem Blátt áfram
hefur fengið frá
fólki. „Okkur ^ ^
finnst vera rétti * ™
tíminn fyrir ráð-
stefnu af þessu
tagi. Við vorum
nýlega með
auglýsingaher-
ferð og viljum
halda áfram að
minna á okkur.
Með því að
minna á okkur
vekjum við fólk
til umhugsunar
enda hefur fólk
spurt mikið um
hvernig beri að
bregðast við kynferðislegu ofbeldi
ásamt fleiru sem verður svarað á
ráðstefnunni.“ Sigríður vísar í aug-
lýsingaherferð þar sem ung börn
töluðu opinskátt um kynferðislegt
ofbeldi og segir hana hafa haft gífur-
leg áhrif. „Foreldrar gerðu sér grein
fyrir því að það þyrfti að ræða við
börnin og nýttu sér herferðina til
þess. Að gefa börnum tækifæri til
að setja þessi orð í munn þeirra, að
það mætti enginn snerta á typpinu
eða píkunni. En þetta er það sem við
viljum að börnin okkar geti sagt við
alla, hvort sem það eru ókunnugir
eða nákomnir.“
Fordómar eru stærsti
hluti vandans
Robert E. Longo er bandarískur sér-
fræðingur sem hefur unnið með
þolendum og gerendum kynferð-
islegs ofbeldis í 29 ár og Sigríður
segir að þær séu mjög ánægðar með
að fá hann hingað til lands. „Hann
hefur mikla reynslu og getur svarað
öllum þeim spurningum sem koma
upp á þessari ráðstefnu. Markmið
ráðstefnunnar er að skoða allar þær
leiðir sem samfélagið getur farið í
að fyrirbyggja kynferðislegt ofbeldi
á börnum. Hluti af forvörnum er að
takast á við fordóma gagnvart fólki
sem lifir af ofbeldi með fræðslu. For-
dómar eru stærsti hluti vandans.
Einnig þurfum við að taka ábyrgð
á gerendum og koma með skýr skila-
boð um hvernig við ætlum að stöðva
þennan vítahring sem kynferðislegt
ofbeldi er.“
Tækifæri og leyfi til að segja nei
Sigríður talar um að það þurfi fyrst
og fremst að gefa börnum tæki-
færi og leyfi til að segja nei. „Við
verðum að fræða börnin okkar um
kynlíf og fræða
yngri börnin
um þeirra eigin
mörk. Að það
megi enginn
snerta þau undir
sundfötunum og
ef þeim líður illa
í samskiptum
við fólk þá eigi
þau að láta full-
orðna fólkið vita.
Þetta er eitthvað
sem þú ræður
ekki bara einu
sinni við börnin
þín, heldur aftur
ogaftur.Kynferð-
islegt ofbeldi gerist á Islandi, þetta
er faraldur og er eitthvað sem þarf
að tala um. Með því að tala oftar
um kynferðislegt ofbeldi þá verður
minna um það,“ segir Sigríður og
bætir við að með umræðu sé verið
að láta börn vita að það er ekki allt
fullorðið fólk sem þegir. „Það eru
alltaf einhverjir sem þora ekki að
stíga fram og hjálpa börnum. Þeim
finnst það óþægilegt umræðuefni
eða of nærri sér.“
Yfirstígum óttann
Ráðstefnan, sem ber nafnið Yfir-
stígum óttann, stefnan tekin á
Forvarnir, fræðslu og heilbrigði, er
haldin í Kennaraháskólanum og
hefst kl. 9.00. Aðrir fyrirlesarar en
Robert eru Þorbjörg Sveindóttir,
verkefnastjóri á geðsviði Landspítala
Háskólasjúkrahúss, Kristín Berta
Guðnadóttir, félagsráðgjafanemi á
fjórða ári í HÍ, og Jón Friðrik Sigurðs-
son, forstöðusálfræðingur á geðsviði
Landspítala Háskólasjúkrahúss.
svanhvit@bladid.net
Við verðum að fræða
börnin okkar um kynlíf
og fræða yngri börnin
um þeirra eigin mörk. Að
það megi enginn snerta
þau undir sundfötunum
og efþeim líður illa í
samskiptum við fólk
þá eigi þau að láta
fullorðna fólkið vita.