blaðið - 16.05.2006, Blaðsíða 15

blaðið - 16.05.2006, Blaðsíða 15
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 2006 ÁLIT I 15 Hátæknisjúkrahús er framundan Fréttir herma að undirbúningur að byggingu há- tæknisjúkrahúss sé langt kominn. 200 sérfræðingar og embættismenn hafa að undan- ., fornu starfað í ............. 15 nefndum að gerð áætlana um einstaka þætti væntanlegs há- tæknisjúkrahúss. Verkið er flókið og vandasamt er að flétta saman allar helstu þarfir og nauðsynlega aðstöðu fyrir allar sérfræðideildir lækninga, hjúkrunar og umönn- unar. Þess vegna hefur verið hljótt um starfið til að minnka líkur á misskilningi og tortryggni varðandi skipulag og mat á innbyrðis mikil- vægi hvers sviðs fyrir sig. Einstakir sérfræðingar vita ekki enn hvernig endanlegt fyrirkomulag verður fyrir þeirra eigin svið og þeir átta sig sumir ekki á því hvað felst í hugtak- inu hátæknisjúkrahús. Jafnvel sér- hæft starfsfólk, sem beitir hátækni- búnaði eins og segulómun, sem byggist á tæknibúnaði sem vegur 30 tonn og lítur út eins og risavaxin 99........................... Vélmenni sem líkist gaff- allyftara sækir og flytur bretti með varningi á, fram og til baka og upp og niður. íhátækni- sjúkrahúsinu verða notuð vélmenni á sama hátt til að sækja sjúk- linga í rúmum sínum og flytja til þeirrar sérfræðideildar þar sem aðgerðir eða meðferðir eru framkvæmdar. fallbyssa fyrir fallstykki, fær ekki al- veg séð hvernig fyrirkomulag verður, en fólki er ráðlagt að halda ró sinni því tillit verður tekið til allra þarfa og sviða. Mikið álag hefur verið á starfs- fólki Landspítala og sumt þeirra hefur ályktað um að meiri peninga þurfi til að fjölga fólki til þess að unnt sé að sinna fólki sómasamlega; ekkert hátæknisjúkrahús verði til ef grunnþjónustan er vanrækt. Því fólki finnst skjóta skökku við að ráðstafa hundruðum milljóna til nefndarstarfa og vanrækja á sama tíma grundvöllinn sjálfan, hjúkrun og umönnun sjúklinga. Talsmenn framkvæmdastjóra spítalans hafa svarað því til að engin ástæða sé til að óttast skort á aðstöðu og starfs- fólki í þeim hátæknispítala, sem senn verður byrjað að byggja. Helstu þáttaskil í undirbúningi urðu með þeirri snjöllu hugmynd að helstu sérdeildir verði hver á sínum stað eins og áður, en sjúklingar fluttir til eftir þörfum í rúmum sínum. Þessa hugmynd fékk hinn þekkti bílaframleiðandi Ford í byrjun síðustu aldar þegar honum þótti einsýnt, að hagkvæmara væri að nota færibönd og færa bíla í smíðum til starfsfólksins en ekki öfugt. En bílaframleiðslan var öll á einni hæð, en í hátæknispítalanum verður að hafa margra hæða bygg- ingar vegna dýrra byggingarlóða og til hagræðingar. Þess vegna er unnt að samþætta færibandareynsluna við tæknina frá nýtískulegum birgða- stöðvum fyrir matvæli og almennan iðnvarning, sem nota vélmenni til að flytja til varning til geymslu eða sækja varning í geymslur, sem eru margar hæðir. Vélmenni sem líkist gaffallyftara sækir og flytur bretti inu verða notuð vélmenni á sama hátt til að sækja sjúklinga í rúmum sínum og flytja til þeirrar sérfræði- deildar, þar sem aðgerðir eða með- ferðir eru framkvæmdar. Hið sama á við um hjúkrunar- og umönnun- arþjónustu, sjúklingar eru fluttir til þeirra staða, sem hafa að geyma viðkomandi aðstöðu og að lokum er komið við á þvottadeild. Nýtísku tölvubúnaður sér um alla flutninga og á reiknideild spítalans er reiknuð út bestun í tilfærslum sjúklinga með hliðsjón af nauðsynlegum að- gerðum og meðferðum í tímaein- ingum. Með þessari tækni verða engar deilur um þörf fyrir starfsfólk, en miðtölva stjórndeildar reiknar út nauðsynlegan fjölda starfseininga og sér um mönnun allra deilda veit- ingu meðferðareininga. Grunnhugmyndin um sam- tvinnun færibandatækninnar og tölvustýrðar geymslutækni olli straumhvörfum i áætluninni. For- maðurstjórnaryfirbygginganefndar hátæknisjúkrahússins, Alfreð Þor- steinsson, fékk þessa hugmynd í tengslum við samskurðaáætlunum Orkuveitu Reykjavíkur, en með því að flytja allar veitur í sömu skurði, kalt vatn, varmaorku, rafmagn, tölvu- gagnaboð og ljósleiðara, má ná fram byltingu í sparnaði og verkskipulagi, en áætlanir Orkuveitunnar gera ráð fyrir því að samskurðaáætlanirnar nái um land allt, eins og Bónus og Síminn til samans. f ýmsum lágreistum byggingum inni á milli stórra bygginga er gert ráð fyrir göngudeildum, en þær eru á einni hæð. Sjúklingar koma þá inn á einum stað og ganga inn í færan- lega klefa með ýmsum þægindum. Klefarnir eru svo dregnir í gegn um deildirnar til þeirra staða, þar sem sjúklingar fá sína þjónustu. Með þessu leggjast af biðstofur. Full ástæða er til að vera bjart- sýnn og að nýi hátæknispítalinn valdi byltingu í heilsufarsmálum þjóðarinnar. Einnig er líklegt að hugmyndin geti jafnvel verið einka- leyfishæf. Með útrás fslendinga á mörgum öðrum sviðum má búast við því að hátæknisjúkrahús bætist við lyfjamálin, en með samþættingu hátæknisjúkarahúss og lyfjaútrásar má búast við mikilli hagræðingu og arði. Búist er við að haldinn verði fréttamannafundur um málið á allra næstu dögum að sögn Alfreðs Þorsteinssonar. Jónas Bjarnason efnaverkfrceðingur 3. TBL , MAi 2006 VERÐ 990 KR. •'e PÓRA TÓMAS ÚR KASTUÓSINU EIGNAÐIST LITLA KÖTLU ÞREMUR VIKUM FYRIRTÍMANN W§) * 4 i í # m 't 4 r/i - -4 / SSss iinmniKifn Sigmar, kærastinn minn Kiippti á nafiastrenginn og svo var hún send aöeins inn á vökudeiid þ.ví hún var svolítið eftir sig eftir þessa hröðu fæðingu.” Þóra i Kastljósinu talar um fæðinguna og litla krílið. tactyst Við veitum þér frábæran 45% afslátt af fyrstu þremurtölublöðunum ef þú gerist áskrifandi i eitt ár. Svo færðu 20% afslátt af næstu tölublöðunum ef áskrift er greidd með greiðslukorti og 10% 2Í.i>iiibnG .www • aiíliibnA &Ig2>í68

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.