blaðið - 16.05.2006, Blaðsíða 6

blaðið - 16.05.2006, Blaðsíða 6
6IFRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 2006 blaðið Botninum náð? Undrast hringlandahátt korteri fyrir kosningar Leiðtogar framsóknar og frjálslyndra gagnrýna leiðtoga sjálfstæðismanna og vinstri- grænna sem lýst hafa efasemdum um byggingu hátæknisjúkrahúss við Hringbraut. Greiningardeild Glitnis telur líklegt að botninum hafi verið náð í lækk- unarhrinu síðustu mánaða á hluta- bréfamarkaði. í Morgunkorni bank- ans segir að uppgjör flestra stærstu félaganna í Kauphöll íslands fyrir fyrsta ársfjórðung ársins hafi leitt í ljós að afkoman heilt yfir var tals- vert yfir væntingum. Þessi góða út- koma hefur þó ekki leitt til mikillar hækkunar á hlutabréfaverði. Björn Ingi Hrafnsson, Framsókn- arflokki, og Ólafur F. Magnússon, Frjálslynda flokknum, segjast báðir vera á þeirri skoðun að stefna skuli að uppbyggingu hátæknisjúkrahúss við Hringbrautina, enda hafi sú ákvörðun verið tekin fyrir margt löngu. Svandís Svavarsdóttir, VG, og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Sjálfstæðisflokki, hafa bæði lýst efa- semdum sínum um ágæti þeirrar hugmyndar að byggja nýtt hátækni- sjúkrahús við Hringbraut. Búið að vera í undir- búningi í mörg ár „Það sem kemur mér á óvart í þessari umræðu er hirnglandahátturinn sem kemur fram hjá þessum stjórn- málamönnum, korteri fyrir kosn- ingar,“ segir Björn Ingi Hrafnsson. „Þetta mál er búið að vera í undirbún- ingi í mörg ár og um það verið samið á vettvangi ríkistjórnar og borgar.“ Þessi viðsnúningur kemur Birni því á óvart. „Ég skil einfaldlega ekki hvernig stendur á því. að í hverju málinu á fætur öðru skuli menn vera að hlaupa frá fyrri yfirlýsingum og ákvörðunum." Björn segist telja að málið sé komið allt of langt í ferlinu til þess að unnt sé að breyta því úr þessu. „Enda hef ég alltaf skilið fyr- irhugaða uppbyggingu Vatnsmýrar- innar á þann veg að þar eigi að vera vagga nýsköpunar og vísinda í land- inu með háskóla og vísindaþorpi.“ Björn Ingi segir Háskólasjúkrahús sannarlega tengjast slíkri starfs- semi. „Þetta hefur allt verið hugsað í samfellu og allar hugmyndir um að hætta við bygginguna eða breyta henni koma mér gjörsamlega í opna skjöldu.“ Björn segist bera fulla virðingu fyrir þeim sjónarmiðum sem segja að spítalinn eigi að vera annars- staðar, en sú umræða sé einfaldlega að baki. Hlaupist undan ábyrgð Ólafur F. Magnússon segir efa- semdir í garð staðsetningar nýs há- tæknisjúkrahúss vera út í hött. „Þeir sem bera fulla ábyrgð á því skipu- lagi sem unnið er eftir, ætla núna að hlaupa frá því í miðri kosninga- baráttu og það finnst mér út í hött.“ Ólafur segir, að úr því sem komið sé telji hann það of seint að ætla að fara að breyta þessari ákvörðun, „enda er þegar farið að byggja íbúð- arhúsnæði við hliðina á Landsspít- alanum í Fossvogi þar sem kom til greina að reisa spítalann. Ég tel því að við eigum að halda okkur við þá hugmynd að byggja upp háskóla og vísindaþop í Vatnsmýrinni sem sam- staða hefur verið um innan borgar- stjórnar." Hann segir að hátækni- sjúkrahús passi mjög vel inn í þær hugmyndir. MEIRI VEL -en flestlr þurfa! Vlnningstillaga um byggingu nýs spítala við Hringbraut. Eins og sjá má er þetta mikil bygging og hefur Svandís Svavarsdóttir meðal annars lýst áhyggjum sínum á áhrif spítalans á nánasta umhverfi. Finepix S5600 Nú á tilboði kr. 36.900.- meö 512MB korti! Rétt verðkr.45.800 «Ox aðdrðttur (38-380mm) 1.1 sekúndu að kvalkja ð sér mfm 0,0« aakúndu að taka myndlr HJðlparljós fyrlr sjðlfvlrkan fókus S.IMagaplxlar ISO 64-1600 3, Ji j„-:. 5íi| FUJIFILM oaíözæcEaíaim SSHSS, Skipholti 31, síml 568-0450 Ijosmyndavorur.is KOKOS-SISAL TEPPI Falleg - sterk - náttúruleg Verð frá kr. 2.840,- pr. m2 STRÖND Suðuriandsbraut 10 Simi 533 5800 www.simnet.la/stroni> Skattskrár vegna álagningar 2005 sem og virðisaukaskattsskrár vegna tekjuársins 2004 verða lagðar fram í öllum skattumdæmum þriðjudaginn 16. maí 2006. Framlagning skattskráa er samkvæmt ákvæðum 2. mgr. 98. gr. laga nr. 90/2003 og 46.gr laga nr 50/1988. Skrárnar liggja frammi hjá skattstjórum í hverju umdæmi, hjá umboðsmönnum skattstjóra eða á sérstaklega auglýstum stöðum í hverju skattumdæmi dagana 16. maí til 29. maí 2006 að báðum dögum meðtöldum. 16. MAÍ 2006 Skattstjórinn í Reykjavík, Gestur Steinþórsson. Skattstjórinn í Vesturlandsumdæmi, Stefán Skjaldarson. Skattstjórinn í Vestfjarðaumdæmi, Guðrún Björg Bragadóttir. Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi vestra, Bogi Sigurbjörnsson. Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi eystra, Gunnar Karlsson. Skattstjórinn í Austurlandsumdæmi, Karl S. Lauritzson. Skattstjórinn í Suðurlandsumdæmi, Hreinn Sveinsson. Skattstjórinn í Vestmannaeyjum, Ingi Tómas Björnsson. Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi, Sigmundur Stefánsson. IAN ANDERSON Auglýsingadeild 510-3744 biaðiðL Kærkomin kæling Pakistanskur maður hendir sér ofan í vatn til þess að kæla sig í íslamabad í gær. Gríðarleg hita- bylgja gengur yfir landið um þessar mundir og hafa fimmtíu manns lát- ist af hennar völdum frá maí byrjun. Hitinn hefur slagað upp í 50 gráður þegar heitast er yfir daginn.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.