blaðið - 16.05.2006, Síða 10
10 I FRÉTTlfc
ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 2006 blaöiö
Reuters
Ófremdarástand í Sao Paulo
Lögreglumenn standa fyrir framan einn af fjörutíu og þremur almenningsvögnum sem
kveikt var í aðfararnótt mánudags í brasilísku borginni Sao Paulo. Óeirðaralda geysar í
borginni en á föstudag hófu eiturlyfjagengi í borginni skipulagðar árásir gegn lögreglu
og öryggissveitum stjórnvalda. Árásirnar stóðu yfir aila helgina og er talið að hátt í
sjötíu manns hafi fallið í valinn.
Bilun í drifbúnaöi
Sendir þjóðvarðliðið
að landamærunum
George Bush vill auka gæslu á landamærum Mexíkó og Banda-
ríkjanna, og hyggst einnig bæta réttarstöðu ólöglegra innflytjenda.
George Bush, forseta Bandaríkjanna, er margt til lista lagt. Hann gróðursetti tré við íbúð
ástralska sendiherrans í Washington DC á sunnudag
Áætlað er að stærri björgunarþyrla
Landhelgisgæslunnar, TF-LIF, verði
orðin flughæf á morgun, en drif-
búnaður hennar bilaði síðastliðinn
föstudag.
Það þýðir að síðustu daga hefur
hvorug þyrla gæslunnar verið til
taks, því minni þyrlan - TF-SIF
hefur verið í endurbótum í Staven-
ger í Noregi frá því fyrir páska. Hún
er væntanleg til landsins í næstu
viku.
Frá þessu er sagt á heimsíðu
gæslunnar og eftirfarandi sagt um
ástandið:
„Viðhald á þyrlum er fyrirfram
ákveðið að jafnaði út frá flugtímum
og kröfum framleiðanda sem setur
vissar öryggiskröfur. Þessar örygg-
iskröfur eiga að draga úr hættu á
slysum. Hugmyndin er að reglu-
legt viðhald samkvæmt fyrirfram
ákveðnum stöðlum dragi úr líkum á
að hlutirnir bili en þó er aldrei hægt
að koma alveg í veg fyrir bilanir.
Vegna þessa hefur Landhelgis-
gæslan notið aðstoðar þyrlu danska
sjóhersins við leit um helgina en
Drifbúnaður stærri þyrlu Landhelgisgæsl-
unnar bilaði fyrir helgi.
Landhelgisgæslan er með gagn-
kvæman samning við danska sjóher-
inn um aðstoð við leit og björgun.“
Embættismenn bandarísku ríkis-
stjórnarinnar skýrðu frá því í gær
að George Bush, forseti, muni skipa
nokkur þúsund þjóðvarðliðum að
gæta landamæra Bandaríkjanna og
Mexíkó.
Forsetinn ávarpaði bandarísku
þjóðina í nótt en í ræðu sinni útskýrði
hann áætlanir sínar og stefnu varð-
andi málefni innflytjenda.
Þau mál hafa verið í brennidepli í
bandarískum stjórnmálum undan-
farið og er eitt þeirra mála sem harð-
ast er tekist á um meðal repúblikana
og demókrata í aðdraganda þingkosn-
inga sem haldnar verða næstkomandi
nóvember. Deilurnar snúast meðal
annars um hver sé staða ólöglegra inn-
flytjenda sem nú þegar búa og starfa í
Bandaríkjunum.
Áætlun forsetans um að láta þjóð-
varðliðið aðstoða við landamæragæslu
er umdeild meðal flokksfélaga hans
í Repúblikanaflokknum og meðal
demókrata. Leiðtogar repúblikana á
þingi hafa sagt að landamæragæsla
sé ekki innan verksviðs þjóðvarðliðs-
ins. Demókratar hafa einnig bent á
að þjóðvarðliðar hafi nú þegar tekið
að sér verkefni í Irak og óraunhæft sé |
að ætlast til að þeir takl einnig að sér =
landamæragæslu.
Hátt í 12 milljón ólöglegir
innflytjendur
Talið er að hátt í tólf milljónir ólög-
legra innflytjenda dvelji nú í Banda-
ríkjunum. Hátt í 40% þeirra hafa
dvalið í landinu í minna en fimm ár
og af þeim eiga 75% rætur sínar að
rekja til Suður-Ameríku. Þetta þýðir
að flestir ólöglegir innflytjendur
koma til landsins gegnum landamæri
Bandaríkjanna og Mexíkó.
Bandaríska þingið hefur unnið að
því að brey ta lögum um innfly tjendur.
Fulltrúadeildin samþykkti í fyrra lög
sem þyngja refsingar gegn ólöglegum
innflytjendum og veita stjórnvöldum
svigrúm til þess að auka gæslu við
landamæri. Öldungadeildin hefur
nú til meðferðar nýtt lagafrumvarp.
Verði það samþykkt munu ólöglegir
innflytjendur sem eru nú þegar í
Bandaríkjunum fá tækifæri til þess
að sækja um ríkisborgararétt. Að
auki eru í hinu nýja frumvarpi heim-
ildir fyrir tímabundið atvinnuleyfi
útlendinga rýmkaðar. George Bush
styður það frumvarp en margir repú-
blikanar eru því hins vegar andstæðir.
Þeir telja að frumvarpið umbuni þeim
sem brotið hafa lög með því að koma
til Bandaríkjanna í heimildarleysi.
Stjórnmálaskýrendur segja að aukin
landamæragæsla eigi að tryggja stuðn-
ing repúblikana við frumvarp forset-
ans um bætta réttarstöðu ólöglegra
innflytjenda.
Óttast„hervæðingu"
landamæragæslu
Vincente Fox, forseti Mexíkó, hefur
lýst áhyggjum sínum yfir því að þjóð-
varðlið Bandaríkjanna verði kallað
til landamæragæslu. Forsetinn sendi
frá sér yfirlýsingu á dögunum þar
sem hann opinberaði ótta sinn um að
með þessu væru Bandaríkin að taka
fyrstu skrefin í átt til þess að „her-
væða landamæragæsluná'. George
Bush talaði við Fox í síma á sunnudag
og ítrekaði að þetta hlutverkþjóðvarð-
liðsins væri aðeins tímabundið og að
bandarísk stjórnvöld litu á Mexíkó
sem „vinaþjóð".
af bensíni fylgja öllum notuðum bílum
Opið: Alla virka daga kl. 9:00 -18:00 og laugadaga kl. 12:00 -16:00,
NOTAÐIR BILAR
50.000 kr. jafngilda 403,5 lítrum af 95 oktan bensfni hjá Ego miðaó vi<5 verðlag 11.05.06.
Nú fylgir 50.000 króna bensínkort frá Ego með hverjum notuðum bíl frá Ingvari Helgasyni
Fjárfestu í góðum bíl og keyrðu frítt fyrstu 403 lítrana!*
Ingvar Helgason