blaðið - 16.05.2006, Side 14
blaði
Útgáfufélag: Ár og dagur ehf.
Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson.
Ritstjóri: Asgeir Sverrisson.
Fréttastjórar: Aðalbjörn Sigurðsson og Erna Kaaber.
SKOÐANASKIPTI
Svandís Svavarsdóttir, oddviti Vinstrihreyfingarinnar - græns fram-
boðs, á hrós skilið fyrir það pólitíska hugrekki sem hún hefur sýnt
í baráttunni fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík. Svandís
boðar nú að endurmeta beri þá ákvörðun að staðsetja nýtt hátæknisjúkra-
hús við Hringbraut í Reykjavík. Ákvörðun liggur fyrir í því efni og hreyf-
ingin með langa nafninu lagði blessun sína yfir hana á sínum tíma. Nú segir
leiðtoginn nýi í höfuðborginni að sú ákvörðun hafi ekki verið nógsamlega
ígrunduð. Það mat Svandísar Svavarsdóttur er rétt.
Á Islandi hefur löngum verið litið svo á að fátt sé lítilmótlegra í mannlífinu
en að vera staðin(n) að því að skipta um skoðun. Þeir fáu stjórnmálamenn
sem hafa hugrekki til að endurskoða afstöðu sína sæta oftar en ekki árásum
og verða aðhlátursefni. Slík framganga þykir til marks um vingulshátt, stað-
festuskort og yfirtak óþjóðlega og þar af leiðandi lítilmótlega hneigð til að
líkja eftir ráðandi eðlisþáttum vindhanans. Þegar verst lætur eru þeir hinir
sömu jafnvel vændir um framsóknarmennsku.
Fyrirlitning íslendinga í garð þeirra sem staðnir eru að því að hafa skipt
um skoðun er þeim mun undarlegri þegar horft er til þess að einn mesti
kappi íslandssögunnar, sjálfur Gunnar á Hlíðarenda, gerði einmitt þetta.
Skjalfest er að Gunnar komst að þeirri niðurstöðu að blessuð Hlíðin væri
fögur og hann gæti ekki, þvert á fyrri ákvörðun, farið. Það mat þessa vinguls
var næstum því ábyggilega rangt a.m.k. ef horft er til hagsmuna téðs Gunn-
ars. Allir vita hvernig fór fyrir honum.
Að vísu stendur hin klassíska hetja bókmenntanna jafnan frammi fyrir
tveimur vondum kostum. Og hún er dæmd til að velja þann verri. En þannig
er því tæpast farið um það ágæta fólk sem nú líður um völlu íslenskra
stjórnmála.
Vingulsháttur er ekki af hinu góða í stjórnmálum, rétt er það. En stjórn-
málamenn verða að vera þess megnugir að endurskoða ákvarðanir og rök
fyrir þeim. Það krefst hugrekkis en er þó fyrst og fremst til merkis um að
ljúfir vindar og heilnæmir leiki um grunnfána andans.
Nú hefur Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokks-
ins, tekið efnislega undir efasemdir Svandísar Svavarsdóttur um staðsetn-
ingu nýja ofur-sjúkrahússins. Því ber að fagna.
Flestir þeirra sem að Hringbrautinni nýju komu viðurkenna nú að mikil
mistök hafi verið gerð við lagningu hennar. Fegnir vildu margir nú vera í
sporum Gunnars og fá snúið við. Enn er það ekki um seinan í tilfelli spítala-
ferlíkisins; hlutskipti Gunnars á Hlíðarenda bíður ekki stjórnmálaleiðtoga í
Reykjavík.
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík.
Aðalsími: 510 3700. Símbréf á fréttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510.3711.
Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is.
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur.
NÝJASTA BÓK ÓLAFS TEITSÍ
1890 kr.heimsend
Bóksala Andríkis • www.andriki.is
14 I ÁLIT
ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 2006 blaöiö
Tónlistin umlykur allt
Stundum finnst manni að lestrar-
og reikningsfólkið ráði of miklu
í samfélaginu og listafólk of litlu.
Lestrar- og reikningsfólkið býr til
námskrár og próf og ákveður hvað
er mikilvægt í menntun barna og
ungmenna. Listafólkið er kallað til
á tyllidögum til að skapa stemmn-
ingu, hátíðleika eða kalla fram hug-
hrif. Skoðun okkar vinstri grænna
er hins vegar sú að hvort tveggja sé
mikilvægt.
Allt of lítið fer fyrir list, sköpun
og spuna í samfélaginu og of mikið
fyrir mælanlegum gildum, texta og
tölum. Áralöng hefð hefur bundið
íslenska skólakerfið í þær viðjar að
list- og verkgreinar standa höllum
fæti og eru enn í stöðu „aukatímá'
líkt og var lengst af síðustu aldar.
Hugmyndafræði, nálgun og aðferðir
lista og sköpunar þarf að innleiða í
samfélagið allt. Ekki bara í menntun
á öllum stigum heldur lika í velferð-
arþjónustuna, skipulagsmálin og
stjórnsýsluna. Þannig hugsum við
vinstri græn um tónlistina, hlutverk
hennar og mikilvægi.
Tónlistarskólar skipa griðarlega
mikilvægan sess í menntun í land-
inu og að sjálfsögðu einnig fyrir
menninguna víða um land. 1 land-
inu er mikill fjöldi kóra, lúðrasveita,
hljómsveita og annars konar tónlist-
arhópa af öllu tagi. Ljóst er að tónlist-
arnám, bæði í almenna skólanum
og í sérhæfðum skólum leggur þann
grunn sem skapar forsendur slíkrar
þátttöku. Hvort tveggja er mikil-
vægur þáttur í þeim vef sem skapar
menningarþjóð.
Áhersluatriði vinstri grænna varð-
andi tónlist í komandi borgarstjórn-
arkosningum í Reykjavík felast
einkum í þrennu:
a. Við viljum efla hlut tónmenntar
í grunnskólanum en einnig að
grunnskólar og tónlistarskólar finni
sér nýjar leiðir til samstarfs. Við
viljum að starf skólahljómsveita og
kóra standi öllum börnum á grunn-
skólaaldri til boða. Ráða þarf fleiri
tónmenntakennara í grunnskólana
og gera átak í menntun þeirra. Við
Þ- i
P
4*1
Viðhorf
Svandís Svavarsdóttir
þurfum öflugri og fjölbreyttari
kennsluhætti á yngsta stigi, skóla-
kóra fyrir bæði kyn á miðstigi á
skólatíma og skapandi tónlistarstarf
með nemendum á unglingastigi.
Allt þetta getur gert grunnskólann
að freistandi valkosti fyrir metnaðar-
fulla og menntaða tónlistar- eða tón-
menntakennara. En mikilvægast af
öllu er þó að gefa öllum börnum og
ungmennum tilefni og tækifæri til
að fá aðgang að öllum þeim undrum
ogþroskamöguleikum sem tónlistin
hefur upp á að bjóða.
b. Við viljum efla alþýðufræðslu
um tónlist, efla þátttöku almenn-
ings í tónlistarviðburðum og styðja
við framtak almennings í tónlist-
ariðkun, s.s. unglingahljómsveitir,
kórastarf og sönghópa.
c. Loks þarf að skýra verulega
samfélagslegt hlutverk tónlistar-
skólanna, draga úr hlut nemenda í
námsgjöldum og auka hlut hins op-
inbera. Að lögin um fjárhagslegan
stuðning við tónlistarskóla verði
virt og það tryggt að kennslukostn-
aður sé að fullu greiddur af ríki og
sveitarfélögum. Þá viljum við skoða
gaumgæfilega möguleikann á að
semja við ríkisvaldið um að það
fjármagni framhaldsstig tónlist-
arskólanna. Fella þarf niður allar
takmarkanir sem lúta að aldri nem-
enda. Takmarkað aðgengi að tón-
listarmenntun á grundvelli búsetu
er óásættanlegt og þann hnút þarf
að leysa án þess að það komi niður
á þeim nemendum sem nú stunda
tónlistarnám. Kerfið þarf að vera
skilvirkt og byggja á virðingu fyrir
tónlistarmenntun og hlutverki tón-
listar í samfélaginu.
Menningarsamfélag þarf að búa
vel að tónlist, í grunnskólum, meðal
almennings og í tónlistarskólum.
Höfuðborg sem vill kalla sig menn-
ingarborg á að vera í fararbroddi
í því að skapa slíka sýn og fylgja
henni eftir af metnaði og stórhug.
Höfundur er 11. sœti Vinstrihreyf-
ingarinnar - grænsframboðs í
Reykjayík.
Klippt & skoríð
klipptogskorid@vbl.is
Vinstrigrænum fannst ekkert fyndið að
lesa athugasemdir klippara í gær um
að fyrirætlanir umflugvöll á Hólmsheiði
kynnu að ógna vatnsverndarsvæðum Reykvík-
inga. Röktu þeir það lóðbeint til spunameistara
framsóknar, sem þeir segja skella skollaeyrum
við áliti sérfræðinga um að hugsanlegt flug-
vallarstæði á Hólmsheiði væri utan „fjarsvæðis
vatnsverndar", en einmitt
á þeirri forsendu hefur
Árni Þór Sigurðsson lagt
svo mikið kapp á að
Hólmsheiðin sá vænlegri
kostur en Löngusker,
Vatnsmýri eða Miðnes-
heiði. En vinstrigrænir vilja ekki gera of mikið
úr karpi þessu og segja málið faglegt fremur en
tali við Blaðið fyrir helgi, að nauðsynlegt væri
að kosningar væru nýttar til þess að draga fram
veigamikil ágreiningsefni og gera út um þau.
áum blandast hugur um að ölvuna-
rakstur Eyþórs
Arnalds kann
að reynast honum afdrifa-
ríkur, en einnig velta menn
því mjög fyrir sig hvort
afleiðingarnar kunni að
reynast víðtækari. Flestir
búast við því að málið muni draga úr fylgi við
Sjálfstæðisflokkinn í Árborg, en stjórnmálaspek-
úlantar telja að það kunni einnig að draga úrfylgi
flokksins í öðrum sveitarfélögum. Kosningabar-
áttan hafi víðast hvar verið f dauflegra lagi til
þessa, en þarna sé komið mál, sem lengi megi
á að taka fram, að þeir vilji alls ekki gera sér pól-
itískan mat úr hinum persónulega harmleik. Slík
umræða fyrir landsþekktan mann geti hæglega
skaðað sjálfstæðismenn víðar.
umir sjálfstæðismenn telja raunar
að Geir H.
Haarde, for-
maður Sjálfstæðisflokks-
ins, hafi gert illt verra
með þeim ummælum
sínum, að ákvörðun
Eyþórs, um að draga
sig í hié í kosningabar-
áttunni, eigi að „sýna
að Sjálfstæðisflokkurinn [víki] sér ekki undan
ábyrgð." Með þessu hafi hann orðið til þess að
draga fram pólitlskan vinkil í máli, sem engum
öðrum hafði dottið í hug að vörðuðu annað en
þéi'iilfÚEj/þðri.11"^’5'"1 1 'H
pólitískt. Það tónar þó frekar ilja við þá afstöðu, smjatta á, þó pólitískir andstæðingar Eyþórs og
semSvandísSvaýarSdÓrtH'Kýn/iWl^árn- ^járfstéáðiíflbKk'sinVÁfunjsjlÍT^t'éÍlifþreytast