blaðið - 16.05.2006, Page 1
Flugvöllinn o
áfram í
Vatnsmýrinni.
www.xf.is www.f-listinn.is
Sérblað um húsið
og garðinn fylgir
Blaðinu í dag -
Frjálst,
óháð &
ókeypis!
U JÚRÓVISJÓN
Vekur áfram
athygli i Aþenu
Silvía ^
dreifði
nærbuxum
fyrir framan
herfjölmiðla-
fólks
| SlÐUR 17-24
SlÐA 26
108. tölublað 2. argangur
þriðjudagur
16. maí 2006
Vafasöm
söguskoðun
Áhugi útlendinga á íslenskri
miðaldasögu hefur verið að
aukast á undanförnum árum
að sögn Hilmu Gunnarsdótt-
ur, sagnfræðings og fram-
kvæmdastjóra söguþingsins.
Hún segir mikla grósku vera
í sagnfræðirannsóknum hér
á landi um þessar mundir.
í viðtali við Kolbrúnu Berg-
þórsdóttur segir Hilma frá
söguþinginu sem hefst næst-
komandi fimmtudag og af
hverju gagnrýna rriegi þá
söguskoðun sem stjórnmála-
menn halda gjarnan á lofti í
opinberri umræðu. |sfÐA32
Blaðið/SteinarHugi
Auðvaldinu andæft
Mótmælendur létu nokkuð til sín taka fyrir utan Hótel Nordica í gær, en þar gekkst breska tímaritiðThe Economist fyrir ráðstefnu um við-
skipti, fjárfestingar og fjármálaþjónustu fslendinga. Þar töluðu bæði sérfræðingar, fuiltrúar félagasamtaka, stjórnmáiamenn og viðskipta-
jöfrar, en ráðstefnan var m.a. kostuð af Landsbankanum, Alcoa og FL Group með stuðningi frá Viðskiptaráði fslands og Morgunblaðinu.
Vill fremur utstrikanir
en að listanum sé refsað
Eyþór Arnalds kveðst aðeins geta beðist afsökunar á óafsakanlegu
athæfi og vonast til þess að aðrir frambjóðendur gjaldi ekki fyrir.
Eyþór Arnalds kveðst vona að óafsak-
anleg mistök sín verði ekki til þess að
kjósendur refsi Sjálfstæðisflokknum
í Árborg. „Ég gerði röð af mistökum
og hin stærstu voru að láta mér detta
í hug að setjast undir stýri eftir að
hafa drukkið áfengi," segir Eyþór
í samtali við Blaðið. „Dómgreind
mín var ljóslega verulega ábótavant
vegna áfengisneyslu og þess vegna
hef ég ákveðið að ráða bót á þeim
vanda.“ Eyþór segist þakka sínum
sæla að ekki hlaust af annar skaði en
eignatjón.
Eyþór Arnalds, sem skipar í. sæti
á lista Sjálfstæðisflokksins í Árborg,
var á aðfararnótt sunnudags stöðv-
aður í Reykjavík vegna ölvunar við
akstur og árekstur á ljósastaur og
hefur hann játað brotin.
„Ég þarf ekki að orðlengja það að
ég hef valdið sjálfum mér sárum von-
brigðum, að ógleymdum flokksfé-
lögum mínum, meðframbjóðendum,
fjölskyldu og kjósendum í Árborg,
sem ég hef leitað eftir stuðningi hjá.
Það er ekkert, sem getur réttlætt
þessar gerðir mínar og hið eina sem
ég get gert er að biðja afsökunar á óaf-
sakanlegu athæfi.“
Eyþór kvaðst iðrast og hann vildi
taka sér hlé frá öllu stjórnmálavafstri
uns mál hans hefðu farið rétta leið í
réttarkerfinu og hann væri búinn að
takast á við áfengisvanda sinn. „Ég
veit auðvitað ekki frekar en aðrir
hvernig málum fram vindur, en
ég verð samt að vonast til þess að
ef þetta hörmulega mál geti orðið
öðrum víti til varnaðar."
Eyþór segir að síðustu dagar hafi
verið sér erfiðir og að það hafi átt við
um félaga sína í Sjálfstæðisflokknum
líka. „En menn tóku þá ákvörðun að
halda áfram þó ég þyrfti að víkja úr
kosningabaráttunni." Hann segir
að aðrir kostir hafi vissulega verið
ræddir. „Ég held ég geti sagt að
öllum hliðum málsins hafi verið velt
upp og í svona máli er enginn kostur
góður. En okkur þótti þessi skástur í
þröngri stöðu.“
Hann kveðst vona að kjósendur
refsi ekki öðrum frambjóðendum
fyrir sín mistök. „Það er ekki eins
og ég sé einn á listanum eða ráði þar
öllu. Þarna að baki býr samhentur
og dugmikill hópur, eins og best
sést á þeim mikla meðbyr, sem við
höfum fundið fyrir hér í Árborg und-
anfarnar vikur. Sá byr snýst ekki um
einstaka frambjóðendur, ekki einu
sinni þó þeir séu í fyrsta sætinu,“
segir Eyþór. Hann kveðst ekki óttast
útstrikanir. „Ef einhverjir velkjast
í vafa um það að kjósa Sjálfstæðis-
flokkinn vegna þessa máls vil ég
frekar að þeir striki mig út en að þeir
láti það vera að kjósa listann.“
V
FRJÁLSI
FASTEIGNALAN
í MYNTKÖRFU
Nánari upplýsingar veita lánafulltrúar Frjálsa og á www.frjalsi.is
2,5%
dö vió myntkoríu 3 Libor vextii 3.4.2006