blaðið - 16.05.2006, Blaðsíða 8

blaðið - 16.05.2006, Blaðsíða 8
8IFRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 2006 blaöiö rSérsmíÓilmeppann Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveítarstjórnarkosninganna 27. maí er hafin. Kosið er hjá sýslumönnum um allt land. í Reykjavík er kosið í anddyri Laugardalshallarinnar alladaga kl. 10-22. Utankjörstaðaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins veitir allar upplýsingar og aðstoð við kosningu utan kjörfundar. Sjálfstæðisfólk, látið vita um stuðnings- menn sem ekki verða heima á kjördag, t.d. námsfólk erlendis. UTANKJÖRSTÁÐASKRIFSTOFA SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Utan kjörstaðaskrifstofa SjálfstæðisfIokksins | Valhöll-1 Háaleitisbraut 1,3. hæð | 105 Reykjavík | Símar 515 1735 og 898 1720 | Fax 515 1739 I oskar@xd.is SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN Ef við eigum það ekki til þá bara búum við það til! Wfls&aú Jí^aíMnaia ÍÍ1564 0950 Javier Solana, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, á fundi með biaðamönnum í gær Evrópusambandið boðar „djarft" tilboð Utanríkisráðherra Þýskalands segir að ef vottur sé af almennri skynsemi meðal ráðamanna í Teheran verði fallist á tilboðið. Utanríkismálastjóri Evrópusam- bandsins, Javier Solana, sagði í gær að sambandið muni gera írönum „djarft“ tilboð til þess að fá klerka- stjórnina í Teheran til að falla frá áformum sínum um áframhaldandi auðgun úrans. Solana sagði fyrir fund utanríkisráðherra Evrópusam- bandsins í Brussel í gær að tilboðið næði meðal annars til kjarnorku- mála og efnahagsmála og ekki verið útilokað að sambandið myndi veita klerkastjórninni öryggistryggingar fallist íranir á tilboðið. Ummæli Solana féllu degi eftir að Mahmoud Ahmadinejad, forseti Ir- ans, ítrekaði þá afstöðu stjórnvalda í Teheran að þau væri ekki tilbúin til að láta af auðgun úrans og engin til- boð frá alþjóðasamfélaginu myndu breyta afstöðu þeirra. Aðspurður sagðist Solana ekki hafa miklar áhyggjur af því að ummæli írans- forseta útilokuðu samninga. Hann sagði við blaðamenn í gær að tilboð Evrópusambandsins yrði þess eðlis að það yrði erfitt fyrir írani að hafna því. Ennfremur sagði utanríkisstjór- inn að Evrópusambandið hefði ekkert á móti því að íranir notuðu kjarnorku til framleiðslu rafmagns og vilji væri til samstarfs við þá um friðsamlega notkun kjarnorku. Klerkastjórnin í Iran hafnaði til- boði frá Evrópusambandinu sem innihélt efnahagsívilnanir og boð um samstarf í orkumálum gegn því að þeir létu af auðgun úrans í ágúst á síðasta ári. Aðildarríki sambands- ins eru að koma sér saman um tilboð sem er talið geta breytt afstöðu Ir- ana. Utanríkisráðherra Þýskalands, Frank-Walter Steinmeier, sagði í gær að tilboðið yrði tilbúið síðar í þessari viku og bætti því við að ef það væri vottur af almennri skynsemi meðal ráðamanna i Teheran myndu írönsk stjórnvöld fallast á tilboðið. Á sama tíma og Evrópusambandið vinnur að gerð tilboðsins vinna Bretar og Frakkar með Bandaríkja- mönnum að ályktun sem byggir á sjöundu grein stofnsáttmála Sam- einuðu þjóðanna sem verður lögð fyrir öryggisráðið fallist íranir ekki á kröfur alþjóðasamfélagsins. Verði sú ályktun samþykkt opnar hún dyrnar fyrir viðskiptaþvinganir gegn írönskum stjórnvöldum og hugsanlegum hernaðaraðgerðum. PUSTÞJONUSTA v Smiójuvegur 50, Kóp., sími: 564 0950 Setjum pSSttteíiS í allar gerðlr blla Abbas hvetur til viðræðna á „degi hörmungaa Mahmoud Abbas. Mahmoud Abbas, forseti palestínsku heimastjórnarinnar, hvatti í gær ráða- menn í ísrael til að setjast að samninga- borðinu og hefja friðarviðræður við heimastjórn Palest- ínumanna á nýjan leik. Ennfremur hvatti Abbas herskáa Palestínumenn til að láta af eldflaugaárásum á Israel. Forsetinn sagði að slíkar árásir hefðu einungis í för með sér harð- ari aðgerðir Israelshers og auki lík- urnar á því að ísraelsmenn skilgreini landamæri sín einhliða án samráðs við heimastjórnina. Þetta kom fram í sjónvarpsávarpi Abbas til palest- ínsku þjóðarinnar í gær. Ávarpið var haldið á svokölluðum „degi hörmung- anna“ en þá minnast Palestínumenn stofnun Israelsríkis. Útiloka viðræður ísraelsstjórn útilokar allar viðræður við Palestínumenn á meðan að rík- isstjórn þeirra, undir stjórn Hamas- samtakanna, neiti að viðurkenna tilveruréttlsraelsríkisoglátiafofbeld- isaðgerðum. Mark Regev, talsmaður utanríkisráðuneytis Israels, ítrekaði þá afstöðu stjórnvalda eftir að ávarpi Ábbas var sjónvarpað að friðarvið- ræður væru tilgangslausar á meðan að Hamas-samtökin breyttu ekki um stefnu gagnvart ísraelsmönnum. Hann sagði ísraelsk stjórnvöld sækj- ast eftir friði við Palestínumenn en beinar viðræður við Abbas, án þátt- töku Hamas, væru marklausar. Frið- arviðræður velta því á afstöðu ríkis- stjórnar Hamas-samtakanna. ÍE og Illumina í samstarf mbl.is | Islensk erfðagreining og fyrirtækið Illumina greindu frá því í gær að fyrirtækin hafi tekið upp samstarf um að þróa og mark- aðssetja DNA-greiningarpróf fyrir algenga sjúkdóma. ÍE mun taka í notkun afkastamikla tækni Illum- ina til arfgerðagreininga. I fyrstu er stefnt að þróun prófa til að greina áhættu einstaklinga á að fá hjarta- áfall, sykursýki af gerð 2 og brjósta- krabbamein. Fyrirtækin munu deila þróunarkostnaði sem og hugs- anlegum tekjum af sölu greiningar- prófa. Kári Stefánsson, forstjóri ÍE, segir í fréttatilkynningu að með þessum samningi fyrirtækjanna geti ÍE enn aukið á forskot sitt við að nota niðurstöður erfðarannsókna til að þróa ný lyf. „Tækni Illumina mun auðvelda okkur meingenaleit- ina og möguleg sala á greiningar- prófum gæti einnig skapað okkur tekjur innan tiltölulega skamms tíma,“ segir Kári. íslensk börn borða óhollan mat Ávaxta- og grænmetisneysla ís- lenskra barna og unglinga er með því lægsta sem gerist í Evrópu sam- kvæmt skýrslu um niðurstöður rannsóknar um mataræði 9 til 15 ára barna. Auka þarf fræðslu um gildi hollrar fæðu að mati Ingu Þórs- dóttur, prófessors í næringarfræði við Háskóla Islands (HÍ). Skýrslan var kynnt á blaðamannfundi í gær. Lítil fiskneysla Samkvæmt skýrslunni borða íslensk ungmenni minna en helming af ráð- lögðum dagskammti af grænmeti og ávöxtum á degi hverjum. Þannig borða níu ára börn að meðaltali 36 grömm af grænmeti á dag en 15 ára unglingar um 45 grömm. Ráðlagður dagskammtur hljóðar upp á 200 grömm. Rannsóknin var unnin á vegum Rannsóknarstofu í næringarfræði en að henni stóðu Inga Þórsdóttir, prófessor, og Ingibjörg Gunnars- dóttir, dósent. I skýrslunni kemur fram að þrátt fyrir að vatnsdrykkja hafi stórauk- ist á síðastliðnum áratug hefur ekk- ert dregið úr neyslu gosdrykkja og öðrum sykruðum drykkjum. Að meðaltali drekkur hvert 9 ára gam- alt barn um 2,5 lítra af gosi og sætum svaladrykkjum í viku hverri. Þá sýnir skýrslan að börn og ung- lingar fá ekki nægilega mikið af D- vítamíni úr fæðu sinni og stór hluti á erfitt með að fullnægja joðþörf sinni m.a. vegna þess að fiskneysla hefur dregist saman. Að sögn Ingu Þórsdóttur, prófess- ors í næringarfræði við HÍ, benda niðurstöður rannsóknarinnar til þess að mataræði íslenskra barna fari versnandi. Hún telur mikil- vægt að auka fræðslu og umræðu í þjóðfélaginu um gildi hollrar fæðu. „Grunnþekking okkar á líkamanum, hollu mataræði og gildi hreyfingar er of lítil. Við þurfum að breyta því m.a. með aukinni fræðslu í skólum. Fólk getur aðeins varið sig gegn harðri markaðssetningu á óhollum mat með réttri vitneskju." Upplýsingor og skróning ó netinu: www.ulfljotsvatn.is - Bátasiglingar - Vatnaleikir - Sparkleikir - Ædol - Kassabílaakstur/- Fyrir stráka og stelpur 8-12 ára - skipt í hópa eftir aldri „Krassandi útilífsœvintýri - fjör og hópeflisandiT INNRITUN ER HAFIN - Opið virka daga kl. 10-16 - sími 550 9800 - sumarbudir@ulfljotsvatn.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.