blaðið - 16.05.2006, Page 16
16 I HEILSA
ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 2006 blaAÍÖ
/
BYLGJA
SVARAR SPURNINGUM
UMÓHEFÐBUNDNAR
LÆKNINGAR
_______________1..........
Inntaka á
remedíum
Það eru mismunandi leiðir til að
taka inn hómópataremedíur en
þumalputtareglan er að:
• Ef einhver fær kúlu á höfuðið
(slasast) og er svo heppinn að hafa
Arniku á sér þá má taka Arniku inn á
10-30 mín. fresti í 2-6 skipti. Láta svo
líða lengur á milli.
Þær aðstæður sem kalla á að hægt er
að taka remedíur ört inn er þegar við-
komandi fær bráðaeinkenni t.d. við
háan hita, slys, slæman höfuðverk
o.s.frv.
• Gott er að taka inn 3-4 töflur af 1
remedíu yfir daginn með jöfnu milli-
bili í 2-3 daga þegar einhver finnur að
hann er að fá flensu, kvef, höfuðverk,
bakverk eða eitthvað annað sem er
ekki bráða ástand.
• Þegar verið er að taka inn re-
medíu að staðaldri vegna langvar-
andi ástands þá koma oft upp kvillar
sem kalla á aðrar remedíur. Þá er gott
að sleppa að taka inn remedíuna sem
er fyrir langvarandi kvillanum og
fara frekar í remedíu sem á við nýja
kvillann.
• Taka á inn remedíur eftir inn-
töku lyfja en ekki fyrir.
• Taka á inn remedíu 5-10 mín.
eftir mat.
• Til þess að remedían virki sem
best þarf hún að koma við slímhúð.
Setja undir tunguna og láta hana
bráðna þar.
Það er lang best að taka inn eina töflu
í einu því þó svo að tekinn sé inn allur
pakkinn þá hefur það sömu virkni
og ein tafla. Aftur á móti er meiri
virkni ef tekin er önnur remedía 5
mfn. seinna og þá eina töflu. Hómó-
patía er smáskammta-meðhöndlun
og gengur út á að gefa sem minnsta
hugsanlega skammt hverju sinni.
Varúð! Ef einkenni n eru mjög alvar-
leg eða þrálát þá er vissara að tala
við lækni.
Hvernig sérðu að remedían
erað virka:
• Einkennin hverfa
• Þegar batamerki eru sýnileg þá
má láta líða lengur á milli þess sem
þú tekur inn næstu töflu, þ.e. ef upp-
haflega liðu 10 mín. á milli þess að
það þurfti að taka inn remedíu út af
verkjum geta síðan farið að líða 30
mín. og síðan lengur og lengur.
• Ef það fer að styttast á milli
þess að verkur kemur aftur þá er re-
medían ekki að virka og þarf því að
finna aðra viðeigandi remedíu vegna
ástandsins.
www.homopatar.is
homopati@hive.is
Aðstæður sem remedíur
koma að góðum notum:
Magaverkur Hósti Hiti
Mígreni Hálsbólga Brjóstagjöf
Höfuðverkur Kvef Sótthiti
Kvfði Krampi Sorg
Niðurgangur Ablástur Svefnleysi
Tannverkur Flensa Blöðrubólga
Tiðarverkur Hlustaverkur Streita
Uppköst Gigt Þreyta
Ég nota Sterimar, það hjálpar
-kvef
- ofnæmi
- eyrnabólga
- ennis og
kinnhoiusýking
STÉRIMAR'
Phy»iolugical
Sea Water
Microipray
Fæst í apótekum
Persónuleikaraskanir geta
verið alvarlegt vandamál
^Einstakar búð- og bárvörur unnar ú
ólífuolíu beint frá cgrikklandi
Qlivia
<því þú átt það besta skilið
'Vörurnar fást í verslunum Jíagkaupa,
•TPjarðarkaupum 9fíafoarfirði, Samkaupum
^Íjarðvík og heilsubúðinni ‘kgykjarvíkuvegi.
verst niður á öðrum. Virðingarleysi
fyrir lögum og reglum, skortur á
samúð, samviskuleysi og siðblinda
eru meðal helstu einkenna þessarar
truflunar en rannsóknir hafa sýnt
fram á að stór hluti afbrotamanna
uppfylla greiningarviðmið andfé-
lagslegrar truflunar.
Samsláttur geðraskana er ekki
óalgengur og getur fólk greinst með
fleiri en eina persónuleikaröskun
eða hlotið slíka greiningu ásamt
annars konar geðröskun. Þannig
virðast til dæmis persónuleikatrufl-
anir algengar hjá sjúklingum sem
leita meðferðar vegna átröskunar en
það getur gert batahorfur almennt
verri.
Erfitt að meðhöndla
persónuleikatruflanir
Persónuleikatruflanir geta tekið á sig
ýmsar myndir og geta komið fram
í hugsun og hegðun, skynjun og
viðhorfum einstaklingsins til um-
hverfis síns og annarra. Hún getur
gert það að verkum að fólk verður
ófært um að bindast öðrum tilfinn-
ingaböndum en flestar gerðir per-
sónuleikaraskana valda truflunum
eða þroskastöðnun í myndun geð-
tengsla. Þar sem röskunin telst
hluti af persónuleika fólks getur
verið erfitt að meðhöndla hana en
eins er skortur á almennilegum
rannsóknum þó svo að ýmsar kenn-
ingar hafi verið settar fram um til-
urð vandamálsins.
hilda@bladid.net
Samkvæmt greiningarkerfi banda-
ríska sálfræðingafélagsins eru skil-
greindar einar tíu mismunandi
persónuleikaraskanir. Persónuleika-
röskun er skilgreind sem einhvers
konar einkenni í hegðun og hugsun-
arhætti einstaklings sem eru stöðug
og ósveigjanleg og hafa áhrif á dag-
legt líf viðkomandi. Einkennin eru
stöðug yfir tíma og eru hluti af per-
sónuleika einstaklings og geta haft
hamlandi áhrif á líf hans og störf
dags daglega.
Líkt og með marga aðra flokka
geðraskana er oftast matsatriði hvar
beri að setja mörkin á milli þess
sem telja megi persónuleikaröskun
og hvað ekki, en sumir telja persónu-
leikatruflanir einungis öfgakennd af-
brigði einkenna sem sjá má hjá fólki
yfir höfuð. Þannig verður að hafa í
huga að hugtök yfir persónuleika-
raskanir eru í besta falli gagnleg til
þess að skilgreina tiltekin, stöðug
hegðunarmynstur sem koma fólki í
vandræði en afmarka alls ekki skýrt
og greinilega mörkin á milli þess
sem telst heilbrigt eða sjúklegt.
Til þess að einstaklingur hljóti
greiningu verður hann að uppfylla
ákveðin greiningarviðmið og ein-
kennin verða að hafa verið til staðar
frá unglingsárum eða lengur. Rösk-
unin greinist yfirleitt ekki hjá fólki
fyrr en á fullorðinsárum og gerist
það gjarnan þegar einstaklingur
leitar sér hjálpar eða leggst inn
vegna annarra vandamála.
Persónuleikaraskanir eru misal-
varlegar en þeir sem glíma við væg
einkenni geta flestir lifað tiltölulega
eðlilegu lífi þó svo að einkennin
kunni að versna við mikið álag og
geti þá valdið einhverju hnjaski á
högum viðkomandi.
Jaðarpersónuleikaröskun
mest rannsökuð
Persónuleikaröskunum er yfirleitt
skipt í þrjá flokka með nokkrum
undirflokkum, eftir birtingarformi
einkenna. Jaðarpersónuleikaröskun
hefur verið einna mest rannsökuð
en helstu einkenni hennar eru
sveiflukennt geðslag, hvatvísi, reiði-
köst, óljós eða óstöðug sjálfsmynd,
stöðug tómleikakennd og storma-
söm sambönd við annað fólk. Eins
eru sjálfsvígshótanir og sjálfsmeið-
ingar tíðar hjá þeim sem hljóta þessa
greiningu.
Ein alvarlegasta röskunin er per-
sónuleikatruflun af andfélagslegri
gerð þar sem einkenni hennar koma
Olivia
........... ... ... .
Verö frá 49.900 án vsk.
ÍS-hÚSÍð 566 6000
loftkœlmg
'HYMER
Nova
Lúxus á hjólum
Hjólhýsi verða ekki öllu vandaðri eða glæsilegri en
Hymer hjólhýsin enda hafa framleiðendur þeirra
verið í fararbroddi hjólhýsaframleiðenda í Evrópu
síðustu áratugi.
wamm
ELLINGSEN
Opið
virka daga 10-18
laugardaga 10-16
sunnudaga 12-16
Grandagarði 2, sími 580 8500