blaðið - 16.05.2006, Qupperneq 2

blaðið - 16.05.2006, Qupperneq 2
2IFRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 2006 bla6iö blaöiö Hádegismóum 2,110 Reykjavík Sími: 510 3700-www.vbl.is FRÉTTASÍMI: 510 3799 netfang: frettir@bladid.net AUGLÝSINGADEILD: 510 3744 netfang: auglysingar@bladid.net Viðbúnaðar- stigi vegna fuglaflensu breytt Viðbúnaður vegna fuglaflensu hefur verið færður úr áhættu- stigi tvö í áhættustig eitt. Þetta kemur fram í fréttatillkynningu sem Landbúnaðarstofnun sendi frá sér í gær. Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra, hefur að fengnum tillögum frá Landbún- aðarstofnun ákveðið að aflétta ráðstöfunum um tímabundnar varnaðaraðgerðir til að fyrir- byggja að fuglaflensa berist í ali- fugla hér á landi. Tillögur stofnunarinnar byggja á því að nú liggur fyrir að engin fuglaflensa hefur greinst í yfir 240 sýnum sem tekin hafa verið úr villtum fuglum hér á landi. Niðurstöður úr villtum fuglum á Bretlandseyjum hafa heldur ekki gefið tilefni til að ætla að fuglaflensa hafi náð þar fótfestu. Stofnunin mun hins vegar halda áfram sýnatökum, greiningum og öðrum viðeig- andi ráðstöfunum til að fylgjast með þróun mála varðandi út- breiðslu fuglaflensu. „Bæjarstjórinn hefur vondan málstað að verja" Flosi Eiríksson, bæjarfulltrúi, segir að Gunnar Birgisson, bæjarstjóri, hafi staðfest að hann hafi gerst brotlegur við stjórnsýslulög. Gunnar sat fundi þar sem uppkaupsmál voru rædd. Flosi Eiríksson, bæjarfulltrúi Sam- fylkingarinnar í Kópavogi, segir orð Gunnars Birgissonar í sinn garð sýna, að bæjarstjórinn hafi vondan málstað að verja. Gunnar sagði að grein Flosa í Morgunblaðinu þar sem bent var á að Gunnar hefði mögu- lega gerst brotlegur við stjórnsýslu- lög í Gustsmálinu svokallaða, væri „upplogin lygaþvæla“. Gunnar sagð- ist ennfremur ekkert hafa komið að undirbúningi og úrvinnslu málsins. Flosi segir hins vegar ljóst, að með því að sitja fundi þar sem fjallað var um það hvort bærinn ætti að ganga inn í samning sefn Hestamannafé- lagið Gustur hafði gert við fjárfest- ingafélagið KGR ehf. hafi Gunnar gerst brotlegur við stjórnsýslulögin. Sat í nefnd sem fjallaði um málið „Menn sem tala svona um þá sem benda á það sem betur má fara í þeirra stjórnsýslu ættu að fá sér ein- hverja aðra vinnu,“ segir Flosi þegar hann er inntur álits á orðum Gunn- ars. „Gunnar staðfestir aftur á móti að hann hafi gerst brotlegur við stjórnsýslulögin,“ segir Flosi. „Hann getur ekki sagt að hann hafi ekki komið að undirbúningi málsins þar sem hann sat með mér í oddvita- nefndinni.“ Þegar erindi Gusts barst bæjarráði var ákveðið að nefnd odd- vita stjórnmálaflokkana myndi fara yfir það. „Við hittumst tvívegis þar sem við fórum yfir gögn málsins og á grund- velli þeirra kom síðan fram tillaga í bæjarráði um að bærinn myndi ganga inn í þennan samning á milli Gusts og KGR ehf.“ Með þessari að- komu segir Flosi að Gunnar hafi gerst brotlegur við stjórnsýslulög. Vissi ekki af tenglunum Flosi segist ekki hafa vitað af því þegar fundir oddvitanna voru 20% XFÍLXITUR. XF ÖLLUM 8XRJMXFXTNXÐI T!L 20. MXÍ CARO Ásnum - Hraunbæ 119 - Síml 567 7776 Opiö virka daga kl. 1100-18:00 Opiö á laugardögum '^gíÍnmeti sérmerkt þér! haldnir, að kona Gunnars ætti hlut í hesthúsi á svæðinu. Hann vissi ekki heldur að verðandi oddviti framsókn- armanna væri líka vanhæfur. „Fyrri fundinn um þessi mál sátum við þrír, ég, Gunnar og Ómar Stefáns- son, verðandi oddviti Framsóknar- flokksins. Á fundum var ég sem sagt sá eini sem átti engra persónulegra hagsmuna að gæta í málinu. Það var svo ekki fyrr en sama dag og bæjarráðsfundurinn var haldinn að mér bárust upplýsingar um að þeir Flosi Eirfksson Gunnar og Ómar tengdust fólki sem ætti hesthús á svæðinu og væru því vanhæfir í málinu.“ Flosi segir að þegar málið var tekið fyrir á fundinum hafi hann spurt Gunnar hvort hann væri vanhæfur. „Gunnar segist vilja fá álit bæjarlög- manns á því, sem hann veitti og þá vék Gunnar af fundi.“ Flosi bendir á að það sé frumskylda sem sérstak- lega er kveðið á um í sveitarstjórn- arlögum að sveitarstjórnarmaður skuli sjálfur vekja athygli á því ef um mögulegt vanhæfi geti verið að ræða. „Það hefði því verið í samræmi við eðlilega stjórnsýsluhætti að Gunnar hefði upplýst um þessi tengsl strax og Ómar Stefánsson í raun líka.“ Vondur málstaður „Mér sýnist þessi „hlýju“ orð í minn garð sýna það að hann hafi vondan málstað að verja,“ segir Flosi. Að- spurður hvort hann hyggist kæra málsmeðferðina segir hann svo ekki vera. „Við munum ekki hafa frum- kvæði að því að kæra. Það getur einhver hestamaður eða ibúi gert. Þeir geta kært málsmeðferð sveitar- stjórnarinnar og Gunnar hefur gefið færi á því í þessu máli. Ég vil fyrst og fremst að Kópavogsbúar kveði upp dóm yfir þessum landamerkja- kaupum öllum og öðrum verkum Gunnars Birgissonar í kosningunum sem framundan eru.“ Mun hafa áhrif á gengi flokksins í Árborg Bjarni Harðarson spáir því að mál Eyþórs Arnalds verði til þess að meirihlutinn í Árborg haldi. Prófessor í stjórnmálafræði kannast ekki við sambærilegt mál hérlendis. Ritstjórar héraðsfréttablaða á Suður- landi telja að ölvunarakstur Eyþórs Arnalds muni koma til með að hafa áhrif á fylgi Sjálfstæðisflokksins í komandi kosningum. Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmála- fræði, segir að mál Eyþórs Arnalds eigi sér ekki fordæmi hér á landi. Man ekki eftir svipuðu máli hérlendis Ólafur Þ. Harðarson, prófessor, segist ekki muna eftir neinum sambærilegum dæmum við mál Eyþórs hérlendis. „Hins vegar lenti Hans Engell, leiðtogi danskra íhalds- manna, í því fyrir nokkrum árum að aka drukkinn heim úr vinnunni og keyra á stólpa þar sem verið var að lagfæra hraðbraut,“ segir Ólafur. „Hann varð að segja af sér sem leið- togi og hætti í pólitík einhverjum árum seinna.“ Bjarni Harðarson, ritstjóri Sunn- lenska fréttablaðsins, segir ljóst að málið muni hafa áhrif á komandi kosningar. „Ég held að allir hljóti að gera sér grein fyrir því að þetta muni hafa áhrif á fylgi Sjálfstæð- isflokksins,“ segir Bjarni. Hann Eyþór Arnalds kvaðst þó ekki gera sér grein fyrir hversu mikil þessi áhrif verða. „Við skulum athuga það að skoðanakann- anir hafa verið að spá Sjálfstæðis- flokknum fimm mönnum í Árborg.“ Meirihlutinn heldur „Ég tel nú lang sennilegast úr þessu að flokkurinn fái sitt venjulega fylgi hér í bæ og verði með þetta þrjá bæj- arfulltrúa,“ segir Bjarni. Hann telur að núverandi meirihluti, sem spáð hefur verið falli, haldi nú velli. „Það þarf enga mannvitsbrekku til þess að sjá að þetta muni sennilega verða til þess að meirihluti Samfylkingar og Framsóknarflokks í Árborg heldur velli, en líkurnar á því voru orðnar afskaplega litlar.“ Bjarni segist finna ótvírætt fyriF því í Árborg að íbú- arnir finni $1 með Eyþóri í þessu máli. „Ég tefað með viðbrögðum sínum hafi Éýþór í raun gert það sem hann gat gert í stöðunni. Það er ekkert hægt að gera meira,“ segir Bjarni. Þóra Þórarinsdóttir, ritstjóri Gluggans sem dreift er um Suð- urland, tekur í svipaðan streng og Bjarni. „Ég held að það sé of snemmt að segja til um hvaða áhrif þetta mál mun hafa á kosningarnar,“ segir hún. „En ég held að í pólitík al- mennt séð hafi öll áföll áhrif á fylgi. Það er síðan spurning um hve mikil þau áhrif verða, en það eru enn tvær vikur til kosninga,“ segir Þóra. Ö HeiðskírtíJ tittskýjaðÍA Skýiað Alskýjað'^r-1-* Rlgnlng,lltllsháttar^S^RlgnlnB'^-r*Súld & SnjókomaJ'---• Slydda<^i> Snjóélsfe-rrSkúr ■JiU/jJli* Algarve 24 Amsterdam 16 Barcelona 26 Berlin 21 Chicago 09 Dublin 15 Frankfurt 20 Glasgow 14 Hamborg 16 Helsinki 14 Kaupmannahöfn 12 London 18 Madrid 30 Maliorka 24 Montreal 12 New York 14 Orlando 20 Osló 10 París 19 Stokkhólmur 12 Vín 22 Þórshöfn 06 Veðurhorfur í dag kl: 15.00 Veðursíminn 902 0600 Byggt á upplýsingum frá Veöurstofu (slands

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.